Landsfundur Sjálfstæðisflokksins - 01.12.1967, Side 69

Landsfundur Sjálfstæðisflokksins - 01.12.1967, Side 69
Ræða Ingólfs Jónssonar, landbúnaðarráðherra Stefnan er að vinna í anda heilbrigðs samstarfs og útiloka sundrung og stéttastríð Á síðasta aðalfundi 1965 var stjórnmála viðhorfið rætt eins og venjulega hefur verið gert á landsfundum Sjálfstæðisflokksins. Ekki væri óeðlilegt, að þessi fundur mótaðist nokkuð af því að kjörtímabilinu er nú að ljúka og að gengið verður til kosninga eftir fáar vikur. Eftir 7% árs stjórnarforustu Sjálfstæðis- manna er sjálfsagt, að menn geri sér grein fyrir þróun mála á þessu tímabili. Formaður flokksins, Bjarni Benediktsson forsætisráð- herra og Jóhann Hafstein dómsmálaráðherra, gerðu rækilega grein fyrir því helzta í ítar- legum ræðum. Munu þeir, sem á hlýddu, vera mun fróðari um það mikla hlutverk, sem Sjálf- stæðismenn hafa gegnt í viðreisninni und- anfarin ár. Uppbygging atvinnuveganna og viðreisn efnahagslífsins hefur verið höfuðverk- efni ríkisstjórnarinnar. Fyrir átta árum var efnahagur þjóðarinnar mjög bágborinn eftir viðskilnað vinstri stjórnarinnar. Gjaldeyris- skuldir hlóðust upp, gjaldmiðillinn var verð- laus, framleiðslan var að stöðvast og atvinnu- tækin uppfylltu á engan hátt kröfur tímans á tækniöld. Atvinnuöryggi vantaði, lífskjörum almennings hrakaði. Skömmtun, höft og svart- ur markaður var alþekkt fyrirbrigði. Hvernig viðhorfið var í þjóðlífinu um það leyti, sem nú- verandi ríkisstjórn tók við völdum hafa margir gleymt. Yngstu kjósendurnir, sem nú ganga til kosninga í fyrsta eða annað sinn, kynnt- ust ekki af eigin raun þeim leiðindum og erfiði, sem af gjaldeyrisskortinum og skömmtuninni leiddi. Ætla má að allt að 30 þús. nýir kjós- endur hafi bætzt við síðan 1959, þegar höftin og skömmtunin voru mönnum enn í fersku minni og má þá reikna með, að kjósendum hafi fjölgað um allt að 15—16 þúsund. Það skiptir miklu máli, að ungu kjósendurnir fái réttar upplýsingar um þjóðmálin og læri af reynslunni með því að kynna sér stjórnmála- sögu síðari ára. Réttindum fylgja ávallt skyldur. Með kosn- ingaréttinum er kjósendum lögð sú skylda á herðar að mynda sér skoðun á málefnum og gera sér grein fyrir, hvaða stefna er farsælust fyrir þjóðina. Reynslan er bezti skólinn og á henni má byggja. Við Sjálfstæðismenn höfum leitazt við að kynna stefnu okkar í ræðu og riti og með þeim verkum, sem flokknum hefur auðnazt að koma í framkvæmd til góðs fyrir þjóðina. Reynslan sýnir að þegar Sjálfstæðis- menn hafa stjórnarforustu og ráða mestu um stjórnarstefnuna fer hagur þjóðarinnar batn- andi. 67

x

Landsfundur Sjálfstæðisflokksins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Landsfundur Sjálfstæðisflokksins
https://timarit.is/publication/1780

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.