Skessuhorn


Skessuhorn - 09.11.2022, Blaðsíða 21

Skessuhorn - 09.11.2022, Blaðsíða 21
MIÐVIKUDAGUR 9. NÓVEMBER 2022 21 Tónlistarhátíðin Heima-Skagi fór fram á laugardagskvöldið í gamla bænum á Akranesi og mátti sjá fólk á röltinu út um allan Neðri-Skag- ann langt fram á kvöld. Undirrit- aður var einn af þeim fjölmörgu sem tóku röltið þetta kvöld og fyrsti við- komustaður var Blikksmiðja Guð- mundar þar sem rokksveitin Vin- tage Caravan sem var stofnuð árið 2006 réð ríkjum. Það er óhætt að segja að kraftur hafi verið í þríeyk- inu en tónlistin þeirra er blanda af klassísku rokki, frumþungarokki og framsæknu rokki. Gárungarnir á staðnum kölluðu þetta blikkmetal rokk en eftir nokkuð lög og smá svekk að hafa ekki heyrt lagið On The Run sem er þeirra þekktasta lag var haldið í Gamla Iðnskólann þar sem Skagasveitin Tíbrá spilaði mest instrumental lög. Þeir fengu þó söngkonuna Brynju Valdimars til að flytja með þeim lagið Street Life sem er þekktast í flutningi Randy Craw- ford. Ekki heyrði ég uppáhaldslagið mitt með Tíbrá sem heitir Peningar af plötunni Í svart-hvítu sem út kom árið 1982 en maður fær ekki allt í líf- inu. Næst var ferðinni heitið á Vita- teig 2 þar sem Herbert Guðmunds- son hélt uppi stuðinu og gerði það ágætlega þó nokkuð væri um endur- tekningar á lögum á þeim bænum en gestir kipptu sér ekki mikið upp við það enda kann Herbert þá iðju að skemmta fólki. Þá var lag að róa sig aðeins niður og því næst hent sér á Rakarastofu Hinriks þar sem vel yfir 30 manns hlustuðu á ljúfsára tóna Lay Low og sungu með henni þegar færi gafst. Söngkonan lét þrengslin ekki á sig fá og nálægðin við listamann- inn var heillandi og áhrifamikil. Síðan var skotist aftur á Vitateiginn og náð síðustu tónum Unu Torfa. Una semur afar persónulega texta og mátti sjá tár á hvarmi gesta sem hlýddu á þessa ungu og efnilegu söngkonu. Kvöldinu lauk svo með tónleikum tónlistarmannsins Jún- íusar Meyvant í Akraneskirkju og var að mati undirritaðs hápunktur hátíðarinnar. Gítarleikarinn Rubin Pollock úr Kaleo spilaði með Júní- usi og elti hann vel í lögunum sem voru jafn góð og Júníus er skemmti- legur. Hann er frábær sögumaður og sagði skemmtilegar sögur úr heimabænum Vestmannaeyjum þar sem bróðir hans og afi komu mikið við sögu. Kirkjan var troðfull af fólki og kunnu áheyrendur vel að meta tónlist Júníusar enda var honum vel fagnað. Undir miðnætti gat fólk lokið leik á Gamla Kaupfélaginu og hlustað á söngkonuna Guðrúnu Árnýju syngja og spila fyrir fólk í fjöldasöng og gekk án vafa ánægt og raddlaust út í nóttina. Niðurstaðan er sú að tónlistar- hátíðin Heima-Skagi 2022 var afar vel heppnuð og góður andi sveif yfir vötnum þar sem fólk gerði sér glaðan dag, hlustaði á tónlist úr öllum áttum og uppgötvaði eflaust margt nýtt. Sjáumst á næsta ári með gleði í hjarta og góðri lyst fyrir tónlist. vaks Heima-Skagi var vel heppnaður Vintage Caravan voru þéttir og þrusugóðir. Ljósm. vaks Hljómsveitin Tíbrá fyllti Gamla Iðnskólann. Ljósm. vaks Herbert sá um að fólk gat ekki labbað í burtu. Ljósm. vaks Lay Low var með ljúfsára tóna á rakarastofunni. Ljósm. vaks Júníus Meyvant og Rubin Pollock tengdu vel saman. Ljósm. vaks Það var oft þröngt á þingi. Ljósm. Guðni Hannesson Hörður Torfason hélt tónleika á ný eftir sjö ára hlé. Ljósm. Ásta Magg Una Torfa söng heima hjá Einari Skúla. Ljósm. Daníel Ágústsson

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.