Landsfundur Sjálfstæðisflokksins - 01.12.1967, Page 34
V. Ályktanir fundarins
STJÓRNMÁLAYFIRLÝSING
Sautjándi Landsfundur Sjálfstæðisflokksins leggur áherzlu á eftir-
farandi grundvallaratriði sjálfstæðisstefnunnar:
I. að varðveita og tryggja sjálfstæði og frelsi Islands og standa vörð
um tungu, bókmenntir og annan menningararf Islendinga,
II. að treysta lýðræði og þingræði,
III. að vinna að víðsýnni og þjóðlegri umbótastefnu á grundvelli ein-
staklingsfrelsis og athafnafrelsis, með hagsmuni allra stétta fyrir
augum,
IV. að beita nútíma þekkingu og tækni, svo að auðlindir landsins verði
hagnýttar í þágu þjóðarinnar,
V. að skapa öllum landsmönnum félagslegt öryggi.
----o----
Sjálfstæðisflokkurinn hefur verið langfjölmennasti flokkur lands-
ins allt frá stofnun hans árið 1929. Hann hefur oft átt aðild að ríkisstjórn
og beitt sér fyrir mörgum mikilvægum framfaramálum. Þjóðinni hefur
jafnan vegnað því betur sem fremur hefur verið stjórnað í anda sjálf-
stæðisstefnunnar, en ætíð hefur þurft að leita samninga við aðra um
framgang mála og misjafnlega tiltekizt um sumt, svo sem verða vill.
Með núverandi stjórnarsamstarfi og efnahagsmálastefnu þeirri, sem
mörkuð var árið 1960, urðu tímamót í íslenzkum stjórnmálum. Horfið
var frá stefnu hafta og ríkisafskipta, sem hafði leitt til stöðnunar í hag-
vexti, og tekið að beita nýjum hagstjórnaraðferðum, sem stuðluðu að
frelsi í framkvæmdum og viðskiptum.
Hin nýja frjálsræðisstefna hefur þegar ótvírætt sannað yfirburði
sína. Frelsið hefur leyst úr læðingi framtak og þrótt, er hefur leitt til þess,
að síðustu sjö árin hafa orðið meiri allsherjar framfarir á íslandi en á
nokkru sambærilegu tímabili í sögu þjóðarinnar, og mun hinn heillavæn-
legi árangur þá koma því betur í ljós, sem þessari stefnu er lengur fylgt.
32