Fréttablaðið - 25.03.2023, Qupperneq 18
Sýningin er fyrir alla og
um að gera að taka
krakkana með, ekki
spurning.
Átján
mánuðum
síðar er
hún svo
komin í
veikinda-
orlof.
Um helgina |
Við mælUm með |
bjork@frettabladid.is
Í dag, laugardag, verður
mikið um dýrðir í Reiðhöll-
inni Víðidal þar sem haldinn
er dagur reiðmennskunnar
og að kvöldi er stórsýning
Fáks og veisla hestafólks.
bjork@frettabladid.is
Ei na r Gí sla son, f r a m-
kvæmdastjóri Fáks, segir
sý ning una hafa ver ið
haldna í þó nokkur ár en
fyrir nokkrum árum hafi
dagur reiðmennskunnar bæst við.
„Fyrir nokkrum árum var ákveð-
ið að gera meira úr sýningunni
og gera hestamennskunni hærra
undir höfði með því að vera með
hálfgerðan menntadag yfir dag-
inn.“
Skipulögð dagskrá hefst klukkan
10 þegar reiðkennaraefni Hóla-
skóla sýna listir sínar.
„Þar koma fram þriðja árs nemar
Háskólans á Hólum, reiðkennara-
efni Hólaskóla í tveggja tíma sýn-
ingu þar sem þau koma fram með
nokkur þemu.“
Að því loknu er það Sarah Seifert,
þjálfari í klassískri barokk-reið-
mennsku sem leiðbeinir tveimur
nemendum í gegnum barokk-
æfingar.
„Svo mæta þau Julio Borba,
reiðmeistari frá Portúgal, og Olil
Amble, frá Gangmyllunni í Syðri-
Gegnishólum. „Þau ætla að sýna
yfirlínu og gangskiptingar með
mörgum okkar færustu þjálfurum
og sýnendum.“
Stórsýning fyrir alla
Einar var í óðaönn að undirbúa
daginn í Reiðhöllinni þegar við
náðum tali af honum og leyndi
eftirvæntingin sér ekki.
„Þetta verður alveg frábær dagur
og einstaklega fróðlegur fyrir alla
hestamenn,“ segir hann en bætir
við að stórsýningin sem hefst
klukkan 20.30 um kvöldið geti
höfðað til allra.
„Sýningin getur höfðað til allra,
þar verða þriggja mínútna atriði
þar sem fólk sýnir það besta sem
hesturinn þeirra hefur upp á að
bjóða. Um 70 hestar koma fram
og verður mikið um dýrðir,“ segir
Einar og nefnir sérstaklega 20
kvenna hóp frá Fáki.
„Það eru Töltslaufur, 20 konur
sem hafa verið að æfa að ríða í
slaufur og sýna afraksturinn. Þær
eru alltaf í búningum og leggja
mikið í atriðið sem hefur alltaf
vakið mikla lukku.“
Hestamenn fagna um kvöldið
Ungmenni Fáks og sýnendur af
öllu landinu sýna jafnframt listir
sínar á þessari vinsælu sýningu og
hvetur Einar alla sem hafa gaman
af fallegum hrossum og f lottri reið-
mennsku til að koma.
„Sýningin er fyrir alla og um að
gera að taka krakkana með, ekki
spurning,“ segir hann aðspurður.
Að sýningu lokinni halda þeir
Bóas Gunnarsson og Dagur Sig-
urðsson uppi stemningunni í
veislusalnum og segir Einar þá hafa
slegið algjörlega í gegn í fyrra.
„Það var frábært partí. Þetta er
viðburður sem enginn hestamað-
ur má láta fram hjá sér fara,“ segir
hann að lokum um leið og hann er
rokinn í að klára að stilla upp fyrir
stórsýningu. n
Veisla hestafólks í Víðidal
Smiðjan er rými
á Hótel Marina
sem nýta á til
að bjóða lista-
mönnum að
koma sköpun
sinni á framfæri
sér að kostn-
aðarlausu.
mynd/aðsend
Á Stórsýningu Fáks sem verður í Reiðhöllinni í Víðidal í kvöld verður hægt að
sjá um sjötíu hross og knapa þeirra leika listir sínar. mynd/aðsend
bjork@frettabladid.is
Í dag, laugardag, verður í fyrsta sinn
boðið upp á fatamarkað í Smiðj-
unni, nýju rými á Berjaya Reykja-
vík Marina Hotel. Frá klukkan 14 til
18 verður hægt að skoða og kaupa
fatnað og aukahluti úr skápum
hóps kvenna í takt við tónlist og
tilboð á drykkjum.
Um er að ræða rými þar sem ætl-
unin er að bjóða listafólki að koma
vörum og list sinni á framfæri, því
að kostnaðarlausu.
Það er fjölbreyttur hópur kvenna
sem stendur að fatamarkaðnum og
segjast aðstandendur spenntir að
sjá hvernig til tekst.
Það verður alls konar varningur í
boði, föt, skart og aukahlutir. Einn-
ig verður plötusnúður á staðnum og
svo er auðvitað alltaf happy hour á
Slippbarnum frá klukkan 15 til 18.
„Við vorum að kynna nýjan kok-
teila- og matseðil, þannig að það
verða nýjar og spennandi veitingar
í boði fyrir þyrsta og svanga,“ segir
Catia Andreia De Brito Pereira, við-
burðastjóri staðarins.
Smiðjan er komin til að vera og
verða listsýningar og viðburðir í
rýminu frá miðjum apríl og fram í
miðjan júlí.
Næsta miðvikudag verður til að
mynda opnaður markaður List-
forms sem sérhæfir sig í gerð nytja-
og hönnunarvara með verkum og
formum eftir íslenska myndlistar-
menn og stendur hann í tvo daga.
Ljóst er að listunnendur ættu
að fylgjast með Smiðjunni næstu
vikur og mánuði. n
Fatamarkaður á Hótel Marina
Í upphafi árs tóku gildi lög um sorgarorlof ætlað
foreldrum sem missa barn undir átján ára aldri.
Tillaga til breytinga á frumvarpinu liggur nú
fyrir Alþingi og er til umsagnar í nefnd. Ganga
breytingarnar út á að foreldri barna undir átján
ára sem missir maka eigi sama rétt.
Við höfum öll heyrt flugliða leiðbeina farþegum um
að falli súrefnisþrýstingur á flugi skuli setja súrefnis-
grímu fyrst á sig og í framhaldi á barnið. Ástæðan er
sú að án grímunnar erum við sjálf ófær um að aðstoða
barnið en þessar leiðbeiningar má yfirfæra á ýmsar
hliðar lífsins.
Iðunn Dögg Gylfadóttir sem segir átakanlega
sögu sína í viðtali í þessu tölublaði er talandi dæmi
um móður sem nauðbeygð er til að halda grímulaus
áfram með lífið. Hún fer til vinnu nokkrum vikum
eftir skyndilegt fráfall eiginmannsins enda orðin eina
fyrirvinnan og reikningarnir hætta ekkert að koma
inn um lúguna þótt heimur hennar hafi snúist á hvolf.
Átján mánuðum síðar er hún svo komin í veik-
indaorlof.
Saga Iðunnar er ekkert einsdæmi. En svo foreldrar í
hennar stöðu geti verið börnum sínum stoð og stytta
verða þeir að fá færi á að byggja sjálfa sig upp. Í hennar
tilfelli hefði nokkurra mánaða sorgarorlof breytt
miklu, fyrir hana og drengina hennar tvo. n
Súrefnisgrímuna fyrst á þig
B59 hóteli
Óhætt er að mæla með hótelinu B59
í Borgarnesi sem stendur við Borg-
firðingabraut, gegnt Nettó. Hótelið
er afar snyrtilegt með nýmóðins
innréttingum. Morgunmaturinn er
fyrirtak og á staðnum er eins konar
lítil mathöll með veitingastað,
freyðivínsbar og skyrbar. Rúsínan í
pylsuendanum er svo spa í kjallar-
anum, með þremur mismunandi
eimböðum, vaðlaug, nuddpotti og
bekkjum til að slaka á.
Ostborgarahelgi
Á hamborgarastaðnum Plan B
Smassburger má alltaf finna afar
gómsæta borgara á góðu verði en
um helgar eru þeir á sérstaklega
góðu verði. Plan B býður upp á ost-
borgara á 550 krónur um helgar en
borgarinn er klassískur, með lauk,
súrum gúrkum, tómatsósu og sinn-
epi. Á Plan B eru einnig á matseðli
ljúffengir veganborgarar með djúp-
steiktu vegan buffi, vegan osti og
sósu. n
18 helgin FRÉTTABLAÐIÐ 25. MARS 2023
lAUgARDAgUR