Skessuhorn - 09.11.2022, Síða 23
MIÐVIKUDAGUR 9. NÓVEMBER 2022 23
Það er óhætt að segja að íbúar á
Vesturlandi hafi verið heppnir með
veðrið undanfarnar vikur og hefur
tíðin verið virkilega góð fyrir utan
storminn sem geysaði 9. október.
Blaðamaður Skessuhorns átti leið
um nýbyggt svæði við Sóleyjar-
klett í Borgarnesi í fyrradag og sá
að þar var verið að helluleggja og
gera bílaplan fyrir Eirík J. Ingólfs-
son ehf. sem byggir þar nokkur
fjölbýlishús. Það er Sindri Arnfjörð
Sigurgarðarsson hjá Garðaþjón-
ustunni Sigur-görðum sem annast
lóðarframkvæmdirnar og reiknar
hann með því að þeim ljúki næsta
vor, en það fari þó eftir framvindu
hjá þeim sem eru að byggja. Starfs-
menn hans, þau Lára Helgadóttir
og Valdimar Ólafur Arngrímsson
voru að störfum á svæðinu.
gj
„Ísland á mikla möguleika á að
verða leiðandi í nýsköpun og fram-
þróun ræktunar og framleiðslu
afurða úr þörungum ef rétt er
haldið á spöðunum,“ segir í tilkynn-
ingu frá nýstofnuðum Samtökum
þörungafélaga á Íslandi (e. Algae
Association of Iceland, AAI). Fyrsti
stjórnarfundur hinna nýstofn-
uðu samtaka fór fram síðastliðinn
fimmtudag. Stofnendur félagsins
eiga það sameiginlegt að stunda
sjálfbæra öflun, ræktun, rannsóknir,
fræðslu, vinnslu, vöruþróun og sölu
á afurðum tengdum þörungum.
Yfir 20 fyrirtæki og stofnanir standa
að stofnun félagsins.
Tilgangurinn með nýju samtök-
unum er að skapa vettvang fyrir
umræðu um rekstrarumhverfi
sem snýr að þörungastarfsemi á
landi, grunnsævi og á hafinu úti
fyrir Íslandi. Samtökin vilja einnig
stuðla að aukinni þekkingu á starf-
semi þörungafyrirtækja á Íslandi
og þeim miklu tækifærum sem fel-
ast í þörungum. Þá munu samtökin
leggja mikið upp úr alþjóðlegu
samstarfi greinarinnar og eru þau
þegar í viðræðum við sambærileg
félög á alþjóðavísu.
Í fyrstu stjórn samtakanna hafa
verið kjörin Sigurður Péturs-
son stofnandi Ræktar fræðslumið-
stöðvar lagareldis, sem jafnframt
er formaður, Tryggvi Stefáns-
son aðstoðarframkvæmdastjóri
Algalíf, Áshildur Bragadóttir
endurmenntunar- og nýsköpunar-
stjóri Landbúnaðarháskóla Íslands,
Eydís Mary Jónsdóttir umhverfis-
og auðlindafræðingur og Krist-
inn Árni Lár Hróbjartsson fram-
kvæmdastjóri Running Tide á
Íslandi.
Þörungar eru taldir munu leika
stórt hlutverk í baráttunni gegn
loftslagsvandanum á næstu árum
en þörungar eru þeim eiginleikum
gæddir að geta fjarlægt kolefni úr
koltvísýringi í andrúmsloftinu og
skilað því til baka sem súrefni. Nú
stendur yfir loftslagsráðstefna Sam-
einuðu þjóðanna, COP27, í Kaíró í
Egyptalandi þar sem kallað er eftir
því að gripið verði til umfangsmik-
illa aðgerða til að stemma stigu við
loftslagsvandanum.
Sigurður Pétursson, formaður
stjórnar Samtaka þörungafélaga á
Íslandi segir að nú sé mikil gerjun
hér á landi sem og erlendis í þessari
atvinnugrein sem megi ekki síst
rekja til umhverfisvitundar fólks
þar sem þörungar eru þær líf-
verur sem binda mest af koltví-
oxíði í heiminum. „Þörungar hafa
400 sinnum meiri virkni en sam-
bærilegt svæði skóglendis. Höfin
eru lungu jarðarinnar og með sjálf-
bærri nýtingu og ræktun bæði á hafi
og landi er hægt að framleiða vörur
með jákvæðum umhverfisáhrifum.
Einstakar náttúruaðstæður með
grænni raforku og jarðvarma hafa
þegar komið Íslandi á kortið í
smáþörungaræktun og vinnslu og
það er ýmislegt að gerjast í stór-
þörungum. Þörungaafurðir eru
margvíslegar og eru m.a. nýttar
til kolefnisförgunar, dýrafóðurs,
áburðar og umhverfisvænnar mat-
væla- og lyfjaframleiðslu. Ísland á
mikla möguleika á að verða leið-
andi í nýsköpun og framþróun
ræktunar og framleiðslu afurða úr
þörungum ef rétt er haldið á spöð-
unum,“ segir Sigurður Pétursson.
mm
Tindur, sem er búsettur á Akra-
nesi, er hundur af Samójed tegund,
mongólskir að uppruna. Hlutverk
þessara hunda var að starfa fyrir
hreindýrahirðingja, notaðir til að
gæta dýranna og draga sleða ásamt
því að vera sérlega góðir félagar.
Þá höfðu þeir það hlutverk að
veita börnunum hlýju í hirðinga-
tjöldunum, enda feldur þeirra
einkar hlýr og geðslag hundanna
sömuleiðis. Samójedhundar eru
ákaflega vel aðlagaðir hinum miklu
kuldum norðurhjarans en reynslan
hefur sýnt að þeir eru einnig góðir
heimilishundar.
Hundar af þessari tegund hafa
áberandi tveggja laga feld þar sem
toghárin eru mjög stíf viðkomu og
veita góða vörn gegn vindi auk þess
að hrinda frá sér vatni. Feldurinn
getur verið allt frá því að vera snjó-
hvítur að lit yfir í að vera rjóma-
litaður eða fölbrúnn. Þelhárin eru
ullarkennd og feldurinn verður
mjög þykkur yfir vetrartímann.
Eigendur Tinds, þau Óttar Ell-
ingsen og Gróa Guðbjörg Þor-
steinsdóttir, létu hann í byrjun vik-
unnar í bað og því fylgir að þurrka
verður feldinn með blásara, við
frekar takmarkaða hrifningu Tinds.
Hann fékk þó eyrnaband til að
hávaðinn í blásaranum pirraði hann
ekki meira en nauðsynlegt var.
mm
BÓKAÚRVALIÐ
er hjá okkur
AUSTURVEGI 22
Opið mán.–lau. 12–18
ÁRMÚLA 42
Opið mán.–fös. 11–18
lau. 11–16
Þveginn og
þurrkaður þegar þarf
Hellulögn í vetrarblíðu
Lára Helgadóttir undirbýr hellulagningu.
Tindur í þurrkun hjá eigendum sínum.
Tindur á góðum sumardegi þegar hann var hvolpur.
Stofnuð hafa verið
Samtök þörungafélaga
Nýskipuð stjórn Samtaka þörungafélaga. Frá vinstri Tryggvi Stefánsson, Sigurður
Pétursson, Kristinn Árni L. Hróbjartsson og Áshildur Bragadóttir. Á myndina
vantar Eydísi Mary Jónsdóttur.