Skessuhorn - 09.11.2022, Síða 4
MIÐVIKUDAGUR 9. NÓVEMBER 20224
Garðabraut 2a - Akranesi - Sími: 433 5500 - www.skessuhorn.is
Skessuhorn kemur út alla miðvikudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14.00 á þriðjudögum.
Auglýsendum er bent á að panta auglýsingapláss tímanlega. Skráningarfrestur smá
auglýsinga er til kl. 12.00 á þriðjudögum.
Blaðið er gefið út í 3.700 eintökum og selt til áskrifenda og í lausasölu.
Áskriftarverð er 4.110 krónur með vsk. á mánuði. Elli og örorkulífeyrisþegar greiða
kr. 3.550. Rafræn áskrift kostar 3.220 kr. Rafræn áskrift til elli og örorkulífeyrisþega er 2.968 kr.
Áskrifendur blaðs fá 50% afslátt af verði rafrænnar áskriftar. Verð í lausasölu er 950 kr.
SKRIFSTOFA BLAÐSINS ER OPIN KL. 9-16 VIRKA DAGA
Útgefandi: Skessuhorn ehf. skessuhorn@skessuhorn.is
Ritstjórn:
Magnús Magnússon, ritstjóri s. 894 8998 magnus@skessuhorn.is
Gunnlaug Birta Þorgrímsdóttir gb@skessuhorn.is
Valdimar K. Sigurðsson vaks@skessuhorn.is
Guðrún Jónsdóttir gj@skessuhorn.is
Steinunn Þorvaldsdóttir sth@skessuhorn.is
Auglýsingar og dreifing:
Díana Ósk Heiðarsdóttir auglysingar@skessuhorn.is
Umbrot og hönnun:
Siggi Sigbjörnsson umbrot@skessuhorn.is
Bókhald og innheimta:
Guðbjörg Ólafsdóttir bokhald@skessuhorn.is
Prentun: Landsprent ehf.
Leiðari
Skólar í
fremstu röð
Um miðja síðustu viku tók það að kvisast út að vestlenskir skólar hefðu
verið að gera það verulega gott í íslenska skólaheiminum. Íslensku
menntaverðlaunin eru nokkurs konar uppskeruhátíð þess fólks sem
kemur að starfi í skólum landsins. Áhugaverð verkefni eru tilnefnd og
síðan er það dómnefnd sem vinnur úr þeim og velur verðlaunahafa. Þrír
skólar úr okkar landshlutum voru tilnefndir, hver á sínu skólastigi. Akra-
sel á Akranesi í flokki leikskóla fyrir áherslu í umhverfismálum, Grunn-
skóli Snæfellsbæjar fyrir áherslu á kennslu í átthagafræði og loks fékk
Menntaskóli Borgarfjarðar sérstök hvatningarverðlaun fyrir metnaðar-
fulla námskrá.
Ég vil nota þetta tækifæri til að óska hlutaðeigandi skólum til ham-
ingju með glæsilegan árangur. Það er ánægjulegt að fá þarna staðfestingu
á að allir eru þessir skólar, hver á sinn hátt, að vinna brautryðjendastarf
sem eftir er tekið á landsvísu. Gott starf í skólum er nefnilega óendan-
lega mikil vægt. Við felum jú skólastofnunum umsjón og fræðslu barn-
anna okkar og ef við vitum að það starf sé gert af metnaði og áhuga
getum við andað léttar. Sjálfkrafa gerist svo, þegar einn skóli er verð-
launaður, þá smitar það út til annarra því auðvitað vilja allir gera sem
best þeir geta og kunna.
Nú vill það svo vel til að hér í Skessuhorni hafa verið sagðar nokkrar ef
ekki margar fréttir af þeim verkefnum sem nú voru að vinna til verðlauna.
Grunnurinn að þeim verðlaunum sem Grunnskóli Snæfellsbæjar vann
nú má til dæmis rekja til fyrstu ára aldarinnar, þegar Haukur Þórðar-
son frá Ölkeldu var að kenna nemendum sínum í Lýsuskóla. Hann tók
sig til með aðstoð nemenda sinna og saman virkjuðu þeir bæjarlækinn.
Til varð rafmagn, ljóstíra á peru. Ég man svo vel eftir fréttum hjá okkur
í Skessuhorni á sínum tíma um þetta framtak sem þótti stórmerkilegt
enda vann það þá þegar til verðlauna. Síðan var þessi áhersla á náttúruna
og umhverfið víkkuð út og árið 2009 var samin námskrá um átthagafræði
í sameinuðum grunnskólum Snæfellsbæjar. Með þessari fræðslu er lögð
áhersla á að unga fólkið kynnist sinni heimabyggð; náttúru, atvinnulífi
og menningu, því saman virkar þetta sem ein heild. Afraksturinn verður
síðan sá að nemendur þekkja umhverfi sitt betur en ella og verða því
miklu líklegri til að kjósa að setjast þar að þegar annarri skólagöngu
lýkur.
Í Menntaskóla Borgarfjarðar hefur á þessu ári sömuleiðis verið unnið
mikið að þróun og breytingu námskrár. Allt hefur verið lagt í sölurnar
til að gera námið lifandi og skemmtilegra en ella. Skólinn er ekki gamall
í árum talið en ákveðið var í upphafi að hann skyldi einatt vera í farar-
broddi. Skólinn var til dæmis sá fyrsti til að innleiða að allir nemendur
hefðu fartölvu sér við hönd og framsetning náms og miðlun var því með
öðru sniði. Nú er unnið að breytingum til að búa nemendur sem best
undir líf og störf í samfélagi sem sífellt er að taka breytingum. Hvort
sem horft er til fjórðu iðnbyltingarinnar, umhverfismála eða heimsmark-
miða Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun. Lýðfræðilegar áskoranir
kalla á aukna nýsköpun á öllum sviðum mannlífs og samfélags og skólinn
vill einfaldlega fylgja þeirri þróun, ekki sitja eftir. Ef til vill má segja að
skólinn hafi meiri snerpu en aðrir skólar í ljósi smæðar sinnar, en ekki
síst vegna þess að það er hreinlega stefnan að vera síkvikur og lifandi
skóli. Þá gildir ekki að vera með staðnaða námskrá, því þá velja ung-
mennin auðvitað að fara annað til náms.
Ég gleðst fyrir hönd skólanna okkar fyrir þessa glæsilegu viður-
kenningu sem þeir fá með Íslensku menntaverðlaunum. Gildi góðrar
menntunar og framúrskarandi skóla verður seint ofmetið í samfélagi
okkar. Nú höfum við staðfestingu á að víða er hér unnið af metnaði og
skarað framúr á landsvísu.
Magnús Magnússon
Margir kannast við Ensku húsin
sem standa við Langá á Mýrum
um 7 kílómetra vestur af Borgar-
nesi. Síðastliðin sextíu ár hafa
þau verið í eigu fjölskyldu Ragn-
heiðar G. Jóhannesdóttur og eigin-
manns hennar Stefáns Ólafssonar
á Litlu-Brekku. En nú hefur orðið
breyting á því og Eyja fjárfestingar-
félag, sem er í eigu Birgis Þórs
Bieltvedt og Eyglóar Bjarkar Kjart-
ansdóttur, hefur fest kaup á hús-
unum og því landi sem þeim til-
heyrir. Þau eru einnig eigendur
nágrannajarðarinnar Langárfoss.
Elsta veiðihús landsins
Langá rennur með löndum jarðar-
innar Ánabrekku þar sem Ragn-
heiður er fædd og uppalin. Faðir
hennar var Jóhannes Guðmunds-
son og hafði hann ásamt konu sinni
Ásu Ólafsdóttur keypt veiðiréttindi
árinnar og veiðihúsið gamla á
árunum 1943-1964 í áföngum. Það
er elsti hluti Ensku húsanna í dag
og var nýtt sem veiðihús til ársins
1998, en eftir það sem gistiheimili.
Gamla húsið var byggt árið
1884 af Pétri Péturssyni snikk-
ari á Langárfossi sem bjó svo þar í
um það bil tíu ár ásamt fjölskyldu
sinni. Þá flutti hann til Vestur-
heims og seldi húsið og jörðina sr.
Einari Friðgeirssyni presti á Borg.
Á þeim tíma voru erlendir veiði-
menn farnir að sækja í að veiða í
íslenskum ám og Einar sá sér leik
á borði og keypti allan veiðiréttinn
í ánni og leigði hana út. Við það
tækifæri breytti hann íbúðarhúsi
Péturs í veiðihús. Þetta gerist fyrir
aldamótin 1900 svo líklega er húsið
elsta veiðihús landsins.
Miklar
endurbætur gerðar
Þess má geta að Stefán á Litlu-
Brekku er reyndur smiður. Ekki síst
hefur hann sérhæft sig í að gera upp
gömul hús. Má þar nefna Hvamms-
kirkju í Norðurárdal, Reykholts-
kirkju, Akrakirkju á Mýrum og
Borgarkirkju í Borgarhreppi auk
gamla íbúðarhússins í Galtarholti
í sömu sveit og fleiri. Hann hefur
gegnum tíðina gert miklar endur-
bætur á Ensku húsunum auk við-
bygginga og hafa þau verið nýtt
undir ferðaþjónustu síðast liðinn
aldarfjórðung eða svo.
gj
Hæstiréttur kvað síðastliðinn
miðvikudag upp dóm í þremur
skerðingarmálum sem einstaklingar
höfðuðu fyrir hönd Gráa hersins
gegn ríkinu. Hæstiréttur staðfesti
dóma Héraðsdóms í málunum,
en í héraði var ríkið sýknað af
kröfum þremenninganna. Hér-
aðsdómur taldi að lífeyrisréttur-
inn í almannatryggingakerfinu
væri stjórnarskrárvarinn en gerði
ekki athugasemdir við fyrirkomu-
lagið sem ríkið notar við greiðslur
ellilífeyris. Það gerir Hæstiréttur
heldur ekki. Það er því niðurstaðan
á þessum tveimur dómstigum að
skerðingarnar eins og þær eru not-
aðar í almannatryggingakerfinu séu
í samræmi við lög og stjórnarskrá.
Ingibjörg H Sverrisdóttir, ein
þremenninganna sem höfðaði
málið fyrir hönd Gráa hersins,
segir niðurstöðu Hæstaréttar von-
brigði vegna þess að þau hafi haft
væntingar um að það yrði hægt að
hrinda því óréttlæti sem fjöldi eldra
fólks býr við í almannatrygginga-
kerfinu. Sjálf þurfi hún að greiða
74% jaðarskatt. „Það er ekkert
skrítið að maður upplifi það sem
óréttlæti. Ef ég vinn fyrir meiru en
200.000 krónum á mánuði, sem er
heimilt að gera, þarf ég að greiða
74% skatt af því sem er umfram,“
segir hún í samtali við vefinn Lifðu
núna. Ingibjörg segir að fjöldi fólks
í samfélaginu sé í sömu stöðu og
hún. „Ég borga skatt í miðþrepi
af 200.000 krónunum, en um leið
og ég fer fram yfir það er ég komin
í allt aðra skattprósentu en fólk í
samfélaginu almennt.“ Ingibjörg
segir að lögmenn Gráa hersins eigi
eftir að fara betur yfir málin og eitt
af því sem komi til álita sé að skjóta
þeim til Mannréttindadómstólsins í
Strassburg.
mm
Grái herinn tapaði
skerðingarmálunum í Hæstarétti
Ensku húsin
skipta um eigendur
Ensku húsin, elsti hlutinn fyrir miðju myndar. Ljósm. gj.
Ensku húsin við Langá. Ljósm. úr safni.
Oran Campel, skoskur aðalsmaður við veiðar á bökkum Langár. Hann keypti
húsin um aldamótin 1900 og átti þau í rúmlega 20 ár. Ljósm. úr safni.
Hús Hæstaréttar.