Skessuhorn - 09.11.2022, Blaðsíða 1
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 45. tbl. 25. árg. 9. nóvember 2022 - kr. 950 í lausasölu
Ert þú í áskrift?
Sími 433 5500
www.skessuhorn.is
Opið
alla
daga
ársins
Þinn árangur
Arion
Kökukerð er list
Heiðrún Lára Tómas
dóttir er 28 ára köku
skreytir á Akranesi.
Hún er afar listræn en
ásamt því að vera með
þrjár diplómur í köku
skreytingum er hún
förðunar fræðingur
frá Mood make up
school. Hún segir það þó ekki eiga vel við
sig að sitja á skólabekk. „Það hentar mér vel
að vinna og mér finnst lang skemmtileg
ast að vinna á fótunum því ég þarf að vera
aktív allan daginn. Ég er ekki skólakona,“
segir Heiðrún. Hún vinnur nú í Kallabakaríi á
Akranesi þar sem hún bakar og skreytir sínar
eigin kökur, Heiddukökur.
Sjá bls. 16-17
Lokað fyrir fjallgöngur
Eigendur lands að Kirkju
felli í Grundarfirði, í sam
ráði við bæjaryfirvöld og
fleiri, hafa nú ákveðið
að banna uppgöngu á
fjallið. Gildir bannið fram
yfir varptímann 15. júní
2023. Þetta var ákveðið
í ljósi tíðra og alvarlegra
slysa sem orðið hafa í fjallinu á nýliðnum árum.
„Mikil slysahætta skapast á fjallinu að hausti og
vetri, þegar blautt er og snjór og frost er í fjallinu.
Sömuleiðis að vori, þegar gróðurhulan er enn laus
á berginu. Þetta þekkja heimamenn og ganga
ekki á Kirkjufell nema þegar þurrt er og aðstæður
góðar,“ er meðal þess sem fram kemur í yfirlýsingu
sem landeigendur sendu frá sér í gær.
Sjá bls. 6
„Og svo er maður bara rekinn!“
Rebecca Cathrine Kaad Osten
feld býr á Hólum í Hvammssveit í
Dölum ásamt eiginmanni sínum
og þremur börnum, en þar rekur
hún einnig dýragarð og dýra
athvarf. Síðustu rúm tíu ár hefur
hún unnið í einu matvöruverslun
inni sem starfrækt er í Búðardal en
sú verslun hefur á þeim tíma verið
undir merkjum Samkaupa, sem Samkaup strax, Kjör
búðin og nú Krambúðin. Mánudaginn 31. október
var Rebeccu sagt upp störfum, fyrirvaralaust, vegna
skipulagsbreytinga innan fyrirtækisins. Rebecca segist
í viðtali við Skessuhorn átta sig á því núna að hún hafi
ekki verið metin að verðleikum á vinnustaðnum en
hún mátti sæta leiðinlegri framkomu frá yfirmanni og
samstarfsfólki, sem hún veit núna að var hreint einelti.
Sjá bls. 18-19
Tónlistarhátíðin Heima-Skagi fór fram á laugardagskvöldið í gamla bænum á Akranesi og mátti sjá fólk á röltinu út um allan Neðri-Skagann langt fram á kvöld. Hér má
sjá rokkhljómsveitina Vintage Caravan í ansi góðum gír heima hjá Guðna og Lilju á Skólabraut 20. Nánar um hátíðina og Vökudaga sem lauk um helgina í Skessuhorni
vikunnar. Ljósm. Guðni Hannesson.