Landsfundur Sjálfstæðisflokksins - 01.12.1967, Page 44

Landsfundur Sjálfstæðisflokksins - 01.12.1967, Page 44
umbótum og urmið er að rækilegri endurskoðun alls fræðslukerfisins. Barnaskólamir, sem risið hafa upp víðs- vegar á seinni árum, sýna, að menn vilja mikið á sig leggja til að greiða götu æsku- lýðs til aukinnar menntunar. Framhaldsskól- um er einnig víða verið að koma upp og unnið er að því að endumýja hina gömlu, jafn- framt því, sem stórbætt hefur verið löggjöf um iðnskóla og sett hafa verið alveg ný fyrir- mæli um tæknimenntun. Menntaskóla í landinu er verið að byggja af miklum dugnaði og ákveðið hefur verið að stofna til nýrra, svo fljótt sem auðið verður, bæði á Vestfjörðum og austanlands. Kennaraliði Háskólans er f jölgað eftir fyrirfram gerðri áætlun og undir- búin er mjög mikil stækkun kennslurýmis hans. Styrkjum og lánum til stúdenta hefur verið komið í betra horf en áður. Vísindarannsóknir eru stöðugt auknar og sett hefur verið ítarleg löggjöf til að sam- ræma þær og auðvelda starf vísindamanna. íslendingar eiga nú færa vísindamenn í furðu mörgum greinum. Við getum í fæstum efnum keppt við aðra um vinnuskilyrði, svo sem full- komnar rannsóknarstofur eða hæð launa, sem afbragðsmenn eiga kost á erlendis. En því frekar ber okkur að meta þá, sem sækjast eftir að eyða ævi sinni hér við erfiðari aðstæð- ur heldur en þeir eiga völ á með miklu mann- fleiri og ríkari þjóðum. Hér eiga flestir vís- indamenn og sérfræðingar þess lítinn kost að beita eingöngu sérgáfum sínum, vegna þess að viðfangsefni hvers og eins hljóta að verða mjög margvísleg. Þessu una margir af því, að þeir kunna að meta sinn íslenzka arf og það jafnræði, sem hér ríkir manna á milli. Stofnun og útbreiðsla hins íslenzka sjón- varps er eitt af afrekum síðustu ára. Með öðrum þjóðum hefur tekið mörg ár að ná ámóta útbreiðslu þess og hér er þegar fengin af alkunnum ástæðum. Nú ætlast menn til, að unnt verði að sjá til þessa menningartækis um allt land innan mjög skamms tíma. Til þess skortir ekki vilja stjórnvaldanna, en vissar tækniforsendur þurfa að vera fyrir hendi. Með sjónvarpið er svipað og um einangrunina. Einangrunin er liðin, hvort sem mönnum líkar betur eða ver; sjónvarpið er komið — og hlaut að koma, hvort sem mönnum líkar betur eð ver. Við þvílíka framvindu tímanna fær enginn ráðið. Hitt er rétt, að sjónvarp einungis miðlar, það skapar ekki, og ekki er hægt að miðla því, sem ekki er til. Vegna sjónvarpsins verður því að leggja enn ríkari áherzlu en áður á að bæta skilyrði fyrir þeirri innlendri menningu, hljómlist, töluðu orði, myndlist og öðru slíku, sem menn fá notið fyrir milligöngu sjónvarps- ins. Hér er vissulega mikið verkefni, sem menn að vísu sjá að fyrir höndum er, en hafa ekki gert sér nægilega grein fyrir í einstökum at- riðum né heldur hvernig leysa skuli. í þessum efnum getur ríkið í rauninni aldrei haft neitt skipunarvald. Það getur í bezta lagi greitt fyrir því, að kraftar einstakling- anna fái að njóta sín. Stundum er undan því kvartað, að stjómmálamenn vilji ráða því, hvað listamenn geri og amist við þeim, sem séu sjálfum þeim óþægur ljár í þúfu. Auknir styrkir til listamanna og nýjar reglur um út- hlutun listamannalauna sýna hversu fjarlægt þetta er hinum raunverulega hugsunarhætti ráðandi manna nú. 1 þessu sem öðru er bezt að láta frjálsræðið vera sem mest. Keypt lof verður skjótlega að háði, alveg eins og skamm- ir og skætingur gera ekki leirburð að lista- verki. í allri okkar menningarleit megum við aldrei fjarlægjast þá sístreymandi lind mannvizku og snilldar, sem er að finna í okkar fomu bók- menntum. Þekking á þeim og frumsannindum kristinnar trúar verður um alla framtíð að móta uppeldi íslenzks æskulýðs. Án þessa tvenns væri íslenzk menning ekki til, og ef hún væri horfin, myndi þess skammt að bíða, að íslenzkt þjóðemi væri einnig úr sögunni. Þá megum við aldrei týna því aðalsmerki íslenzks uppeldis, að allir kynnist og taki þátt í starfi almennings. Bóklestur og skólaganga eru mikilsverð, en stofulærdómurinn einn hrekkur skammt .Iðjuleysi er uppspretta flestr- ar ógæfu, jafnt fyrir unga sem gamla. Sönn menning er ekki einungis mannbæt- andi, heldur ræður þekkingin nú á dögum úr- slitum um, hvort mönnum vegnar vel eða illa á veraldar vísu, komast af eða ekki. Svo oft er búið að segja á síðustu árum, að bókvitið verði í askana látið, gagnstætt orðum hins gamla málsháttar, að óþarfi er að fara um það fleiri orðum. Þau sannindi eiga ekki að- eins við um öflun verðmæta og framleiðslu, heldur og ráðstöfun þeirra og stjóm efna- hagsmála. I öllu þessu er það þekking og 42

x

Landsfundur Sjálfstæðisflokksins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Landsfundur Sjálfstæðisflokksins
https://timarit.is/publication/1780

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.