Skessuhorn - 09.11.2022, Side 22
MIÐVIKUDAGUR 9. NÓVEMBER 202222
Verulega hefur hægst á fasteigna-
markaðnum undanfarið og er þar
stærsti áhrifaþátturinn stýrivaxta-
hækkanir Seðlabankans til að lækka
verðbólguna. Staðan hefur breyst
hratt og fólk sem ætlaði að kaupa
sér eign með því að slá stór lán
heldur að sér höndum nú og bíður
átekta. Það vill sjá hvort ferli vaxta-
hækkana sé lokið og einnig hver
framvinda efnahagsmála verði út
frá gerð kjarasamninga. Skessu-
horn heyrði hljóðið í tveimur fast-
eignasölum á Vesturlandi til að vita
þeirra skoðun á ástandinu á fast-
eignamarkaðnum.
Daníel Elíasson hjá Fast-
eignasölunni Hákoti á Akranesi
segir að í kjölfar vaxtahækkunar
Seðlabankans hafi hægst á sölunni
og fólk eigi erfiðara með að fá
greiðslumat gagnvart dýrari eign-
unum vegna þess að greiðslubyrðin
hefur aukist til muna. „Vaxta-
hækkunin hefur áhrif á væntan-
lega kaupendur því hún gerir það
að verkum að fólk á ekki eins góða
möguleika á því að taka eins há lán
og áður vegna þess að greiðslu-
byrðin hefur aukist það mikið. Að
sama skapi hefur verið að koma
minna inn af eldri eignum af því
það þrengir að markaðnum, þetta
er svona keðjuverkandi. Vaxta-
hækkunin er að gera eins og ætlast
var til, að hægja verulega á mark-
aðnum,“ segir Daníel.
Fólk fær ekki eins há lán
Hefur fasteignaverðið eitthvað
lækkað að undanförnu? „Það hefur
ekki hækkað en menn eru ekki að fá
eignirnar á ásettu verði svo það er
aðeins undir því í dag. Verðin hækk-
uðu svolítið geyst þannig að það var
ekki alveg búið að ná því jafnvægi
sem er að nást með þessum höftum
núna. Áður fyrr fengust þessi háu
lán allt upp að 85% af kaupverði
af fyrstu eign en nú hefur því verið
breytt. Það sem breytist þegar vext-
irnir hækka svona mikið er að þá
hækkar greiðslubyrðin af lánunum
og tekjur hafa ekki aukist hjá fólki
þannig að greiðslubyrðin hefur auk-
ist það mikið að fólk fær ekki eins
há lán. Það hefur áhrif á markaðinn
og fólk hefur verið að fá höfnun á
greiðslumati af því það taldi sig geta
staðið við það en þá segir bankinn
nei af því að launaafkoman er ekki
nógu há til að mæta þessari lán-
töku þegar fólk er að kaupa dýrari
eignir.“
Er minna um það að fólk úr
bænum sé að kaupa íbúðir hérna
á Akranesi? „Nei, það er ennþá og
frekar að aukast ef eitthvað er. Fólk
er að sækja inn á ódýrari markað og
þar er um að ræða bæði fjölskyldu-
fólk og eldra fólk sem er hætt að
vinna. Það yngra er að sækja í fjöl-
skylduvænt umhverfi sem Akranes
er og fá þannig aukatíma til að vera
ekki að skutlast með börnin fram
og til baka langar vegalengdir.“
Eignir eru lengur á skrá
Þórarinn Óðinsson hjá Nes fast-
eignasölu í Borgarnesi segir að
fasteignaverð hafi ekki lækkað að
undanförnu á hans starfssvæði, en
ástandið á markaðnum sé orðið
betra heldur en áður. „Eignir eru
aðeins lengur á skrá en ekkert til
að tala um þannig. Það er aðeins
minna um að þær séu að fara á yfir-
verði en það var þannig fram á mitt
sumar ef íbúð kom á skrá þá nánast
undantekningarlaust fór hún yfir
ásettu verði.“
Hefur hægst undanfarið á sölunni
í Borgarnesi? „Það er alveg sala
ennþá en ekki sömu lætin í þessu.
Við erum að sjá það einnig að það
er náttúrulega stór hluti kaupenda
sem er bara eiginlega úti núna út
af því að lánshlutfallið lækkaði
fyrir fyrstu kaupendur og þá lækk-
aði hluti af afborgunum lána miðað
við ráðstöfunartekjur. Þá erum við
að sjá að þeir sem eru að kaupa eru
með eignir á móti. Vextir á lánum
eru orðnir miklu hærri en þeir voru
og kjörvextir fyrir óverðtryggð lán
eru komin upp í 7,8 prósent sem er
ansi mikið.“
Er að fjölga eignum á söluskrá
núna? Svona já og nei. Maður
finnur það að fólk er aðeins að halda
að sér höndum og er þá kannski að
horfa á það að bíða aðeins með að
stækka við sig eða minnka, hvort
heldur sem er. Við erum að sjá að
það er aukinn áhugi frá fólki sem
eru brottfluttir Borgnesingar og er
með eignir í bænum á móti því það
er mun viðráðanlegra fyrir það að
selja á móti.“
Hefur letjandi áhrif
á kaupendur
Þórarinn segir einnig að vaxta-
hækkanir Seðlabankans hafi áhrif
á væntanlega kaupendur því
mánaðar leg greiðslubyrði á lánum
sé orðin margföld miðað við sem
hún var og hefur letjandi áhrif á þá.
„Það er sérstaklega þar sem fólk er
ekki með eignir á móti og við erum
að sjá alveg mikla aukningu á því
að fólk er að taka lánin með sér.
Það hafði kannski vit á því að festa
vexti á sínum tíma og það er mikil
aukning í því að fólk sé að taka
lánin með sér yfir á eignina og það
er oftast það sem mildar höggið
þegar fólk er að stækka við sig. Þá
þarf það ekki að fara í nýja lántöku
á þessum kjörvöxtum því það er
komin reynsla á óverðtryggðu lánin
miðað við þau verðtryggðu þannig
að fólk er ennþá vart um sig með
verðtryggðu lánin. En eins og þetta
er búið að vera núna þá hef ég heyrt
nokkur dæmi þess að mánaðarleg
greiðslubyrði af tæplega 30 millj-
óna króna óverðtryggðu láni hafi
hækkað um 60 þúsund á mánuði á
stuttum tíma.“
Hvernig sérðu fyrir þér næstu
mánuði hjá ykkur? „Það er
reytingur, ég hef engar áhyggjur.
Eignir eru að seljast og það er
vöntun á eignum. Eftirspurn er
ennþá mikil og þótt að hlutirnir
hreyfist aðeins hægar þá myndi ég
ætla að þetta væri kannski bara heil-
brigðari markaður núna heldur en
var,“ segir Þórarinn Óðinsson að
lokum.
vaks
Nýverið afhenti skipulags- og
umhverfisráð Akraneskaupstaðar
umhverfisverðlaun kaupstaðar-
ins fyrir árið 2022. Í flokknum tré
ársins sem var einn af fjórum flokk-
unum sem hlaut verðlaun fékk tré
sem stendur við Vesturgötu 63 þau
verðlaun í ár. Í umsögn segir að tréð
sé staðsett í elsta hluta bæjarins og
hafi mátt þola ýmislegt í gegnum
tíðina. „Fallegt sitkagreni sem
stendur framan við gamalt steinhús
og gefur húsinu, framlóð þess og
götumyndinni sérstakan svip. Tréð
veitir húsinu ákveðna sérstöðu og
ásýnd þess minnir á gamla tímann.
Gott merki um það að gróður getur
vel þrifist á Skaganum.“
Jón Arnar Sverrisson sendi
Skessuhorni frekari upplýsingar um
tréð til gamans en þær fékk hann
frá Jónasi H. Ottóssyni núverandi
eiganda Vesturgötu 63. Tréð var
gróðursett árið 1960, er því orðið
62 ára og er ellefu metrar á hæð.
Tréð er til komið þannig að Guð-
jón Guðmundsson, sem ólst upp
á Vesturgötu 63, tók köngla þegar
hann var um átta til tíu ára. Köngl-
ana tíndi hann á túni við Iðnskólann
en þar voru oft sett upp tré þegar
hann var að alast upp á Vestur-
götunni. Könglana fór hann með
heim til móður sinnar og setti þá í
niðursuðudósir. Upp af könglunum
komu fjögur grenitré og voru tvö
þeirra gróðursett í garðinum á
Vesturgötu 63 í kringum 1960. Hin
tvö trén voru gróðursett við Saur-
bæjarkirkju en þau náðu sér aldrei á
strik þar og drápust.
Flæktu saman greinum
Bæði trén á Vesturgötunni lifðu
og uxu vel. Núverandi eigendur,
Jónas og Ingunn Sveinsdóttir
kona hans, keyptu húsið árið 1999
og þá voru trén tvö orðin stór
en annað þeirra var alltaf minna.
Var það illa farið af seltu þar sem
skjólið á því fyrir norðaustan-
áttinni af húsinu var ekki eins
gott og skjólið á því stærra. Trén
tvö voru farin að flækja saman
greinum og það minna var farið
að mynda sár í því stærra. Jónas
og Ingunn felldu það minna upp
úr aldamótum til að gefa stærra
trénu rými. Það þakkaði vel fyrir
sig og tók vaxtarkipp í kjölfarið. Í
gegnum árin hefur tréð verið lús-
sækið og stundum orðið tætings-
legt en alltaf náð sér inn á milli.
Það er nú bæjarprýði á áberandi
stað við Vesturgötuna og sómir
sér einstaklega vel.
Til fróðleiks má geta þess að
hæsta sitkagreni í skógræktinni á
Akranesi er gróðursett árið 1959
og er orðið 17 metrar. Það hæsta
á Íslandi er gróðursett árið 1949
og er 30 metrar að stærð en það
er staðsett á Kirkjubæjarklaustri.
vaks
Staða á fasteignamarkaði er að breytast
Sagan um tré ársins við Vesturgötu
Tré ársins 2022 við Vesturgötu. Ljósm. vaks
Þjóðbraut 3 á Akranesi eru íbúðarblokk sem nýverið kom á markað. Fjær er Þjóðbraut 5 sem er í uppsteypu. Ljósm. vaks
Daníel Elíasson. Ljósm. vaks Þórarinn Óðinsson. Ljósm. aðsend