Skessuhorn - 09.11.2022, Síða 31
MIÐVIKUDAGUR 9. NÓVEMBER 2022 31
Knattspyrnumaðurinn Arnór
Smárason hefur ákveðið að ganga
til liðs við Skagamenn en Arnór
kemur til ÍA frá Val þar sem hann
hefur spilað undanfarin tvö tímabil.
Arnór er uppalinn hjá ÍA en lék
aldrei með meistaraflokki ÍA á yngri
árum og mun því loksins leika með
uppeldisfélaginu en hann er 34 ára
gamall. ÍA féll úr efstu deild á þessu
tímabili niður í Lengjudeildina og
þarf Arnór í það minnsta að bíða
eitt ár eftir að leika með uppeldis-
félaginu í efstu deild. Leikmaður-
inn skoraði fimm mörk fyrir Val á
leiktíðinni í 20 leikjum en hann lék
með liðum í Danmörku, Rússlandi,
Svíþjóð, Noregi og Hollandi áður
en hann sneri aftur heim til Íslands
árið 2021.
Sóknarmaðurinn Viktor Jónsson
hefur skrifað undir nýjan samn-
ing við ÍA til ársins 2024. Viktor
hefur leikið með ÍA frá árinu 2019
en missti af stórum hluta síðasta
tímabils vegna meiðsla. Þá hefur
bakvörðurinn Árni Salvar Heimis-
son skrifað undir nýjan samning við
ÍA til ársins 2025 en Árni Salvar er
fæddur árið 2003 og kemur upp úr
yngri flokkum ÍA. Þá kemur fram
á FB síðu Knattspyrnufélags ÍA
að heimild til riftunar hafi verið
virkjuð í samningum Alexander
Davey, Christian Köhler og Kaj
Leo Í Bartalstovu. Þeir munu yfir-
gefa félagið ásamt Kristian Lind-
berg, Tobias Stagaard og Wout
Droste en samningar þeirra runnu
út eftir þetta tímabil. vaks
Í hádeginu á mánudaginn var dregið
í átta liða úrslit VÍS bikars karla og
kvenna í körfuknattleik en Helgi
Bjarnason forstjóri VÍS og Craig
Pedersen landsliðsþjálfari karla sáu
um að draga rauðu kúlurnar upp úr
skálinni að þessu sinni. Tvö Vestur-
landslið voru í pottinum, kvennalið
Snæfells dróst á móti úrvalsdeildar-
liði Fjölnis og karlalið Skallagríms
mætir úrvalsdeildarliði Stjörnunnar
sem er ríkjandi bikarmeistari.
Átta liða úrslit kvenna:
Fjölnir-Snæfell, Keflavík-Njarðvík,
Haukar-Grindavík og ÍR-Stjarnan.
Átta liða úrslit karla:
KR-Höttur, Stjarnan-Skallagrímur,
Valur-Grindavík og Keflavík-
-Njarðvík/Tindastóll/Haukar.
Leikirnir fara fram dagana 10. til
12. desember.
vaks
Síðastliðið mánudagskvöld var
spiluð fyrsta umferðin af fjórum
í aðaltvímenningi Bridgefélags
Borgarfjarðar í Logalandi. Þátttaka
var ágæt, eða 17 spilapör, og komu
gestir meðal annars frá Hólmavík,
Borgarnesi og Akranesi. Fyrir-
komulag mótsins er að þrjú bestu
kvöld hvers pars gilda til úrslita.
Öllum er því velkomið að mæta og
taka þátt, þótt þeir hafi ekki spilað
sl. mánudag.
Spilað var með Butler fyrir-
komulagi. Eftir fyrsta kvöldið eru
bræðurnir Guðmundur og Unn-
steinn Arasynir efstir með 61,22%
skor. Í öðru sæti urðu einnig Borg-
nesingar, þeir Guðjón Karlsson og
Rúnar Ragnarsson með 58,93% og
í þriðja sæti urðu heimamennirnir
Jón Eyjólfsson og Baldur Björnsson
með 58,16%. mm
ÍA og Hrunamenn mættust í 1.
deild karla í körfuknattleik á föstu-
dagskvöldið og fór leikurinn fram
á Skipaskaga. Gestirnir byrjuðu af
miklum krafti í leiknum á meðan
heimamenn voru alveg meðvit-
undarlausir, staðan 2:18 Hruna-
mönnum í vil eftir fimm mínútna
leik. Skagamönnum gekk illa að
minnka muninn en Gabriel Ader-
steg setti niður síðustu sex stigin
í fyrsta leikhluta og staðan 21:29
fyrir gestunum. Munurinn hélst
í kringum tíu stigin fyrstu mín-
úturnar í öðrum leikhluta en eftir
rúman sex mínútna leik höfðu
Skagamenn náð forskoti gestanna
niður í fimm stig, staðan 39:44. Þá
tóku Hrunamenn við sér á ný og
voru komnir með þægilega stöðu
fyrir hálfleik, 44:56.
Stigaskor liðanna var með svip-
uðu móti í þriðja leikhluta og
staðan breyttist því lítið fyrir fjórða
og síðasta leikhluta, 69:83 sýndi
taflan þegar liðin fóru á fund með
þjálfurum sínum fyrir lokahnykk-
inn. Skagamenn urðu fyrir áfalli
í byrjun fjórða leikhluta þegar
Gabriel Adersteg fékk sína fimmtu
villu og lauk leik en hann hafði
verið þeirra besti maður fram að
þessu. Hrunamenn gengu á lagið
í kjölfarið og voru komnir með
18 stiga forystu um miðjan leik-
hlutann, 76:94. Skagamenn hittu
illa, voru hálf andlausir og alls ekki
líklegir að snúa leiknum sér í hag.
Enda fór svo að gestirnir unnu
þægilegan sigur og án nokkurra
vandræða, lokatölur 83:104.
Stigahæstur hjá ÍA var Gabriel
Adersteg með 21 stig, Lucien
Thomas Christofis var með 18
stig og Þórður Freyr Jónsson með
16 stig. Hjá Hrunamönnum var
Ahmad James Gilbert með 23 stig
og 11 fráköst, Samuel Anthony
Burt var einnig með 23 stig og
Eyþór Orri Árnason með 14 stig.
Næsti leikur ÍA er mánudaginn
14. nóvember á móti Álftnesingum
syðra og hefst klukkan 19.15.
vaks
Álftanes og Skallagrímur áttust
við í 1. deild karla í körfuknattleik
á mánudaginn og var leikurinn á
slóðum forseta vors. Jafnt var á
flestum tölum fyrstu mínútur leiks-
ins en síðan tóku Skallagrímsmenn
kipp og voru komnir með tíu stiga
forystu eftir tæpar fimm mínútur í
fyrsta leikhluta. Heimamenn náðu
síðan að koma til baka og staðan
22:24 gestunum í vil þegar flautan
gall. Um miðjan annan leikhluta
var enn mjótt á munum, 30:34,
en þá náðu Skallagrímsmenn frá-
bærum kafla þar sem þeir skor-
uðu 18 stig gegn aðeins níu stigum
Álftaness og leiddu með 13 stigum
í hálfleik, 39:52.
Allt leit vel út fyrir gestina í
fyrsta hluta þriðja leikhluta, þeir
héldu Álftnesingum vel frá sér
og voru með tíu stiga forystu um
miðbik leikhlutans. En þá hrukku
heimamenn í gang og náðu hægt
og rólega að minnka muninn en
Orri Jónsson hitti úr tveimur vítum
og sá til þess að Skallagrímur var
með tveggja stiga forystu fyrir síð-
asta leikhlutann, 72:74. Álftanes
sem hafði unnið sex sigurleiki í
röð og stefndi að félagsmeti var
sterkari í lokahlutanum og náði
snemma nokkurra stiga forskoti.
Skallagrímsmenn voru þó ekki á því
að gefa neitt og höfðu jafnað eftir
fimm mínútna leik, staðan 83:83.
Heimamenn settu þá aftur í gír
og voru komnir með sjö stiga for-
ystu þegar tæp ein mínúta lifði af
leiknum. Gestirnir voru með engin
svör undir lokin og lokatölur 98:91
Álftanesi í hag.
Keith Jordan Jr. var stigahæstur
hjá Skallagrími með 32 stig og 15
fráköst, Björgvin Hafþór Ríkharðs-
son var með 24 stig og 10 fráköst
og Kristján Örn Ómarsson með
9 stig. Hjá Álftanesi var Eysteinn
Bjarni Ævarsson með 24 stig, Dino
Stipcic var með 24 stig og 11 frá-
köst og Dúi Þór Jónsson með 24
stig og 11 stoðsendingar.
Næsti leikur Skallagríms er á
morgun, fimmtudag, gegn Sel-
fossi í Fjósinu í Borgarnesi og hefst
klukkan 19.15.
vaks
Dregið í 8 liða úrslit
í VÍS bikarnum
í körfunni
Skagamenn
töpuðu á móti
Hrunamönnum
Úr leik ÍA og Hrunamanna á föstudaginn. Ljósm. vaks
Hófu aðaltvímenning BB
Arnór Smárason skrifar
undir tveggja ára samning
Eggert Herbertsson formaður KFÍA býður Arnór velkominn. Ljósm. KFÍA/pga
Skallagrímur með tap
gegn Álftanesi
Skallagrímur hefur unnið þrjá leik af sjö í deildinni og er í 5.-8. sæti. Ljósm. glh