Skessuhorn - 09.11.2022, Page 11
MIÐVIKUDAGUR 9. NÓVEMBER 2022 11
Menntaskóli Borgarfjarðar í
Borgarnesi hlaut hvatningarverð-
laun Íslensku menntaverðlaun-
anna. Verðlaunin eru fyrir fram-
sækna endurskoðun á námskrá skól-
ans. Það var Gerður Kristný rithöf-
undur sem afhenti fulltrúum skól-
ans verðlaunin. Með Braga Þór
Svavarssyni skólameistara voru í för
þau Lilja S. Ólafsdóttir aðstoðar-
skólameistari, Signý Óskars-
dóttir verkefnastjóri skólaþróunar,
Helgi Haukur Hauksson formaður
stjórnar Menntaskóla Borgarfjarðar
og Vilhjálmur Ingi Ríkharðsson
formaður nemendaráðs MB.
Áhersla á skapandi og
greinandi hugsun
Í tilkynningu frá MB segir að
skólinn hafi farið í gerð þessara
breytinga með það að leiðarljósi
að búa nemendur sem best undir
líf og störf í síbreytilegu samfélagi.
Stóru málin í heiminum eru þar
sérstaklega nefnd, eins og fjórða
iðnbyltingin, umhverfismálin og
heimsmarkmið SÞ um sjálfbæra
þróun, ásamt lýðfræðilegum áskor-
unum er kalla á aukna nýsköpun á
öllum sviðum mannlífs og samfélags.
Það gerir skólinn með því að
leggja enn meiri áherslu á að við
útskrift búi ungt fólk yfir hæfni og
eiginleikum til að geta tekið þátt í
að móta nýjar lausnir í góðri sam-
vinnu við aðra og þvert á greinar til
þess að mæta áskorunum í nútíð og
framtíð. Áhersla er lögð á skapandi
og greinandi hugsun, virka þátt-
töku og samfélagslegar tengingar,
tæknilæsi og mat á upplýsingum,
öflun og miðlun þekkingar og upp-
lýsinga með faglegum hætti, sam-
starfs- og samskiptahæfni, þraut-
seigju og mat á eigin framvindu.
Lífsnám og stafræn
hönnun
Kennarar skólans hafa, í víðtæku
samráði, meðal annars við nem-
endur, innleitt svokallað Lífsnám,
sem eru áfangar um það sem
skiptir máli í lífinu að mati nem-
enda; kynlíf, geðheilbrigði, fjár-
mál, umhverfismál, jafnrétti og
mannréttindi. Stafrænni hönnun
og miðlun hefur verið fléttað inn
í alla áfanga og allir nemendur
leggja stund á áfanga þar sem þeir
takast á við vísindi, tækni, verk-
fræði, listsköpun og stærðfræði
(STEAM-áfanga). Þá hefur verið
komið á fót náms- og kennslurými
fyrir fjölbreytta og skapandi vinnu
sem ber heitið Kvikan og hefur
það hlutverk að styðja við nám og
kennslu í öllum áföngum skólans
með aðgengi að tækjum og hug-
búnaði til sköpunar í víðum skiln-
ingi og miðlunar efnis.
Fern önnur menntaverðlaun
voru afhent við sama tækifæri og
sjá má nánar um þetta á heima-
síðu Íslensku menntaverðlaunanna.
https://skolathroun.is/mennta-
verdlaun/ Nánar má fræðast um
skólaþróunarverkefni MB https://
menntaborg.is/skolathroun/
Við þetta má bæta að eins og
fram kemur í annarri frétt hér í
blaðinu þá hlaut Grunnskóli Snæ-
fellsbæjar verðlaun í flokki fram-
úrskarandi þróunarverkefna fyrir
átthagafræðinám sitt.
gj
MB fékk viðurkenningu
fyrir framsækna
endurskoðun námskrár
Fulltrúar MB við afhendingu verðlaunanna á Bessastöðum.
Ljósm. forsetaembættið.
Bragi Þór tekur við verðlaununum fyrir hönd skólans.
Við leitum að metnaðarfullum og drífandi
stjórnanda sem er tilbúinn að leiða virka
skólaþróun og faglegt starf með áherslu á
framþróun, lausnaleit og styrkingu leikskólastigsins
í samvinnu við skóla- og nærsamfélagið.
Á Leikskólanum Sólvöllum eru milli 45-60 börn
á aldrinum 12 mánaða til 4 ára. Sérstök fimm ára
leikskóladeild er rekin undir Grunnskóla Grundarfjarðar
og er samstarf gott á milli skólanna.
Leikskólinn er nú í spennandi vinnu við uppbyggingu
innra starfs, stjórnun og mótun skólanámskrár.
Framundan er endurskoðun á skólastefnu, mótun
á framtíðarsýn og gerð innleiðingaráætlunar með
skýrum viðmiðum um gæði skólastarfs. Hlutverk
leikskólastjóra er mikilvægt í þessari vinnu og gefst hér
tækifæri til að taka þátt í að auka gæði skólastarfs enn
frekar í metnaðarfullu skólaumhverfi.
Starfssvið
Leikskólastjóri hefur faglega forystu um kennslu og
þróun skólastarfs, stýrir og ber ábyrgð á daglegum
rekstri, mannauð og starfsemi leikskólans. Starfar
samkvæmt lögum og reglugerð um leikskóla,
öðrum lögum er við eiga, aðalnámskrá leikskóla og
skólastefnu bæjarins.
Menntunar- og hæfniskröfur
• Kennaramenntun (leyfisbréf) og
kennslureynsla er skilyrði
• Viðbótarmenntun á sviði stjórnunar-
og/eða menntunarfræða er kostur
• Reynsla af rekstri, stjórnun og
stefnumótun er kostur
• Leiðtogahæfileikar, frumkvæði, metnaður
og sjálfstæði í vinnubrögðum
• Færni í mannlegum samskiptum
og þverfaglegu starfi er skilyrði
• Færni í að tjá sig á íslensku, í töluðu
og rituðu máli, er skilyrði
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands
íslenskra sveitarfélaga og Félags stjórnenda leikskóla.
Umsækjendur þurfa að hafa hreint sakavottorð skv.
ákvæðum laga sem um starfið gilda.
Nánari upplýsingar veitir Björg Ágústsdóttir,
bæjarstjóri, í síma 430 8500 eða með því að senda
fyrirspurnir á bjorg@grundarfjordur.is. Umsóknir
sendist á framangreint netfang.
Umsóknum um starfið skal fylgja greinargott yfirlit
um menntun, fyrri störf, meðmælendur og annað sem
umsækjandi telur máli skipta.
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
02
2
Grundarfjarðarbær auglýsir starf skólastjóra
Leikskólans Sólvalla laust til umsóknar
Umsóknarfrestur er til og með 20. nóvember 2022.
Ráðið er í starfið frá 1. janúar nk. eða skv. samkomulagi. Með vísan til
laga um jafnan rétt kynjanna eru öll kyn hvött til að sækja um starfið.