Landsfundur Sjálfstæðisflokksins - 01.12.1967, Síða 55
Hér er um mjög róttæka löggjöf að ræða og
ég tel, að áhrifa hennar sé þegar farið að
gæta. Að vísu hefir verið á það bent, að ýmis
læknishéruð standi ennþá auð, þannig að ekki
hafi tekizt að skipa í þau lækna, en það er
ekki ný bóla, því svo hefir löngum verið hjá
okkur. En ég hygg, að vænta megi úrbóta fyrir
áhrif hinnar nýju löggjafar en segja má að
í stórum dráttum séu veigamestu atriði henn-
ar þessi:
1. 1 tuttugu tilteknum læknishéruðum, og ef
nauðsyn krefur í fimm öðrum en ótitlekn-
um héruðum, skal greiða héraðslækni stað-
aruppbót á laun er nemi hálfum launum í
hlutaðeigandi héraði.
2. í sömu héruðum, sem um ræðir í fyrsta lið,
skal héraðslæknir, sem hefir setið fimm ár
samfleytt í héraðinu eiga rétt á að hljóta
eins árs frí með fullum launum til fram-
haldsnáms hér á landi eða erlendis. Hann
fær einnig greiddan úr ríkissjóði fargjalda-
kostnað fyrir sig og fjölskyldu sína að
heiman og til þess lands í Evrópu eða
Norður-Ameríku, þar sem hann hyggst
stunda námið. Að ársleyfi loknu skal hann
eiga rétt á að fá greiddan á sama hátt
fargjaldakostnað heim til íslands aftur,
enda skuldbindi hann sig þá til þess að
gegna áfram héraðslæknisstörfum. Eftir að
hafa verið héraðslæknir í þrjú ár getur
hann notið sömu fríðinda, en þá með skuld-
bindingu um að gegna héraðslæknisstörf-
um í tvö ár.
3. Heimilt skal að sameina læknishéruð og
koma upp læknamiðstöðvum fyrir hin sam-
einu héruð eftir því, sem nauðsyn krefur
og staðhættir leyfa.
4. Við veitingu læknisembætta skal sá um-
sækjandi, sem hefur lengstan starfsaldur
sem héraðlæknir, að öðru jöfnu sitja fyrir
öðrum umsækjendum um stöðuna.
5. Embættis (starfs) aldur héraðslæknis í
sömu héruðum og um ræðir í fyrsta lið
teljast 5 ár fyrir hver 3 ár, sem hann
hefir gegnt hlutaðeigandi héraði.
6. Heimilt skal að ráða einn lækni með ótil-
tekinni búsetu til að veita neyðarlæknis-
þjónustu í læknislausum héruðum.
7. Heimilt skal samkvæmt tillögu landlæknis,
eftir því sem nánar verður ákveðið í reglu-
gerð, að veita læknastúdentum ríkislán til
náms gegn skuldbindingu um læknisþjón-
ustu í héraði að afloknu námi.
8. Stofna skal bifreiðalánasjóð héraðslækna
með milljón króna framlagi úr ríkissjóði.
Reglugerð um ríkislán til læknastúdenta var
fyrst gefin út í marz 1966 og breytt 8. des.
1966. 1 marz voru veitt lán fjórum stúdentum
hvert að upphæð 75 þúsund krónur. í febrúar
1967 voru sjö stúdentum veitt lán, hvert á 75
þúsund krónur, og fengu tveir stúdentar lán
í annað sinn.
Reglugerð um bifreiðalánasjóð héraðslækna
var sett 19. apríl 1966. Fyrri fjárveiting á
fjárlögum 1966 krónur 500.000, en síðarifjár-
veiting er í fjárlögum 1967 krónur 500.000.
Lán voru veitt á árinu 1966 til þriggja lækna,
sem voru að hefja störf í héraði, 100.000 krón-
ur til hvers og lánstími 3 ár.
Ég hefi að ósk landlæknis skipað þriggja
manna nefnd til þess að semja reglur um
fyrirkomulag og rekstur læknamiðstöðva sam-
kvæmt 4. gr. læknaskipunarlaganna frá 1965,
en frá fjórum stöðum á landinu liggja nú
fyrir óskir um, að stuðlað verði að því að
koma upp slíkum læknastöðvum og má búast
við, að fleiri bætist í hópinn.
Margþætt stjórnsýsla.
Um ýmis stjórnsýsluatriði á sviði heilbrigð-
ismála skal ég fara fljótt yfir sögu. Ég vil
þó leggja áherzlu á það að haft hefur verið
mjög náið samráð við lækna í þessum efnum,
ekki sízt í sambandi við starfsaðstöðu þeirra
og kjör á Landspítalanum. Til athugunar er,
að læknakennslunni kunni að verða eitthvað
breytt í þá átt, að hún yrði verulegri í læknis-
störfum utan sjúkrahúsa og gæti með þeim
hætti stuðlað að því, að menn legðu fremur
fyrir sig héraðslæknisstörf. Ennfremur hefir
verið til athugnar að læknadeild Háskólans
semdi reglur um nám til sérfræðiviðurkenn-
ingar í heimilislækningum og embættislækn-
ingum.
Þá hefir verið mjög til athugunar að taka
til gagngerðrar endurskoðunar fyrirkomulag
á spítalarekstri hér á landi og er verið að
vinna að því að fá erlendan sérfræðing frá
Svíþjóð til þess að kanna ýmis atriði í rekstri
Landspítalans, sem gætu þá orðið til fyrir-
myndar í rekstri annarra sjúkrahúsa.
Efnt hefir verið til nánara samstarfs en
53