Skessuhorn


Skessuhorn - 09.11.2022, Blaðsíða 28

Skessuhorn - 09.11.2022, Blaðsíða 28
MIÐVIKUDAGUR 9. NÓVEMBER 202228 Vörur og þjónusta H P Pípulagnir ehf. Alhliða pípulagnaþjónusta Hilmir 820-3722 Páll 699-4067 hppipulagnir@gmail.com S K E S S U H O R N 2 01 8 Fyrir alla vigtun Húsarafmagn Töflusmíði Iðnaðarrafmagn Bátarafmagn Bílarafmagn RAFMAGN vogir@vogir.is Sími 433-2202 VOGIR Bílavogir Kranavogir Skeifuvogir Pallvogir Aflestrarhausar Hönnun prentgripa & alhliða prentþjónusta Dreifi bréf - Boðsbréf Ritgerðir - Skýrslur Reikningar - Eyðublöð Umslög - Bréfsefni Fjölritunar- og útgáfuþjónustan Getum við aðstoðað þig? sími: 437 2360 olgeirhelgi@islandia.is - Meirapróf - Fjarnám - Aukin ökuréttindi Verkleg kennsla/próf; Akranes - Reykjavík,- valkvætt. Upplýsingar á aktu.is og í síma 892-1390. Ökuskóli allra landsmanna GJ málun ehf málningarþjónusta Akravellir 12 - Hvalfj arðarsveit sími 896 2356 301 Akranes gardjons@visir.is Garðar Jónsson málarameistari 1990-2020 30 ár Fréttaveita Vesturlands www.skessuhorn.is Knattspyrnubærinn er hugtak sem svo sannarlega á við um Akranes. Um það vitnar mögnuð saga síð- ustu 100 ára. Árið 2022 var Skaga- fólki vissulega þungt þegar árangur karla og kvenna á knattspyrnuvell- inum er skoðaður, en það kemur ár eftir þetta ár. Vert er þó að nefna tvennt sem ætti að vera til hvatn- ingar og stuðnings knattspyrnunni á Skaganum. „Knattspyrnubærinn“ Fyrst skal nefna að nú eru liðin 100 ár frá stofnun Knattspyrnu- félagsins Kára, en litlu yngra er Knattspyrnu félag Akraness (KA). Þó svo að í árdaga á þriðja áratug síðustu aldar hafi fleiri knattspyrnu- félög verið stofnuð á Akranesi, þá urðu þessi tvö félög lífseig- ust og lögðu grunninn að sigur- sælum Skagaliðum, ómetanlegu æskulýðsstarfi, stolti bæjarbúa og einstakri bæjarsögu. Knattspyrnan var og er alþýðumenning fólks- ins í bænum. Þessum tímamótum knattspyrnunnar hefur í sjálfu sér ekki verið minnst sérstaklega. Því er þó rækilega bjargað með rit- verki Björns Þór Börnssonar, sagn- fræðings, Knattspyrnubærinn, sem er saga knattspyrnunnar á Akranesi og kemur út nú í nóvember. Það er ástæða til þess að vekja sérstaka athygli á þessu framtaki Björns, því bók hans fangar vel áhrif knattspyrnunnar á bæjarlífið, áhrif hennar víða um land og reyndar út fyrir landssteinana. Það er svo sannarlega ástæða til að minnast þessarar merkilegu sögu, sem um leið ætti að vera áskorun um að varðveita og efla þá sterku ímynd Akraness sem knattspyrnan er. Enska deildin Þá skal nefna að nýlega var í sjón- varpi sýndur þáttur sem enskt þáttagerðarfólk gerði um þá eins- töku afreksmenn og atvinnumenn í knattspyrnu sem komið hafa frá Akranesi og spilað í Englandi. Sú staðreynd að tugir leikmanna frá Akranesi hafa leikið sem atvinnu- menn í sterkum deildum í Evrópu hefur reyndar áður vakið athygli sjónvarpsfólks erlendis, en þessi umfjöllun, sem sýnd var á Sky sport og seld til á annað hundrað sjón- varpsstöðva, ber augljóslega með sér að hér er eitthvað sérstakt á ferðinni. Okkar menn í þættinum stóðu vaktina af prýði og bættu vel í þá kynningu og jákvæði auglýsingu, sem fótboltinn á Skaganum hefur skilað samfélaginu. Verðmæti þessarar kynningar verður ekki í fjárhæðum mælt, en ef reiknað væri þá yrði talnarunan löng. Hvert skal halda? Þótt á móti blási á vellinum þessa dagana, þá dylst engum að knattspyrnan er og verður bæj- arsómi, en til þess að styðja við sjálfboðastarf Knattspyrnufélags- ins, aðbúnað ungra sem eldri iðk- enda og til þess að viðhalda þeirri jákvæðu ímynd og stolti sem knattspyrnan hefur skilað sam- félaginu, þarf að gera betur. Nú eru liðin 16 ár frá opnun Akranes- hallarinnar, sem nýst hefur vel, en á þeim tíma sem liðinn er hefur knattspyrnuvöllurinn, mannvirkin og félagsaðstaðan á Jaðarsbökkum rýrnað að gæðum og útliti. Á sama tíma hafa keppinautar okkar víða um land bætt stöðu sína sam- hliða því að hafa rýmri auraráð til reksturs. Það verður eflaust áfram þungur róður að keppa við stærri félög um fjármuni, en aðstaðan verður að taka breytingum þannig að félagsheildin verði í anda þeirra sem áður gerðu garðinn frægan. Afrek á íþróttavellinum gerast ekki fyrir tilviljun heldur þrot- lausa vinnu og ástundun. Til þess að vel takist til þarf aðstöðu sem styður við félagsvitund og áhuga allra. Aðstaðan á Jaðarsbökkum mætir ekki þeim kröfum. Til þess að stuðla að áframhaldandi sterkri ímynd Akraness sem íþrótta- og knattspyrnubæjar er bæjarfélaginu og íþróttahreyfingunni brýnt að sameinast um bætta aðstöðu knattspyrnufélagsins á Jaðars- bökkum. Að glata sterkri ímynd og öflugu æskulýðs- og afreksstarfi er ekki valkostur. Gísli Gíslason Gunnar Sigurðsson Haraldur Sturlaugsson Jón Gunnlaugsson Þröstur Stefánsson Pennagrein Enska deildin, bók og knattspyrnubærinn Greinahöfundar standa hér við söguskilti í Akraneshöllinni sem sýna upphaf Knattspyrnufélagsins Kára og Knattspyrnufé- lags Akraness. F.v. Gísli, Haraldur, Gunnar, Jón og Þröstur.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.