AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.2004, Síða 35

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.2004, Síða 35
Arnarnesvog. Hvort slík tenging er hugsanleg er óvíst, meðal annars af umhverfisástæðum. Að þessum forsendum gefnum og með vísun í fyrri athuganir á kostnaði við jarðgangagerð var áætlaður stofnkostnaður 2,3 milljarðar. Kostnaður yrði meiri ef strangari kröfur yrðu gerðar vegna náttúruverndarsjónarmiða. Rekstrarkostnaður og hrakvirði fært til núvirðis standast nokk- urn veginn á. Reiknilíkanið skilaði niðurstöðum um sparnað vegna annarrar dreifingar umferðarálags og minni ekinnar vegalengdar auk tíma- og orkusparnaðar að núvirði 3,1 milljarð. Þannig fengist jákvæð arðsemi af fjárfestingunni um 8,6%. Ef til viðbótar er reikn- að með fækkun slysa má ætla núvirði sparnaðar af fjárfestingunni 4,8 milljarða og arðsemin væri 14,4%. Þó svo um sé að ræða skólaverkefni og margar forsendur gefnar en ekki kannaðar sérstak- lega, s.s. framkvæmdakostnaður, þá gefur niðurstaðan vísbend- ingu um að slík framkvæmd gæti reynst þjóðhagslega hagkvæm. Lokaorð Reiknilíkan umferðar er öflugt tæki til að reikna út umferðarálag á gatna-kerfi framtíðar. Það er einn- ig hægt að kanna með líkaninu marga kosti í upþbyggingu gatna- og vegakerfis. Með hefðbundnum núvirðisreikningum má síðan nota niðurstöðurnar til að meta arð- semi þess að bæta umræddum kosti við samgöngukerfið. Að sjálfsögðu eru ekki öll svör fengin með slíkri athugun en engu að síður má benda á að vert væri að skoða áður nefndan kost í sam- göngum höfuðborgarsvæðisins. ■ Umferðarálag árið 2024, með tengingu yfir Skerjafjörð. Myndin sýnir ársdagsumferð, ÁDU, í þúsundum ökutækja á einstökum hlekkjum gatnakerfisins á því svæði sem yrði fyrir áhrifum af nýrri vegteng- ingu yfir Skerjafjörð. / Traffic volume in year 2024, with a link across Skerjafjörður on individual links of the road network affected by a new roadlink across Skerjafjörður. Fyrir tæpum tveimur áratugum var sýnd í Svæðisskipulagi höfuð- borgarsvæðisins 1985-2004 þessi mynd um þáverandi og mög- ulegar stofnbrautir á svæðinu. Tenging yfir Skerjafjörð er þar á meðal, en þó fremur yfir á Álftanes. / Almost two decades ago the Regional Plan for the Capital Area, 1985-2004 included this draw- ing of a possible main road network for this area. This included a link over Skerjafjörður or across to Álftanes. avs 35

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.