Skessuhorn


Skessuhorn - 09.11.2022, Qupperneq 15

Skessuhorn - 09.11.2022, Qupperneq 15
MIÐVIKUDAGUR 9. NÓVEMBER 2022 15 Þorleifur Geirsson í Borgarnesi hefur nú gefið út Borgarnesdaga- talið 2023. Þetta er þrettándi árgangur. Veggdagatalið prýðir þrettán myndir úr Borgarnesi, teknar í öllum tólf mánuðum ársins. Hægt er að sjá myndirnar á dagatalinu og fá nánari upplýs- ingar á vefslóðinni: www.hvitatra- vel.is/dagatal. Dagatalið fæst einnig í smásölu á Olís í Borgarnesi. mm Björgunarsveitin Klakkur í Grundarfirði keypti á dögunum DJI Matrice 30T dróna til viðbótar við tækjakost sveitarinnar. Drón- inn er afar fullkominn og hentar vel til leitar. Hann er búinn öflugri myndavél með miklum aðdrætti sem og hitamyndavél sem gegnir lykilhlutverki við leitarstörf. Ljóst er að þetta tæki á eftir að nýtast vel fyrir björgunarsveitirnar á Snæ- fellsnesi og jafnvel víðar en liðs- menn Klakks hafa verið duglegir að æfa sig með drónann síðan þeir fengu hann afhentan. tfk Á morgun, fimmtudag klukkan 17, verður haldið útgáfuteiti í Byggðasafninu í Görðum á Akra- nesi vegna útgáfu bókarinnar Knattspyrnubærinn – 100 ára knattspyrnusaga Akraness, eftir Björn Þór Björnsson. Þar verður bókin kynnt og seld á tilboðsverði sem verður 7.500 krónur. „Að sjálf- sögðu eru allir velkomnir og það væri vitanlega gaman að sjá þar sem flesta,“ segir í tilkynningu frá bókaútgáfunni Hólum sem gefur knattspyrnusöguna út. mm Útgáfuteiti með knattspyrnusögunni Björn Þór Björnsson sagnfræðingur kom með eintak af bókinni á ritstjórn Skessu- horns fyrir helgi. Ljósm. gó Borgarnes dagatalið 2023 er komið út Aprílmyndin er tekin í Brákarey þar sem vorboðinn Sælaug MB er sjósett. Ljósm. þg. Klakkur fjárfesti í flygildi Þeir Aðalsteinn Valur Grétarsson björgunarsveitarmaður og Andri Ottó Kristinsson formaður Klakks með drónann öfluga.

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.