Landsfundur Sjálfstæðisflokksins - 01.12.1967, Page 66

Landsfundur Sjálfstæðisflokksins - 01.12.1967, Page 66
tntina, en hinn hái byggíngarkostnaður hefur að sjálfsögðu verið eitt af okkar miklu vanda- málum á undanförnum árum. Það er hins vegar alveg fráleitt að sakast við opinber stjórnvöld á því sviði. Einstaklingarnir verða að gera sér grein fyrir, að á þeim hvílir ekki sízt þungi ábyrgðarinnar. Þeir hafa sjálfir gert kröfu til þess að byggja stórar íbúðir, oft mjög íburðarmiklar íbúðir, með öðrum orðum tæplega sézt fyrir og liggur í augum uppi, að byggingarkostnaður við slíkar íbúðir er að sjálfsögðu hár. Á árinu 1965 var húsnæðismálastjórn enn- fremur heimilað að veita sveitarfélögum og Öryrkjabandalagi Islands lán til byggingar leiguhúsnæðis í kaupstöðum og kauptúnum. Lánsfjárhæð á hverja íbúð af þessu tagi má vera allt að % hlutum verðmætis íbúðar. Ung hjón og aldrað fólk skal að öðru jöfnu sitja fyrir um húsnæði í leiguíbúðum þessum. Rannsókn á byggingarkostnaði. Rannsóknir og athuganir fara nú fram á því, hver byggingarkostnaður er hér á landi til samanburðar við byggingarkostnað erlend- is, og er til þess ætlazt, að athugun geti stuðl- að að niðurfærslu byggingarkostnaðarins. Sér- stök nefnd, sem iðnðarmálaráðherra skipaði, vinnur að þessu verkefni, en jafnframt er það að staðaldri verkefni Rannsóknarstofnunar byggingariðnaðarins að vinna að endurbótum í byggingariðnaði og lækkun kostnaðar við mannvirk j agerð. Veðlánakerfið verðugur aflvaki. Við skulum hafa í huga eftirfarandi: Sjálfstæðismenn höfðu forustu um að leggja grundvöllinn að stofnun hins almenna veð- lánakerfis. Þessu veðlánakerfi hefur nú vaxið veru- lega fiskur um hrygg á undanförnum árum í stjórnarsamstarfi Sjálfstæðisflokksins og Al- þýðuflokksins og náð hefur verið á stundum því höfuðtakmarki, að nægjanlegt fjármagn væri fyrir hendi hjá húsnæðismálastjórn til þess að veita öllum lán, sem um þau sækja og uppfylla þau skilyrði, sem sett eru. Það er svo rétt, að skórinn kreppir víðar en í þessum málum, bæði hjá einstaklingum og fjölskyldum, og verður að vinna stöðugt og markvisst að umbótum á sviði húsnæðismál- anna bæði í sambandi við tækniieg atriði og fjáröflun. En þess er þó að minnast, að miklu meira er það áberandi í augum þeirra útlendu manna, sem hingað koma til landsins, hversu mikið hefur verið byggt á fslandi á undan- förnum árum, en hitt, að húsnæðisskorturinn hrjái fólkið. Og víst er um það, að á árabili viðreisnarstjórnarinnar frá '1960 og fram til þessa hefur verið byggt langtum meira hús- næði en svarar til þess, að byggt væri fyrir þá fólksfjölgun, sem orðið hefur á sama tíma. En kröfur manna hafa vaxið til íbúðarstærð- anna, svo að það hefur orðið lengra í land að fullnægja þörfinni, og að sjálfsögðu gengur alltaf nokkuð úr sér af gömlu og óviðunandi húsnæði. Fjölskrúðug löggjöf einkennir viðreisnartímann. Það hefur stundum mátt heyra það úr her- búðum stjórnarandstæðinga, að ríkisstjórnin og stjórnarliðið sé þreytt og úrræðalaust, það vanti forustu. Hér er ekki tími til þess að tíunda mjög umfangsmikla og blómlega löggjöf undanfar- inna ára, sem vissulega vitnar um rösklegt forustuhlutverk viðreisnarstjórnarinnar og stuðningsliðs hennar. En nokkuð vil ég þó nefna, sem segir sína sögu. Verzlunin hefur verið gefin frjáls að mestu í framhaldi löggjafar um innflutnings- og gjaldeyrismál 1960. 011 löggjöf ríkisbankanna endurskoðuð og samræmd. Lög um Verzlunarbanka sett 1960 og um Samvinnubanka 1962. Sett lög um stofnlánasjóði allra atvinnuveg- anna. Sett lög um Framkvæmdasjóð Islands, Efnahagsstofnun og Hagráð. Lög um Atvinnujöfnunarsjóð. Lög um lána- sjóð sveitarfélaga. Lög um Ríkisábyrgðasjóð. Lög um Tækniskóla Islands. Lög um iðnfræðslu. Lög um lánasjóð námsmanna, um Hand- ritastofnun og Listasafn fslands. Ný sjúkrahúslög 1964. Ný læknaskipunarlög 1965. Hjúkrunarlög og lög um ljósmæður og að- stoð við vangefið fólk og fávitastofnanir. Lög um ferðamál 1964, með stofnun Ferða- málasjóðs. Ný vegalög 1963. Vegasjóður. 64

x

Landsfundur Sjálfstæðisflokksins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Landsfundur Sjálfstæðisflokksins
https://timarit.is/publication/1780

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.