AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.06.2003, Qupperneq 40
Franska hverfið í Shanghai fyrir endurgerð. / The French quarter in Shanghai before reconstruction.
Carlos Zapata, er heimsþekktur
og einn af frumlegustu hönnuðum
meðal ungra arkitekta og mun
halda fyrirlestur hér á landi í sept-
ember í boði arkitektúrdeildar
Listasafns Reykjavíkur. Hann mun
þá einnig sýna nokkur vinnulíkön
og teikningar. Carlos mun einnig
standa fyrir málþingi í
Endurmenntunarstofnun Háskóla
(slands með samstarfsmanni sín-
um, Benjamin T. Wood, sem líka
er arkitekt og áhrifamaður í skipu-
lagi borga. Þar munu þeir m.a.
ræða ólíka menningarstrauma og
erfiðleikana við að vinna í alþjóð-
legu samhengi, sérstaklega með
tilliti til nýlegra verka sinna í Kína.
Þeir munu líka leitast við að
benda á hvernig afla megi verk-
efna á alþjóðlegum vettvangi.
Guðjón Bjarnason, arkitekt og
listamaður tók eftirfarandi viðtal
við Carlos þegar hann heimsótti
nýlega land íss og elda.
Cartos, hver er þinn bakgrunnur
og hvers vegna lagðir þú fyrir þig
hönnun og arkitektúr?
Fjölskylda mín átti sýningarsal fyrir
nútímalist í Quito í Ecuador. Ég
hafði áhuga á listum og arkitektúr
frá því ég var mjög ungur og það
kom af sjálfu sér að ég valdi mér
arkitektúr að atvinnu. Ég lærði við
Þratt-stofnunina í New York og
stundaði framhaldsnám við Col-
umbia-háskólann. Eftir að ég
lauk námi við Þratt kenndi ég
hönnun við nokkra háskóla í New
York og Miami í allmörg ár.
Hvaða fóik og stefnur höfðu áhrif
á þig þegar þú varst að læra?
ari stefnu samt algerlega og kaus
heldur að fylgja módernismanum.
Ég hafði sérstakan áhuga á ítölsk-
um „fútúristum” og rússneskum
„konstrúktívistum” en mikilvæg-
ustu áhrifin komu á þessum tíma
frá Carlo Scarpa.
Af hverju hrífstu í dag?
Almennt séð þá hrífst ég af feg-
urð. Öllu sem Ijósið skín á; borg-
um, mikilfenglegu landslagi, fólki,
formum, litum, jafnvel líka hljóði
og bragði. Allt þetta er efni í
drauma.
í fjölmenningarsamfélagi nútím-
ans, þar sem allt er leyfilegt,
hvað er stofan þín að gera og á
hvaða leið eruð þið?
Þegar ég var að læra var post-
módernisminn sú stefna sem var í
uppáhaldi og kennd við arkitekta-
skóla í Ameríku. Ég hafnaði þess-
W+Z er alþjóðleg stofa með útibú
í Boston og Shanghai. Við erum
að vinna að mörgum mikilvægum
verkefnum víða um heim. Við
38