Skessuhorn - 09.11.2022, Síða 2
MIÐVIKUDAGUR 9. NÓVEMBER 20222
Blóði safnað á
þriðjudaginn
AKRANES: Blóðbankabíll-
inn verður á bílastæðinu við
Stillholt 16-18 á Akranesi
þriðjudaginn 15. nóvember
frá kl. 10:00 - 17:00. Blóð-
bankinn hvetur alla sem mega
gefa blóð til að mæta. -mm
Tæplega tvær
milljónir lítra
LANDIÐ: Markaður með
greiðslumark í mjólk var
haldinn 1. nóvember síðast-
liðinn. Matvælaráðuneytinu
bárust 64 gild tilboð um kaup
og sölutilboð voru 19. Í gildi
er ákvörðun ráðherra um að
hámarksverð skuli vera þrefalt
afurðastöðvaverð, sem við lok
tilboðsfrests var 351 kr. fyrir
hvern lítra. Við opnun til-
boða kom fram jafnvægisverð
sem er jafnt hámarksverði.
Boðið var til sölu greiðslu-
mark tæplega 1,9 milljón
lítra, en óskað var eftir að
kaupa rúmar þrjár milljónir
lítra. Söluverð í þessum við-
skiptum var því 666 milljónir
króna. Sérstök úthlutun til
nýliða er 5% af sölutilboðum,
eða 94.861 lítrar, fjöldi gildra
kauptilboða frá nýliðum voru
sjö. „Sala greiðslumarks fer
nú fram samkvæmt gildum
tilboðum. Matvælaráðu-
neytið mun nú senda öllum
tilboðsgjöfum upplýsingar
um afgreiðslu tilboða og
gera breytingar á skráningu
greiðslumarks þegar uppgjör
hefur farið fram. Upplýsingar
um greiðslumark sitt geta
bændur nálgast í Afurð,“ segir
í tilkynningu. -mm
Ók á stórgrýti
SNÆFELLSN: Seinni part
síðasta fimmtudags varð öku-
maður fyrir því óláni að aka
á stórt grjót á Snæfellsnes-
vegi skammt frá Heydalsvegi.
Bifreiðin var óökuhæf eftir
áreksturinn. Engin slys urðu á
fólki og kom ökumaður á lög-
reglustöð til að gefa skýrslu.
Ekki er vitað hvaðan steinn-
inn kom en tengist líkleg-
ast vegaframkvæmdum sem
voru í gangi á svæðinu. Sama
dag var ökumaður stöðvaður
á Snæfellsnesvegi fyrir að vera
ekki með bílbelti og á von á 20
þúsund krónum í sekt. -vaks
Datt á
rafhlaupahjóli
AKRANES: Rétt fyrir kvöld-
mat á mánudaginn var 13 ára
drengur á ferð á rafhlaupahjóli
úti á götu og fór ofan í holu
með þeim afleiðingum að
hann féll í götuna. Drengurinn
var mikið verkjaður eftir fallið
og var fluttur til aðhlynningar
á HVE til nánari skoðunar. Í
umferðarlögum kemur fram
að rafhlaupahjólum megi ekki
aka á akbraut en lúti að öðru
leyti sömu reglum og reiðhjól
til dæmis hvað varðar öryggis-
búnað. -vaks
Til minnis
Dagurinn í gær, 8. nóvember,
hefur frá árinu 2017 verið helg
aður baráttunni gegn einelti
í skólum landsins. Einelti má
aldrei líðast í neinni mynd. Úti
lokun, niðurlæging og að fá ekki
að tilheyra hópnum er einelti
og okkur öllum ber skylda til að
vinna gegn því, aðstoða þá sem
í því lenda og veita þeim stuðn
ing. Höfum jafnrétti, virðingu og
fjölbreytileika að leiðarljósi.
Veðurhorfur
Á fimmtudag má búast við norð
austan hvassviðri á Vestfjörðum,
en hægari vindur annars staðar.
Víða rigning og sums staðar
slydda um landið norðanvert,
en úrkomuminna suðvestan til.
Á föstudag er útlit fyrir norð
austan 815 m/s á Vestfjörðum
með slyddu eða snjókomu og
hiti um frostmark, en suðlæg eða
breytileg átt annars staðar og
rigning eða slydda með köflum.
Hiti 2 til 7 stig. Á laugardag má
gera ráð fyrir austlægri átt 510,
skýjað með köflum og lítilsháttar
væta en rigning eða slydda á
Vestfjörðum framan af degi. Hiti
2 til 6 stig yfir daginn. Á sunnu
dag verður stíf suðaustlæg átt og
víða rigning, einkum á suðaust
anverðu landinu. Hlýnar heldur.
Vestlendingur
vikunnar
Heiðrún Lára Tómasdóttir köku
skreytir hefur aukið kökuflór
una á Akranesi til muna eftir
að hún fór að bjóða upp á fall
egar og fjölbreyttar kökur eftir
sig í Kallabakaríi. Hún er Vest
lendingur vikunnar að þessu
sinni.
Nova hefur nú sett upp 5G sendi
í Borgarnesi og býður íbúum upp
á áður óþekktan nethraða á svæð-
inu. „Þar með bætist Borgarnes
í hóp þeirra 45 bæjarfélaga sem
hafa aðgang að 5G, en Nova hefur
undanfarin ár komið upp yfir 90
sendum í öllum landshlutum. Óhætt
er að fullyrða að Nova hafi verið
leiðandi í innleiðingu nýjustu tækni
og er komið lengst í uppbyggingu
5G á Íslandi,“ segir í tilkynningu
frá fyrirtækinu. Áætlanir gera ráð
fyrir að árið 2024 verði sendar Nova
orðnir 200 og fjöldi bæjarfélaga með
aðgengi að hraðasta neti í heimi
orðin yfir 60.
Innleiðing 5G í Borgarnesi hefur
í för með sér umtalsvert meiri
afköst og hraðara streymi fyrir
einstaklinga og fyrirtæki á svæðinu,
en 5G skilar að jafnaði 150-200
Mb/s hraða á sekúndu og fer reglu-
lega upp fyrir 1.000 Mb/s. „Þetta
þýðir að þeir íbúar Borgarness sem
eru með tæki sem styðja 5G, eru
með eina hröðustu nettengingu
sem möguleiki er á í dag, hvort
sem er hér heima eða annarsstaðar
í heiminum. Með þessu tryggjum
við Borgnesingum þ.a.l. mjög hratt
streymi, styttri svartíma og niður-
hal á ofsahraða en 5G hraði jafn-
ast á við öflugustu ljósleiðara-
tengingar þar sem þú getur hlaðið
niður allt að 2,3 GB á sekúndu og
svartíminn er undir 10 millisek-
úndur. Við erum mjög ánægð með
að geta boðið okkar viðskipta-
vinum á svæðinu upp á sama hraða
og tíðkast í æ fleiri bæjarfélögum,
þar sem viðbrögðin við 5G inn-
leiðingunni hafa verið hreint frá-
bær,“ segir Benedikt Ragnarsson,
framkvæmdastjóri fjarskipta Nova.
mm
Á fundi í bæjarstjórn Stykkishólms-
bæjar og Helgafellssveitar 27.
október sl. var samþykkt ályktun
vegna Breiðafjarðarferjunnar
Baldurs. Þar var lagt fram svarbréf
Vegagerðarinnar við fyrirspurn frá
2. fundi bæjarráðs varðandi fram-
gang og stöðu mála vegna Breiða-
fjarðarferjunnar Baldurs. Bæjar-
stjórn fagnaði því að Vegagerðin
hefur formlega auglýst eftir nýrri
ferju sem nota eigi til siglinga yfir
Breiðafjörð á meðan að unnið er
að hönnun og smíði nýrrar ferju.
„Vegna áskilnaðar í útboði Vega-
gerðarinnar um leigu á skipi með
kauprétti áréttar bæjarstjórn mikil-
vægi þess að ríkið kaupi ferju á
meðan unnið er að smíði nýrrar
ferju þannig að tryggja megi fyrir-
sjáanleika í ferjusiglingum. Þá
fagnar bæjarstjórn að ákalli bæjar-
stjórnar um bættan viðbúnað til
tryggja betur öryggi sjófarenda
hafi verið mætt með því að stað-
setja dráttarbátinn Gretti sterka í
Stykkis hólmi.“
Þá lagði bæjarstjórn í ályktun
sinni þunga áherslu á að gert verði
ráð fyrir kaupum á nýrri ferju í
fjárlögum fyrir árið 2023 og að
fjármálaáætlanir ríkisstjórnar-
innar og fimm ára samgöngu-
áætlun endurspegli þá framtíðar-
lausn í ferjusiglingum um Breiða-
fjörð að ríkið hanni og smíði nýja
ferju sem hönnuð verður með til-
liti til orkuskipta framtíðarinnar og
nýst gæti sem varaskip fyrir Herj-
ólf. „Án samþykktra áforma og
heimilda í áætlunum ríkisins, þ.m.t.
viðeigandi fjárheimilda, er Vega-
gerðinni ekki tryggður sá rammi
og sú stefnumörkun sem nauðsyn-
leg er til þess að stofnunin geti fest
kaup á nýrri ferju á næsta ári og
hafið undirbúning að hönnun og
smíði nýrrar ferju ásamt nauðsyn-
legum breytingum á hafnarmann-
virkjum. Bæjarstjórn skorar á inn-
viðaráðherra og Alþingi að tryggja
viðeigandi fjárheimildir í fjárlögum
2023 til leigu og kaups á nýju skipi
og að innviðaráðherra og Alþingi
tryggi að framtíðarlausn í ferju-
siglingum með smíði nýrrar ferju
endurspeglist í fjármálaáætlunum
ríkisstjórnarinnar og fimm ára sam-
gönguáætlun.“
mm
Borgarnes komið í hóp bæja
með 5G háhraðanet
Bæjarstjórn vill tryggja
fyrirsjáanleika í ferjusiglingum
Komið með vélarvana Baldur til hafnar í Stykkishólmi. Ljósm. úr safni.
Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið
að veita heilbrigðisstofnunum utan
höfuðborgarsvæðisins 113,5 millj-
ónir króna til kaupa á tækjabúnaði
sem styrkir bráðaþjónustu um allt
land. Ákvörðunin er byggð á til-
lögu viðbragðsteymis um bráða-
þjónustu. Markmiðið er að auka
getu heilbrigðisstofnana til að veita
bráðaþjónustu og stuðla að jafnara
aðgengi að þjónustunni á landsvísu.
Viðbragðsteymi um bráðaþjón-
ustu í landinu hefur undanfarið
skoðað leiðir til að efla og bæta
bráðaþjónustu um allt land, meðal
annars með áherslu á að tryggja
jafnara aðgengi landsmanna. Liður
í því var að skilgreina hvaða bún-
aður þarf að vera fyrir hendi á þeim
starfsstöðvum heilbrigðisstofnana
sem gegna hlutverki bráðamóttöku
en ein slík er í hverju heilbrigðis-
umdæmi. Viðbragðsteymið kann-
aði hvaða stöðvar uppfylltu skil-
greiningu á nauðsynlegum tækja-
búnaði og ástand búnaðarins. Jafn-
framt var gerð kostnaðaráætlun
vegna kaupa á tækjum sem vantaði
eða þyrfti að endurnýja og hljóðaði
hún upp á 113,5 milljónir króna.
Nokkuð misjafnt er eftir heil-
brigðisumdæmum hversu vel
þær eru tækjum búnar. Með fjár-
veitingunni er stefnt að því að jafna
stöðu þeirra og þar með aðgengi
íbúa að bráðaþjónustu hvar sem
þeir búa. Þetta tryggir jafnframt
skjótari viðbrögð við bráðum veik-
indum eða slysum þegar þeirra er
þörf og dregur úr þörf fyrir sjúkra-
flutninga milli heilbrigðisumdæma.
„Vinnu á vegum við-
bragðteymis um bráðaþjónustu
verður haldið áfram og tækjabún-
aður á heilsugæslustöðvum og í
heilsugæsluseljum skilgreindur og
kannaður. Mikilvægt er að tryggja
nauðsynlegan búnað sem víðast á
landinu og þar með jafna aðstæður
til þess að veita bráðaþjónustu eins
og hægt er,“ segir í tilkynningu frá
heilbrigðisráðuneytinu.
mm
Bráðaþjónusta efld um allt land
með bættum tækjabúnaði