Landsfundur Sjálfstæðisflokksins - 01.12.1967, Blaðsíða 31
Kvöldfagnaður í Hótel Sögru.
Magnús Jónsson, fjármálaráðherra, flutti
yfirlitsræðu um fjármál ríkisins. Gerði hann
grein fyrir hinum ýmsu málum, er varða fjár-
málastjórn ríkisins. Ræðan er prentuð aftar í
skýrslunni.
Fundi var slitið kl. 15.30.
Sjöundi fundur.
Sjöundi fundur landsfundarins hófst í Sjálf-
stæðishúsinu laugardaginn 22. apríl kl. 17.10.
Fundarstjóri á þessum fundi var Jón G. Sól-
nes, bankastjóri, Akureyri, en fundarritarar
Sigurður Sigurðsson, verzlunarmaður, Akur-
eyri og Ólaður B. Thors, lögfræðingur, Reykja-
vík. Á dagskrá fundarins voru almennar um-
ræður og tóku til máls Gísli Jónsson, fyrrv.
alþingismaður, Reykjavík, frú Jakobína Mat-
biesen, Hafnarfirði, prófessor Ólafur Björns-
son, Reykjavík, Sigurjón Bjarnason, verka-
niaður, Reykjavík, Sveinn Ólafsson, fulltrúi,
Garðahreppi og Kalman Stefánsson, bóndi,
Kalmanstungu.
Fundi var slitið kl. 18.15.
Áttundi fundur.
Áttundi fundur landsfundarins hófst í Sjálf-
stæðishúsinu sunnudaginn 23. apríl kl. 10.35.
Fundarstjóri á þessum fundi var frú Guð-
rún P. Helgadóttir, skólastjóri, Reykjavík, og
fundarritarar Margeir Þórormsson, símstjóri,
Fáskrúðsfirði og Óli Þ. Guðbjartsson, kennari,
Selfossi.
Á dagskrá var stjórnmálayfirlýsing fund-
arins. Birgir Kjaran, hagfræðingur, Reykja-
vík, formaður stjórnmálanefndar fundarins,
lagði fram tillögu nefndarinnar til stjórnmála-
yfirlýsingar. Flutti hann framsöguræðu fyrir
tillögunni og nefndaráliti. Gerði hann grein
fyrir hinum ýmsu þáttum yfirlýsingarinnar
og þeirri heildarstefnu flokksins, sem hún
markaði.
29