Fréttablaðið - 25.03.2023, Page 16

Fréttablaðið - 25.03.2023, Page 16
Ljóst er að pressan á Arnar Þór Viðarsson, þjálfara íslenska landsliðsins í knattspyrnu, hefur aldrei verið meiri. Slæmt tap gegn Bosníu og Hersegó- vínu í fyrsta leik í undan- keppni Evrópumótsins setur Arnar í vonda stöðu. Tölfræði hans er á pari við það versta hjá landsliðinu síðustu 27 árin. hordur@frettabladid.is Fótbolti Það voru gerðar nokkrar væntingar til íslenska liðsins fyrir leikinn í Bosníu og Hersegóvínu. Þjálfarateymið og leikmenn höfðu talað um að stefnan yrði sett á Evr- ópumótið í Þýskalandi á næsta ári, tapið gegn Bosníu þarf ekki endilega að vera heimsendir fyrir þær vonir en tapið setur hlutina þó í samhengi. Íslenska liðið virðist vera langt frá þeim styrkleika sem Bosnía hefur eins og staðan er í dag, Bosnía er næststerkasta lið riðilsins. Ljóst er að erfitt verður að selja íslensku þjóðinni að liðið sé í framför undir stjórn Arnars eftir þennan leik. Sannfærandi sigur gegn Liechten- stein og frábær gluggi í júní þegar Slóvakía og Portúgal koma í heim- sókn í Laugardalinn er eina von Arnars. Fimm sigurleikir hjá Arnari Arnar Þór Viðarsson hefur unnið fimm leiki í starfi sem landsliðs- þjálfari, sigurhlutfall hans er aðeins um 17 prósent. Er það næstversti árangur landsliðsþjálfara ef tölfræð- in er skoðuð aftur til ársins 1996. Sigrarnir fimm hafa komið gegn Færeyjum, San Marínó, Venesúela og Liechtenstein í tvígang. Segja má að eini sigurleikurinn sem var ekki gegn mun slakari þjóð hafi verið gegn Venesúela, aðrir leikir hafa verið skyldusigrar. Liðið hefur náð í mörg jafntefli en ekki fundið leiðir til þess að vinna leiki gegn svipað sterkum þjóðum eða ögn sterkari undir stjórn Arnars. Aðeins Eyjólfur Sverrisson er með verri árangur en Arnar þegar síðustu landsliðsþjálfarar eru skoð- aðir, Eyjólfur vann aðeins rúm 14 prósent af sínum leikjum sem þjálf- ari. Síðasti leikur hans í starfi var gegn Liechtenstein þar sem Ísland tapaði, næsti leikur Íslands undir stjórn Arnars Þórs er á sunnudag gegn þessum sama andstæðingi. Árangur Ólafs ekki svo slæmur Ólafur Jóhannesson var mjög umdeildur í starfi landsliðsþjálfara, sigurhlutfall hans var samt 28 pró- sent sem þætti ágætt eins og staðan er í dag. Ólafur stóð í stappi við fjöl- miðla og var umdeildur á meðal þeirra á meðan hann var í starfi. Erik Hamrén sem fékk oft yfir sig fúkyrðaflaum var svo með 32 pró- senta sigurhlutfall, Hamrén var nokkrum mínútum frá sæti á Evr- ópumótinu árið 2021. Sagan mun fara ágætlega með Hamrén þegar fram líða stundir. Enginn toppar Heimi Hallgríms Tölfræði Heimis Hallgrímssonar með liðið er sú besta sem sést hefur, Heimir og Lars Lagerbäck náðu undraverðum árangri með íslenska landsliðið sem komst á Evrópu- mótið árið 2016. Heimir tók svo einn við þjálfun liðsins og bætti um betur, hann vann 47 prósent af landsleikjum sínum með liðið og stýrði því á Heimsmeistaramótið í Rússlandi árið 2018. Guðjón Þórðarson hafði fram að því verið í sérflokki en Guðjón vann 44 prósent af leikjum sínum með íslenska landsliðið frá 1997 til ársins 1999. n Tölfræði Arnars á pari við það versta sem þekkist Arnar Þór Viðarsson (2020-) n 17 prósenta sigurhlutfall n 30 leikir n 5 sigrar n 13 jafntefli n 12 töp Erik Hamrén (2018-2020) n 32 prósenta sigurhlutfall n 28 leikir n 9 sigrar n 5 jafntefli n 14 töp Heimir Hallgrímsson (2016-2018) n 47 prósenta sigurhlutfall n 26 leikir n 12 sigrar n 4 jafntefli n 10 töp Lars Lagerbäck og Heimir Hallgrímsson (2011-2016) n 40 prósenta sigurhlutfall n 52 leikir n 21 sigur n 10 jafntefli n 21 tap Ólafur Jóhannesson (2007-2011) n 28 prósenta sigurhlutfall n 39 leikir n 11 sigrar n 9 jafntefli n 19 töp Eyjólfur Sverrisson (2005-2007) n 14,3 prósenta sigurhlutfall n 14 leikir n 2 sigrar n 3 jafntefli n 9 töp Ásgeir Sigurvinsson og Logi Ólafsson (2003-2005) n 25 prósenta sigurhlutfall n 24 leikir n 6 töp n 5 jafntefli n 13 töp Atli Eðvaldsson (1999-2003) n 36,6 prósenta sigurhlutfall n 30 leikir n 11 sigrar n 5 jafntefli n 14 töp Guðjón Þórðarson (1997-1999) n 44 prósenta sigurhlutfall n 25 leikir n 11 sigrar n 6 jafntefli n 8 töp Logi Ólafsson (1996-1997) n 28,5 prósenta sigurhlutfall n 14 leikir n 4 sigrar n 3 jafntefli n 7 töp Tölfræði landsliðsþjálfara frá 1996: 16 íþróttir FRÉTTABLAÐIÐ 25. mARs 2023 LAUGArDAGUr

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.