Skessuhorn - 09.11.2022, Síða 7
MIÐVIKUDAGUR 9. NÓVEMBER 2022 7
Dagskrá
1) Setning samkomunnar
2) Ávarp fulltrúa bæjarins.
Ávarp fulltrúa Skógræktar
félags Íslands
3) Hópsöngur
4) Skógræktarfélag Akraness í
80 ár Stutt samantekt
5) Veitingar í boði félagsins
6) Framtíð skógræktar á Akra
nesi. Að hverju skal stefna?
Stutt umfjöllun hvers fulltrúa
og síðan umræður. Fulltrúar
félagsins fulltrúar bæjarins
fulltrúar Skógræktarfélags
Íslands
7) Fyrirspurnir/umræður
8) Hópsöngur/fundarslit
Allir hjartanlega velkomnir
Skógræktarfélag Akraness
fagnar 80 ára afmæli sínu
Afmælisfundur í Jónsbúð
mánudaginn 21. nóvember kl. 18
Atvinnu-, markaðs-, og menningarálanefnd býður til súpufundar
fyrir atvinnurekendur í Borgarbyggð. Tilgangur fundarins er að
auka samtal milli atvinnulífs og stjórnsýslunnar.
Fundurinn verður haldinn 15. nóvember 2022, kl. 11:00
í Hjálmakletti.
Dagskrá:
Uppbyggingarsjóður Vesturlands
Páll Snævar Brynjarsson framkvæmdastjóri SSV
Kynning á nýju deiliskipulagi atvinnuhúsalóða við Vallarás.
Verkís
Rammasamningar - almennar upplýsingar.
Flosi H. Sigurðsson sviðsstjóri stjórnsýslusviðs
Samferða inn í framtíðina.
Guðveig L. Eyglóardóttir forseti sveitarstjórnar
Umræður
Stefán Broddi Guðjónsson sveitarstjóri
Skráning fer fram á heimasíðu Borgarbyggðar,
www.borgarbyggd.is.
Allir atvinnurekendur í Borgarbyggð velkomnir
TÖLUM SAMAN
SÚPUFUNDUR FYRIR ATVINNUREKENDUR Í BORGARBYGGÐ
Ostar sem framleiddir eru á starfs-
stöð Mjólkursamsölunnar í Búðar-
dal tóku þátt í alþjóðlegri matvæla-
keppni sem fram fór í Herning í
Danmörku um liðna helgi. Nítján
ostar voru sendir til keppni í sjö
flokkum. Garðar Freyr Vilhjálms-
son, framleiðslustjóri MS í Búðar-
dal, segir vörurnar almennt hafa
fengið góða dóma. Nokkrir ostar
unnu til verðlauna. ,,Þetta er alþjóð-
leg keppni en stærsti hluti þátttak-
enda kemur frá Norðurlöndunum.
Cheddar osturinn okkar fékk silfur-
verðlaun í flokki mozzarella- og
cheddarosta en vinsældir hans hér
á Íslandi hafa stóraukist síðustu
árin. Á tíu árum hefur framleiðsla
tífaldast hjá okkur. Því eru áform
um að setja upp nýja og stærri osta-
gerð fyrir Cheddar og Havarti osta
með kryddi í Búðardal á næsta
árinu. Í flokki hvítmygluosta fékk
Bónda brie silfurverðlaun og Dala
brie bronsverðlaun en í þeim flokki
kepptu um 20-30 ostar svo þetta er
mikill heiður. Það er líka ánægju-
legt að fá svona jákvæða endur-
gjöf á vörurnar okkar svo við erum
mjög stolt. Ekki er hægt að fram-
leiða alla þessa flottu osta án þess
að hafa gott hráefni og góðan hóp
starfsmanna, þar koma Dalirnir
sterkir inn,“ segir Garðar í samtali
við Skessuhorn.
Auk ostanna frá Búðardal fékk
MS heiðursverðlaun fyrir Crème
brûlée skyr sitt en fleiri íslenskar
vörur hlutu einnig verðlaun á
hátíðinni. sþ/ Ljóm. aðsendar
Ostar frá MS í Búðardal unnu
til alþjóðlegra verðlauna
Fréttaveita Vesturlands
www.skessuhorn.is
Artur Bartozek ostagerðarmaður í mygluostum. Hann er þarna á milli nýrra ostatanka sem settir voru upp árið 2021 og
gjörbreyttu aðstöðunni til ostagerðar í Búðardal.
Garðar Freyr Vilhjálmsson, framleiðslustjóri hjá MS í Búðardal.
Hvítmygluostar í framleiðslu.