Bændablaðið - 23.03.2023, Qupperneq 8

Bændablaðið - 23.03.2023, Qupperneq 8
8 Bændablaðið | Fimmtudagur 23. mars 2023 FRÉTTIR „Íslenskt lambakjöt“ fær upprunavottun – Talið að það muni auka virði íslenska lambakjötsins bæði á Íslandi og erlendis Evrópusambandið hefur nýlega samþykkt umsókn Icelandic lamb um að vörumerkið „Íslenskt lambakjöt“ verði upprunavottað – en það er fyrsta íslenska landbúnaðarafurðin til að hljóta slíka vottun. Um er að ræða vottun með tilvísun til uppruna, eða „Protected Designation Of Origin“ (PDO), og fær íslenskt lambakjöt nú að bera merki vottunarinnar í markaðssetningu, en það á að stuðla að neytendavernd, auka virði afurða og koma í veg fyrir óréttmæta viðskiptahætti. „Íslenskt lambakjöt“, eða enska vörumerkið „Icelandic lamb“, mun þannig standa fyrir lambakjöt af hreinræktuðum íslenskum lömbum, sem eru alin og slátrað á Íslandi. Matvælastofnun samþykkti umsókn Markaðsráðs kindakjöts í byrjun árs 2018, um að „Íslenskt lambakjöt“ yrði verndað afurðaheiti, sem er nauðsynlegt skref í átt að evrópsku vottuninni. Varð vörumerkið þar með fyrsta íslenska landbúnaðarafurðin til að hljóta slíka vernd á Íslandi. Síðan fékk íslenska lopapeysan slíka vernd og hjá Matvælastofnun liggur nú umsókn um vernd fyrir íslenskt viskí. Hafliði Halldórsson, fram­ kvæmdastjóri Íslensks lambakjöts, segir að Markaðsstofan Íslenskt lambakjöt hafi unnið að því undanfarin ár að fá íslenska lambakjötið skráð sem verndað afurðaheiti á Evrópumarkaði undir PDO­merkingunni, með það fyrir augum að auka virði íslenska lambakjötsins. „Ég er ekki í nokkrum vafa um að PDO­merking muni auka virði íslenska lambakjötsins, bæði á innanlandsmarkaði og erlendis. Reynsla Evrópuþjóða hefur sýnt að vörur sem hafa PDO­merkingu seljast að meðaltali á tvöföldu útsöluverði í löndum ESB, samanborið við staðgönguvörur. Merkingarnar bæta einfaldlega samningsstöðu bænda og framleiðenda verulega í Evrópusambandinu. Þá hafa kannanir á innanlands­ markaði mælt að evrópsk upprunavottun geti hækkað kaup­ og greiðsluvilja íslenskra neytenda umtalsvert,“ segir Hafliði. /smh Hafliði Halldórsson framkvæmda- stjóri Íslensks lambakjöts. „Íslenskt lambakjöt“ hefur fengið upprunavottun Evrópusambandsins, sem talið er geta aukið virði afurðanna. Alþjóðleg matvælakeppni smáframleiðenda: Íslenskt fiskinasl útnefnt besta sjávarafurðin Holly T. Kristinsson, forstjóri Responsible Foods, með Næra vörur. Mynd / Responsible Foods Á mánudaginn var hið íslenska Næra fiskinasl frá Responsible Foods útnefnt besta sjávarafurðin í alþjóðlegu matvælakeppninni World Food Innovation Awards. Um nýsköpunarkeppni framleiðenda matvæla er að ræða og komst önnur vara frá fyrirtækinu, Næra skyrnasl, í úrslit í nýsköpunarflokki keppninnar. Að sögn Holly T. Kristinsson, framkvæmdastjóra Responsible Foods, er Næra fiskinasl alveg ný útgáfa af íslenskum harðfiski þar sem notast er við sérstakt þurrkunarferli við vinnsluna á vörunni. „Við höfum orðið vör við aukinn alþjóðlegan áhuga á þessari afurð okkar og viðurkenningin mun verða lykilþáttur í því að geta gert hana enn sýnilegri á heimsmörkuðum,“ segir Holly. Samstarf við Loðnuvinnsluna Responsible Foods vinnur fiskinaslið sitt í hátækni­ vinnslu sinni á Fáskrúðsfirði og vinnur náið með Loðnuvinnslunni þaðan sem hráefnið kemur. Fiskinaslið inniheldur einnig íslenskan ost og smjör frá Mjólkursamsölunni sem á í góðu samstarfi við fyrirtækið. Í tilkynningu er haft eftir Herði G. Kristinssyni rekstrarstjóra að fólk sem jafnvel borðar ekki fisk sé hrifið af naslinu. Með þessari vöruþróun hafi einmitt verið ætlunin að umbylta hefðbundnum harðfiski yfir í form sem breiðari hópur geti borðað. /smh Á aðalfundi Landbúnaðarklasans 9. mars var samþykkt að starfsemi hans yrði lögð í dvala, en gögn hans verða þó áfram vistuð hjá Bændasamtökum Íslands (BÍ) verði áhugi á að taka upp þráðinn síðar. Landbúnaðarklasinn var stofnaður í júní árið 2014 í þeim tilgangi að tengja saman þá aðila sem vinna í landbúnaði og matvælaframleiðslu, auk þess að stuðla að aukinni arðsemi og nýsköpun innan greinarinnar. Fjármunir renna til smáframleiðenda Finnbogi Magnússon var formaður frá 2018. Hann segir að á undan förnum misserum hafi mál þróast þannig að stóru bakhjarlar Landbúnaðarklasans hafi á síðasta ári einbeitt sér að stofnun Samtaka fyrirtækja í landbúnaði (SAFL). „Bæði BÍ og SAFL eru með á sinni stefnuskrá að efla nýsköpun og aðra svipaða starfsemi sem Landbúnaðarklasinn hefur mikið til snúist um. Það er nú eiginlega ástæðan fyrir því að ekki var lengur áhugi á að halda þessu áfram. Á fundinum var ákveðið að láta þá fjármuni sem eftir voru í félaginu renna til Samtaka smáframleiðenda matvæla, eða alls tæpar 1,4 milljónir króna,“ segir Finnbogi. Til sjávar og sveita Landbúnaðarklasinn var með samning við Sjávarklasann og Matarauð Íslands um að frumkvöðlum Landbúnaðarklasans væri veitt aðstaða í frumkvöðlasetri Sjávarklasans. Þá stóð Landbúnaðarklasinn að rekstri viðskiptahraðalsins Til sjávar og sveita í samstarfi við nokkra aðila. Síðustu stjórn Landbúnaðarklasans skipuðu þau Finnbogi Magnússon formaður, Freyja Þorvaldar, bóndi á Grímarsstöðum og gjaldkeri, Höskuldur Sæmundsson, Bænda­ samtökum Íslands, Bjarni Ragnar Brynjólfsson, Mjólkursamsölunni og Karvel L. Karvelsson frá Ráðgjafar­ miðstöð landbúnaðarins. /smh Landbúnaðarklasinn lagstur í dvala Auðhumla hefur tekið þá ákvörðun að nýta ekki niðurstöður úr líftölumælingum til verðfellingar mjólkur þar sem bráðabirgða­ tækjabúnaður sýnir hærri gildi en vant er. Rannsóknarstofa mjólkur­ iðnaðarins hefur haft að láni notað mælingatæki erlendis frá, en beðið er eftir nýjum búnaði í aprílmánuði. Gæðaráðgjafar Auðhumlu munu fara yfir líftölumælingar aftur í tímann, allavega aftur í febrúar og lengra ef þurfa þykir. Ef mjólk hefur verið verðfelld og vafi leikur á réttmæti mælinga, mun slíkt verða leiðrétt og viðkomandi mjólkurframleiðendur upplýstir. Frá þessu er greint á heimasíðu Auðhumlu. Enginn vafi leikur á réttmæti mælinga á öðru efnainnihaldi mjólkur, svo sem fitu, prótein, fríum fitusýrum, úrefni og kasein og að auki frumutölu mjólkur. Líftölumælingar verða áfram birtar mjólkurframleiðendum til leiðbeininga um stöðu og þróun á líftölu. /ÁL Vafi á réttmæti líftölumælinga Mjólkurtankur. Mynd / Úr safni Svansson ehf, Melabraut 19, 220 Hafnarfirði. Sími : 6974900 Tölvupóstur : sala@svansson.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.