Læknablaðið - 01.11.2022, Blaðsíða 21
L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108 497
R A N N S Ó K N
mynd eða segulómskoðun, niðurstöður þeirra og hve langt var
liðið frá einkennum að myndatöku.
Upplýsingum var safnað í Microsoft excel-skjal. Tölfræðiúr-
vinnsla og útreikningar voru framkvæmdir í RStudio, töflur voru
gerðar í Microsoft Word, og gröf í RStudio. Notað var Fisher-til-
gátupróf fyrir flokkabreytur en t-próf fyrir talnabreytur. Tölfræði-
leg marktækni var miðuð við p<0,05.
Tilskilin leyfi frá vísindarannsóknarnefnd heilbrigðisrann-
sókna á Landspítala og vísindasiðanefnd (VSN-21-235) lágu fyrir
áður en rannsókn hófst.
NIÐURSTÖÐUR
Á rannsóknartímabilinu greindust 335 manns með staðfest eða
mögulegt TGA. Tólf fengu fleiri en eitt kast á tímabilinu. Kynja-
skipting var með allra jafnasta móti, þar sem í heild greindust
167 konur og 168 karlar. Að meðaltali greindust 29 köst af TGA á
Landspítala á hverju ári (mynd 2).
Tafla II sýnir greiningar eftir árstíðum og mánuðum. Fæstar
greiningar voru í febrúar og maí (n=25), en flestar í apríl (n=37).
Ekki var þó marktækur munur á fjölda greininga eftir mánuðum
(p=0,912). Flest TGA-köst voru á vormánuðum (1. mars - 31. maí).
Lítill munur var þó milli árstíða.
Í heild var meðalaldur 64,1 ár og helmingur einstaklinga var
á aldrinum 58 til 71 árs og voru 88,7% einstaklinga á aldrinum
50-79 ára. Sá yngsti var 14 ára og sá elsti 91 árs. Ekki var munur
milli kynja.
Yfirlit yfir samveikindi (comorbidities) og mögulega áhættuþætti
má sjá í töflu III. Í heild voru 46,0% einstaklinga greindir með há-
þrýsting. Ef skoðað er eftir kyni voru 49,7% kvenna með háþrýsting
(42,3% karla). Tíðni greinds háþrýstings jókst með hækkandi aldri
(tafla III). Fleiri karlar voru með háar blóðfitur, eða 13,1% á móti
9,0% kvenna. Tvöfalt fleiri konur voru með mígreni, eða 13,2% á
móti 6,5% karla. 12,6% kvenna voru með vanvirkan skjaldkirtil,
en einungis 1,8% karla. Tveir karlar og tvær konur höfðu sögu
um flogaveiki. Einungis tveir höfðu þekkta vitræna skerðingu við
TGA-greiningu.
Yfirlit yfir mögulega útleysandi þætti má sjá í töflu IV. Í 187
af 348 (53,7%) tilvikum tókst að skrá mögulegan útleysandi þátt.
Algengast var að einstaklingur hefði verið undir líkamlegri
Tafla II. Fjöldi kasta eftir árstíðum og mánuðum.
Árstíð Mánuður Fjöldi staðfestra og
mögulegra TGA-kasta
Vetur
Desember 30
= 82Janúar 27
Febrúar 25
Vor
Mars 31
= 93Apríl 37
Maí 25
Sumar
Júní 32
= 88Júlí 26
Ágúst 30
Haust
September 27
= 85Október 31
Nóvember 27
Tafla III. Lýðfræðilegar upplýsingar og samveikindi. Fjöldi (%).
Kyn Öll
(N=335)
TGA
(N=288)
Mögulegt TGA
(N=47)
Karl 168 (50,1) 143 (49,7) 25 (53,2)
Kona 167 (49,9) 145 (50,3) 22 (46,8)
Aldur
Meðaltal (staðalfrávik) 64,1 (10,3) 63,9 (9,81) 64,9 (13,3)
Miðgildi
Spönn
65,0
[14,0 ,91,0]
64,0
[21,0, 91,0]
67,0
[14,0, 86,0)
Aldursflokkur Öll
(N=335)
49 ára
(N=21)
50-69 ára
(N=209)
70 ára
(N=105)
Þekktur háþrýstingur 154 (46,0) 3 (14,3) 86 (41,1) 65 (61,9)
Háar blóðfitur 37 (11,0) 0 (0) 29 (13,9) 8 (7,6)
Vanvirkur skjaldkirtill 24 (7,2) 0 (0) 16 (7,7) 8 (7,6)
Saga um mígreni 33 (9,9) 3 (14,3) 23 (11,0) 7 (6,7)
Saga um blóðþurrð í heila 36 (10,7) 1 (4,8) 15 (7,2) 20 (19,0)
Saga um flog 4 (1,2) 0 (0) 4 (1,9) 0 (0)
Saga um vitræna skerðingu 2 (0,6) 0 (0) 1 (0,5) 1 (1,0)
Saga um fyrra TGA 33 (9,9) 0 (0) 18 (8,6) 15 (14,3)
Mynd 2. Fjöldi TGA-kasta eftir árum.