Fréttablaðið - 25.03.2023, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 25.03.2023, Blaðsíða 4
40 prósenta hækkun varð á verði Merrild- kaffipakka á tólf mán- uðum. 6,3 prósent karla á Íslandi voru atvinnulaus í febrúar. 104 börn sem glíma við offitu eru á biðlista hjá Heilsuskólanum. 5,6 milljarða króna erlend fjárfesting hefur verið tryggð íslenska tölvu- leikjaframleiðand- anum CCP. 710 fermetra þjóðgarðs- miðstöð Snæfellsþjóð- garðs á Hellissandi var vígð í gær. NÝSKÖPUNARMÓT ÁLKLASANS Á Nýsköpunarmóti Álklasans er fjölbreytt dagskrá þar sem gefin er innsýn í spennandi þróunarverkefni hjá iðnaðinum, sprotafyrirtækjum og rannsóknarsamfélaginu. Háskólinn í Reykjavík þriðjudagur 28. mars kl. 14-16 – stofa M101 Tölur vikunnar | Þrjú í fréTTum | Lilja Dögg Alfreðsdóttir menningar- og við- skiptaráðherra ætlar að hitta fulltrúa Evrópu­ sambandsins í Brussel í næstu viku og ræða fyrirhugaða hækkun kolefnis­ skatta af f lugi. „Þetta er stærsta hagsmunamál fyrir Ísland á síðari árum,“ segir Lilja. „Við höfum ekki sömu möguleika og aðrar þjóðir á umhverfisvænum kostum eins og æskilegt væri.“ Auður Önnu Magnúsdóttir framkvæmdastjóri Landverndar gagnrýnir íslensk stjórnvöld fyrir að reyna að fá afslátt af fyrirhuguðum losunarsköttum í f lugi á Evrópska efnahagssvæðinu. „Mér finnst mjög vandræðalegt að íslensk stjórnvöld hafi reynt að fá þessa sérmeðferð,“ segir Auður og gagnrýnir áætlanir um fjölgun ferðamanna. „Við þurfum að fá ferðamenn til að stoppa lengur.“ Lilja Kristín Gísladóttir deildarstjóri á leik- skólanum Baugi segir að hækka þurfi laun leikskólakenn­ ara og breyta viðhorfum í samfélaginu til þeirra. „Fólk heldur að við séum bara að fæða, klæða, skeina og knúsa. Við erum að skapa fullorðna einstaklinga framtíðarinnar,“ segir Lilja. „Það er rosalega mikið verið að ein­ blína á sjónarhorn foreldra og stjórnmálamanna en ekki verið að hlusta á sjónarhorn fagmanna innan stéttarinnar.“ n Biðtíminn eftir félagslegri íbúð er mjög mismunandi eftir sveitarfélögum. Bæjar­ stjóri Akraness segir aðstæður á húsnæðismarkaði valda því að fólk dvelji lengur í félags­ legum íbúðum. kristinnhaukur@frettabladid.is félagsmál Tuttugufaldur munur er á biðtíma eftir félagslegri íbúð á Akranesi miðað við Múlaþing. Á Akranesi er biðtíminn eftir ein­ staklingsíbúð fjögur ár en aðeins rúmir tveir mánuðir í Múlaþingi. Í svari Guðmundar Inga Guð­ brandssonar félagsmálaráðherra við fyrirspurn Evu Sjafnar Helga­ dóttur, þingmanns Pírata, kemur fram biðtími eftir félagslegri íbúð í níu sveitarfélögum sem hafa fleiri en fimm þúsund íbúa yfir fimm ára tímabil. Meðalbiðtíminn fyrir ein­ staklingsíbúð er 28 mánuðir og 24,5 fyrir fjölskylduíbúð. Áberandi besta staðan er í Múla­ þingi þar sem biðin er aðeins 2,4 mánuðir fyrir einstaklingsíbúð og þrír fyrir fjölskyldur. „Við eigum talsvert margar eignir og reynum að bregðast við húsnæð­ isvanda hvers og eins,“ segir Júlía Sæmundsdóttir félagsmálastjóri. Sérstök áhersla sé lögð á húsnæði fyrir fötluð börn. „Við gerum ráð fyrir því að fötluðu börnin okkar komist í húsnæði áður en þau verða 18 ára,“ segir Júlía. Það sé markmið í sjálfu sér að halda uppi nægu framboði af félags­ legum íbúðum og hafa biðtímann stuttan. „Það er ekki vanþörf á því eins og húsnæðismarkaðurinn er,“ segir hún. „Sérstaklega hérna á Egils­ stöð um þar sem er mjög erfitt að fá húsnæði, bæði til leigu og kaups, og verðið hefur hækkað mjög mikið.“ Samkvæmt svari ráðherra er bið­ tíminn eftir einstaklingsíbúð 10 Tuttugufaldur munur á biðtíma eftir félagslegri íbúð hjá sveitarfélögunum Lengsta biðin eftir einstaklingsíbúð er á Akranesi. Fréttablaðið/Ernir Sveitarfélag Einstaklingar Fjölskyldur akranes 48,0 30,0 akureyri 36,0 36,0 Hafnarfjörður 35,1 49,3 Árborg 33,3 22,5 reykjavík 29,1 20,6 Garðabær 25,8 14,0 Kópavogur 25,2 18,6 Mosfellsbær 10,0 15,2 Múlaþing 2,4 3,0 alls 28,0 24,5 Svör bárust ekki frá reykjanesbæ og Fjarðabyggð Meðalbiðtími síðustu fimm ára í mánuðum mánuðir í Mosfellsbæ, 25,2 í Kópa­ vogi, 25,8 í Garðabæ, 29,1 í Reykja­ vík, 33,3 í Árborg, 35,1 í Hafnarfirði og 36 á Akureyri. Langlengsti bið­ tíminn er á Akranesi, 48 mánuðir. Sævar Freyr Þráinsson, bæjar­ stjóri Akraness, segist ekki kannast við að biðtíminn sé fjögur ár. For­ gangsraðað sé eftir þörf og margir fái íbúðir mun fyrr. „Langvarandi skortur á almennu leiguhúsnæði á Akranesi auk þess hve leiguverð á almennum markaði hefur hækkað, hefur leitt til þess að þeir sem fá úthlutaðar félagslegar leiguíbúðir eru í þeim til lengri tíma en annars væri ef aðstæður á mark­ aðnum væri betri,“ segir hann. Stefna bæjarins sé að vinna með húsnæðissjálfseignarfélögum til að uppfylla þörfina, svo sem Bjargi, Leigufélagi aldraðra, Þroskahjálp, Brák og Brynju. Hafi það reynst vel að fjölga húsnæðisúrræðum heldur en að fjárfesta í eigin húsnæði. Verið sé að fjárfesta í uppbyggingu nýrra íbúða fyrir ýmsa hópa, svo sem aldraða og tekjulága, og hluti þeirra fer inn í félagslega kerfið. Þegar kemur að meðalbiðtíma fyrir fjölskyldur er lengsti biðtím­ inn í Hafnarfirði, 49,3 mánuðir. Rósa Guðbjartsdóttir, bæjar­ stjóri Hafnarfjarðar, segir þær tölur sem koma fram í svarinu rangar hvað Hafnarfjörð varði. Hafi bið­ tíminn verið ofmetinn fyrir árin 2018 til 2020. „Á síðastliðnu ári var meðalbiðtími eftir félagslegri íbúð í Hafnarfirði 11,5 mánuðir fyrir ein­ staklinga og 9,7 mánuðir fyrir fjöl­ skyldur,“ segir Rósa. n Við eigum talsvert margar eignir og reynum að bregðast við húsnæðisvanda hvers og eins. Júlía Sæmundsdóttir, félagsmálastjóri Múlaþings 4 fréTTir FRÉTTABLAÐIÐ 25. mARs 2023 LAUGArDAGUr
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.