Landsfundur Sjálfstæðisflokksins - 01.12.1967, Blaðsíða 36
ríkisvaldsins hefur verið lögð rík áherzla á að hvetja til samvinnu aðila
vinnumarkaðarins og stuðla að öflun raunhæfra og hlutlausra upplýs-
inga um efnahagsþróunina, hag atvinnuveganna og kjör almennings.
Landsfundurinn telur sérstaka ástæðu til að lýsa ánægju yfir því, sem
áunnizt hefur á þessum vett'7angi.
Hið mikla verðfall á ýmsum af helztu útflutningsafurðum sjávarút-
vegsins hefur þó leitt til verðlækkunar hráefnisins og þar með rýrt af-
komu sjómanna og útgerðarfyrirtækja. Ríkisvaldið hefur leitazt við að
draga úr afleiðingum verðfallsins með auknum framlögum úr ríkissjóði
til sjávarútvegsins á þessu ári, þótt slikar aðgerðir geti að sjálfsögðu ekki
vegið á móti svo gífurlegu verðfalli afurða veigamikilla greina sjávar-
útvegsins eins og nú hefur orðið raun á. Jafnhliða hefur með ákvörðun-
inni um verðstöðvun verið gerð nauðsynleg ráðstöfun til þess að hindra
hækkun reksturskostnaðar útflutningsatvinnuveganna. Áður fyrr hefðu
jafn stórfelldir erfiðleikar atvinnuveganna samstundis valdið viðskipta-
höftum, nýjum álögum og kjaraskerðingu almennings, en vegna trausts
fjárhags ríkissjóðs og gjaldeyrisvarasjóðsins hefur til þessa verið hægt
að ráða við þessa miklu erfiðleika án þess að skerða viðskiptafrelsi eða
kjör almennings.
Aðstaðan til að ráða við þá viðskiptaörðugleika, sem þjóðin nú stend-
ur andspænis, er einmitt gleggst sönnun um gildi þeirrar efnahagsstefnu,
sem fylgt hefur verið frá 1960, og hin öra hagþróun þetta tímabil stað-
festir yfirburði efnahagskerfis frjálsra viðskiptahátta fram yfir kerfi
hafta og ríkisafskipta. Þótt verðfall framleiðslunnar kunni að draga úr
hagvexti um sinn, þá er efnahagur þjóðarinnar nú svo traustur, að auðið
á að vera að forðast veruleg efnahagsleg vandræði, ef skynsamlega er á
málum haldið.
-----o----
í samræmi við meginstefnu sína telur Sjálfstæðisflokkurinn, að hug-
kvæmni og athafnaþrá einstaklinganna sé aflgjafi framfara. Ber því að
efla einkaframtak til almannaheilla og beita ríkisvaldinu til að auka hag-
sæld og menningu sérhvers einstaklings, jafnframt því sem hlúð verði
að þeim, sem ekki ganga heilir t.il skógar í lífsbaráttunni.
Landsfundurinn ályktar, að hiklaust beri að framfylgja áfram í meg-
inefnum þeirri stefnu í efnahagsmálum, sem fylgt hefur verið síðustu ár-
34