Fréttablaðið - 25.03.2023, Page 26

Fréttablaðið - 25.03.2023, Page 26
Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit- stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Guðmundur Hilmarsson, gummih@frettabladid.is s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is, s. 550 5767 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768 Útgefandi: Torg ehf Ábyrgðarmaður: Jón Þórisson Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103. Augnbotnahrörnun er algengasta orsök lögblindu hjá fólki sem er 50 ára og eldra en tengsl augnbotna- hrörnunar við þau næringarefni sem fólk innbyrðir hafa verið mikið rannsökuð. Ein umfangsmesta augnrannsókn sem framkvæmd hefur verið í Bandaríkjunum, svokölluð AREDS2-rannsókn, var gerð á hópi fólks sem fékk lítið af náttúrulegum litarefnum í gegnum mataræði sitt, sem finnast meðal annars í grænkáli og spínati. Sá hluti hópsins sem fékk fæðubót til inn- töku með þessum efnum var 25% ólíklegri til þess að þróa með sér augnbotnahrörnun en viðmiðunar- hópurinn sem fékk ekki fæðubót. Lilja Jónasdóttir er 72 ára hjúkr- unarfræðingur á eftirlaunum sem greindist fyrir tilviljun með aldurs- tengda augnbotnahrörnun þegar hún var sextug. „Ég veit svo sem að það er stað- reynd að sjúkdómurinn hrjái mig en með því að taka AstaEye töflurnar góðu og nota sólgleraugu hef ég ekki orðið vör við að hann hafi nein áhrif á lífið mitt,“ segir Lilja og bætir við: „Foreldrar mínir voru bæði með þennan sjúkdóm og pabbi orðinn næstum blindur. Amma var líka orðin alveg blind þegar hún varð eldri, en ég veit nú reyndar ekki hvaða sjúkdómur olli því,“ segir Lilja, sem fyrir tilviljun greindist með sjúkdóminn. Varð heilmikið um „Það var í gangi einhver öldrunar- rannsókn sem ég fór í fyrir mörgum árum. Þar var heilmargt skoðað og þar á meðal augun. Í þessari rannsókn kom í ljós að ég var með aldurstengda augnbotnahrörnun. Mér varð heilmikið um að fá þessa niðurstöðu því mér fannst ég vera ung. Ég sá pabba fyrir mér sem var orðinn hálf ósjálfbjarga en sjúk- dómurinn var langt genginn hjá honum. Ég fór strax til augnlæknis sem sagði að það væri ekkert hægt að gera. Mögulega væri þó hægt að hægja á þróun sjúkdómsins með því að taka inn fæðubótarefni sem væri byggt upp samkvæmt AREDS2- formúlunni,“ segir Lilja. Lilja segist hafa byrjað strax að taka inn fæðubótarefni byggð á AREDS2-formúlunni. „Ég hef aðlagast þessu og gleymi því dags- daglega að ég sé með undirliggjandi augnbotnahrörnun. Núna nýt ég lífsins á þann hátt að ég horfi á útsýnið og segi við sjálfa mig: Ég ætla aldeilis að njóta þess í dag. Þegar ég frétti að AstaEye væri komið á markað þá vildi ég frekar taka það þar sem það er íslenskt, auk Augnbotnahrörnun er algengasta orsök lögblindu hjá fólki sem er 50 ára og eldra og hefur slæm áhrif á lífsgæði fólks. Venjuleg sjón Augnbotnahrörnun Lilja segist handviss um að bætiefnið AstaEye hafi dregið úr framgangi sjúkdómsins. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Ég veit svo sem að það er staðreynd að sjúkdómurinn hrjái mig en með því að taka AstaEye töflurnar góðu og nota sólgleraugu hef ég ekki orðið vör við að hann hafi nein áhrif á lífið mitt Lilja Jónasdóttir Bætiefnið AstaEye. þess sem það inniheldur viðbætt astaxanthin sem er talið vera gott fyrir augun. Ég er þess handviss að AstaEye hafi dregið úr framgangi sjúkdómsins. Augnlæknirinn sem ég er í reglulegu eftirliti hjá er meira að segja undrandi á hvað breyt- ingin hefur verið hægfara á augn- botnahrörnuninni,“ segir Lilja. Ódýrara og þægilegra að vera í áskrift AstaEye uppfyllir öll þau viðmið sem AREDS2-rannsóknin byggir á og meira til því AstaEye inni- heldur einnig astaxanthin, sem er eitt öflugasta andoxunarefni náttúr unnar. Astaxanthin dregur úr bólgum í líkamanum og hefur auk þess góð áhrif á húðina sem og augun. Astaxanthinið í AstaEye er náttúrulegt og framleitt á Íslandi úr þörungum. Lilja segist fremur vilja kaupa íslenskar vörur og að AstaEye sé ódýrara en þau efni sem hún keypti áður. Þá sé góð viðbót að efnið innihaldi astaxanthin auk AREDS2-formúlunnar. Lilja bendir einnig á ágæti þess að vera í beinni áskrift að AstaEye hjá Saga Natura. „Það er bæði ódýrara og þægi- legra að fá það sent beint heim að dyrum og þurfa ekki að muna eftir því að fara í búðinaog kaupa það. Ég er líka mjög ánægð með að fá það í áfyllingarpokum og endur- nýta bara áldósina sem ég keypti í byrjun.“ n 2 kynningarblað A L LT 25. mars 2023 LAUGARDAGUR

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.