AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.06.2003, Blaðsíða 70
rafræn vinna
rafræn viðskipti
að hafa af tækninni sem verða
ekki miklu meiri en við sambæri-
legar upplýsingaf á pappír. Bygg-
ingarvörur eru hér sérstaklega
mikilvægar miðað við aðra fram-
leiðsluvöru, þar sem þær eru oftar
framleiddar samkvæmt séróskum
hönnuða (sértækar) og framleidd-
ar með fjölda valmöguleika þanníg
að hægt sé að aðlaga þær mis-
munandi þörfum með tilliti til notk-
unar.
Markmið og framtíðar-
sýn
Almennt markmið og framtíðarsýn
í eProCon verkefninu er að koma
á samfelldu flæði upplýsinga í raf-
rænu formi yfir líftíma byggingar-
hluta í virðiskeðju bygginga;
stuðla að markvissari samvinnu
og samskiptum í byggingarferlinu
milli framleiðenda, efnasala, þeirra
sem veita upplýsingar, hönnuða,
verkfræðinga, verktaka, viðhalds-
aðila og eígenda og auðvelda
notkun rafrænna miðla við hönn-
un, byggingu og innkaup á bygg-
ingarvörum.
Ennfremur má segja að sérstakt
markmið í eProCon verkefninu sé
að útvega framleiðendum og efn-
issölum hugbúnaðarlausnir til að
koma á framfæri og gefa út
endurnýtanlegar upplýsingar um
byggingarvörur, grundvallaðar á
opnum stöðlum þannig að þeir
geti engu að síður lagt áherslu á
sérstakt gildi sinnar vöru í mark-
aðslegu tilliti og mismunandi sér-
einkenni vörunnar. Upplýsinga-
þjónustur og rafrænar verslanir
geta gagnsætt safnað upplýsing-
um frá fjölda framleiðenda og
þannig náð þeirri stærð sem
nauðsynleg er til að rekstur upp-
lýsingabanka geti staðið
undir sér og tengt aðrar mikilvæg-
ar upplýsingar og þjónustu við
byggingavörur fyrir viðskiptavini.
Fagmenn í byggingariðnaði sem
hafa aðgang að hágæða upplýs-
ingum um byggingarvörur á ein-
um stað geta þannig leitað, metið
og valið framleiðsluvörur á fagleg-
an hátt þegar þeir eru að hanna,
byggja eða viðhalda fasteignum.
Tæknilausnir eProCon leggja þan-
nig áherslu á þarfir lítilla og með-
alstórra fyrirtækja (SME) sem hafa
aðgang að einföldum rafrænum
búnaði og grundvallarþekkingu á
þessu sviði, en bjóða einnig upp
á aðstoð og samræmingu fyrir
fyrirtæki sem ráða yfir flóknari
tæknilausnum.
Lausn
EproCon býður upp á opinn
sveigjanlegan ramma til að sam-
tengja dreifðar upplýsingar um
byggingarvörur og þjónustu við
viðskiptavini í upplýsingaþjónustur
sérhvers Norðurlandanna, sem
staðsett er í hverju landi fyrir sig.
Hluti af þessari tækniþróun eru
grundvallartækniforskriftir og sam-
skiptatækni sem er byggð upp á
opnum XML stöðlum sem gerir
þeim sem bjóða og framleiða
upplýsingar kleift að nota núver-
andi upplýsingakerfi sem hluta af
sameiginlegu kerfi til þess að
koma á framfæri upplýsingum um
byggingarhluta.
Uppbygging eProCon gerir bygg-
ingarþjónustum Norðurlandanna
(aðilum að eProCon samstarfinu)
kleift að skiptast á upplýsingum
milli gagnabanka hverrar þjóðar,
tengja mismunandi upplýsingar
og þjónustu, sem auka verðgildi,
við upplýsingar um byggingarvör-
ur og gera framleiðendum og
byggingarefnasölum kleift að
samtengja og stjórna gagnsætt
upplýsingum um byggingarvörur.
Upplýsingalíkön eProCon verða
sveigjanleg þannig að hægt sé að
taka á móti mismunandi upplýs-
ingum, eins og; í formi skráa, t.d.
CAD, PDF, XML, HTML, gagnalík-
ana, t.d. IAI ifcXML, og sam-
skiptasniða, t.d. bcXML, ebXML,
EDI. Jafnframt verða gagnalíkönin
stigskipt til þess að hægt sé að
taka tillit til mismunandi mikilla
upplýsinga og smáatriða; samsett
úr einingum, til þess að auðvelt
sé að auka við gæði upplýsinga;
þeim lýst með stöðluðum „meta“-
upplýsingum þannig að hægt
sé að tengja mismunandi tegundir
upplýsinga; flokkun eftir efni (con-
text specific) þannig að hægt sé
að taka tillit til mismunandi aðila í
virðiskeðjunni. f öðru lagi verður
uppbygging eProCon sveigjanleg,
þannig að auðvelt verði að tengja
upplýsingar þeirra sem framleiða
byggingarhluta við þjónustu
gagnabankanna með gagnvirku
viðmóti, sjálfvirku gagnanámi og
sjálfkrafa vélrænni uppfærslu
Helsti ávinningur
Intemetið er nú sem óðast að
verða grundvöllur fyrir rafræn við-
skipti milli fyrirtækja og fyrir við-
skiptaaðila til að skiptast á upp-