Skessuhorn - 09.11.2022, Blaðsíða 28
MIÐVIKUDAGUR 9. NÓVEMBER 202228
Vörur og þjónusta
H P Pípulagnir ehf.
Alhliða pípulagnaþjónusta
Hilmir 820-3722
Páll 699-4067
hppipulagnir@gmail.com
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
8
Fyrir alla vigtun
Húsarafmagn
Töflusmíði
Iðnaðarrafmagn
Bátarafmagn
Bílarafmagn
RAFMAGN
vogir@vogir.is Sími 433-2202
VOGIR
Bílavogir
Kranavogir
Skeifuvogir
Pallvogir
Aflestrarhausar
Hönnun prentgripa
& alhliða prentþjónusta
Dreifi bréf - Boðsbréf
Ritgerðir - Skýrslur
Reikningar - Eyðublöð
Umslög - Bréfsefni
Fjölritunar- og
útgáfuþjónustan
Getum við
aðstoðað þig?
sími: 437 2360
olgeirhelgi@islandia.is
- Meirapróf - Fjarnám - Aukin ökuréttindi
Verkleg kennsla/próf; Akranes - Reykjavík,- valkvætt.
Upplýsingar á aktu.is og í síma 892-1390.
Ökuskóli allra landsmanna
GJ málun ehf
málningarþjónusta
Akravellir 12 - Hvalfj arðarsveit sími 896 2356
301 Akranes gardjons@visir.is
Garðar Jónsson
málarameistari
1990-2020 30 ár
Fréttaveita Vesturlands
www.skessuhorn.is
Knattspyrnubærinn er hugtak sem
svo sannarlega á við um Akranes.
Um það vitnar mögnuð saga síð-
ustu 100 ára. Árið 2022 var Skaga-
fólki vissulega þungt þegar árangur
karla og kvenna á knattspyrnuvell-
inum er skoðaður, en það kemur ár
eftir þetta ár. Vert er þó að nefna
tvennt sem ætti að vera til hvatn-
ingar og stuðnings knattspyrnunni
á Skaganum.
„Knattspyrnubærinn“
Fyrst skal nefna að nú eru liðin
100 ár frá stofnun Knattspyrnu-
félagsins Kára, en litlu yngra er
Knattspyrnu félag Akraness (KA).
Þó svo að í árdaga á þriðja áratug
síðustu aldar hafi fleiri knattspyrnu-
félög verið stofnuð á Akranesi,
þá urðu þessi tvö félög lífseig-
ust og lögðu grunninn að sigur-
sælum Skagaliðum, ómetanlegu
æskulýðsstarfi, stolti bæjarbúa og
einstakri bæjarsögu. Knattspyrnan
var og er alþýðumenning fólks-
ins í bænum. Þessum tímamótum
knattspyrnunnar hefur í sjálfu sér
ekki verið minnst sérstaklega. Því
er þó rækilega bjargað með rit-
verki Björns Þór Börnssonar, sagn-
fræðings, Knattspyrnubærinn, sem
er saga knattspyrnunnar á Akranesi
og kemur út nú í nóvember. Það
er ástæða til þess að vekja sérstaka
athygli á þessu framtaki Björns,
því bók hans fangar vel áhrif
knattspyrnunnar á bæjarlífið, áhrif
hennar víða um land og reyndar
út fyrir landssteinana. Það er svo
sannarlega ástæða til að minnast
þessarar merkilegu sögu, sem um
leið ætti að vera áskorun um að
varðveita og efla þá sterku ímynd
Akraness sem knattspyrnan er.
Enska deildin
Þá skal nefna að nýlega var í sjón-
varpi sýndur þáttur sem enskt
þáttagerðarfólk gerði um þá eins-
töku afreksmenn og atvinnumenn
í knattspyrnu sem komið hafa frá
Akranesi og spilað í Englandi. Sú
staðreynd að tugir leikmanna frá
Akranesi hafa leikið sem atvinnu-
menn í sterkum deildum í Evrópu
hefur reyndar áður vakið athygli
sjónvarpsfólks erlendis, en þessi
umfjöllun, sem sýnd var á Sky sport
og seld til á annað hundrað sjón-
varpsstöðva, ber augljóslega með
sér að hér er eitthvað sérstakt á
ferðinni. Okkar menn í þættinum
stóðu vaktina af prýði og bættu vel í
þá kynningu og jákvæði auglýsingu,
sem fótboltinn á Skaganum hefur
skilað samfélaginu. Verðmæti
þessarar kynningar verður ekki í
fjárhæðum mælt, en ef reiknað væri
þá yrði talnarunan löng.
Hvert skal halda?
Þótt á móti blási á vellinum
þessa dagana, þá dylst engum að
knattspyrnan er og verður bæj-
arsómi, en til þess að styðja við
sjálfboðastarf Knattspyrnufélags-
ins, aðbúnað ungra sem eldri iðk-
enda og til þess að viðhalda þeirri
jákvæðu ímynd og stolti sem
knattspyrnan hefur skilað sam-
félaginu, þarf að gera betur. Nú
eru liðin 16 ár frá opnun Akranes-
hallarinnar, sem nýst hefur vel, en
á þeim tíma sem liðinn er hefur
knattspyrnuvöllurinn, mannvirkin
og félagsaðstaðan á Jaðarsbökkum
rýrnað að gæðum og útliti. Á
sama tíma hafa keppinautar okkar
víða um land bætt stöðu sína sam-
hliða því að hafa rýmri auraráð til
reksturs. Það verður eflaust áfram
þungur róður að keppa við stærri
félög um fjármuni, en aðstaðan
verður að taka breytingum þannig
að félagsheildin verði í anda þeirra
sem áður gerðu garðinn frægan.
Afrek á íþróttavellinum gerast
ekki fyrir tilviljun heldur þrot-
lausa vinnu og ástundun. Til þess
að vel takist til þarf aðstöðu sem
styður við félagsvitund og áhuga
allra. Aðstaðan á Jaðarsbökkum
mætir ekki þeim kröfum. Til þess
að stuðla að áframhaldandi sterkri
ímynd Akraness sem íþrótta- og
knattspyrnubæjar er bæjarfélaginu
og íþróttahreyfingunni brýnt
að sameinast um bætta aðstöðu
knattspyrnufélagsins á Jaðars-
bökkum. Að glata sterkri ímynd
og öflugu æskulýðs- og afreksstarfi
er ekki valkostur.
Gísli Gíslason
Gunnar Sigurðsson
Haraldur Sturlaugsson
Jón Gunnlaugsson
Þröstur Stefánsson
Pennagrein
Enska deildin, bók og
knattspyrnubærinn
Greinahöfundar standa hér við söguskilti í Akraneshöllinni sem sýna upphaf Knattspyrnufélagsins Kára og Knattspyrnufé-
lags Akraness. F.v. Gísli, Haraldur, Gunnar, Jón og Þröstur.