Bændablaðið - 23.03.2023, Síða 11
Már Guðnason
Hrein íslensk fæðubót
frá Eylíf Eylíf vörurnar fást í öllum apótekum, Hagkaup,
Krónunni, Heilsuhúsinu, Fjarðarkaupum og Nettó
Ókeypis heimsending á eylif.is ef keypt er fyrir 7000 kr eða meira
Betri lífsgæði með Active
JOINTS
Már Guðnason húsasmiður hefur starfað við álagsvinnu
í gegnum árin. Nú þegar hann er kominn á eftirlaun
hafa komið fram ýmis eftirköst erfiðisins. Már hefur
fundið út að Active JOINTS frá Eylíf reynist vel til að
bæta lífsgæðin.
Már segist hafa verið sérstaklega slæmur í hálsliðum.
„Ég er lærður húsasmiður en er eiginlega alt muligt-
maður,“ segir hann. „Get eiginlega aldrei verið
aðgerðalaus og er alltaf að dunda mér við eitthvað,
hvort sem það eru endurbætur hér heima, að hjálpa
vinum og vandamönnum eða vinna í garðinum“ segir
Már, sem býr í Fljótshlíðinni ásamt konu sinni, Önnu
Óskarsdóttur. „Við búum á þessum fagra stað,“ segir hann.
„Ég var alltaf í átaksvinnu, aðallega í virkjunum.
Það hefur komið niður á líkamanum en ég hef verið
sérstaklega slæmur í hálsinum. Ég vann lengi í járna-
bindingum og oft með mikil þyngsli í höndunum. Það
reynir á skrokkinn og kemur fram þegar maður eldist,“
segir hann. „Ég var með mikla verki í hálsinum og átti
erfitt með svefn. Ég hafði leitað til heimilislækna í ein-
hver ár, en það eina sem ég fékk út úr því var að taka
verkjalyf. Ég fór í nudd með litlum árangri, verkirnir
versnuðu bara ef eitthvað var. Ég var síðan sendur í
myndatöku og þá kom fram mikið slit í hálsliðum en
því miður á svo vondum stað að ekkert er hægt að
gera. Eina ráðið voru verkja- og gigtartöflur það sem
eftir er, sem mér hugnaðist ekkert sérstaklega vel,“
útskýrir Már.
Get loksins sofið
„Ég sá auglýsingu frá Eylíf um Active JOINTS og
hugsaði með mér að það væri nú allt í lagi að prófa
þetta. Það var í mars 2020. Eftir fjórar vikur var ég
farinn að finna fyrir að eitthvað var að breytast og
eftir fjóra mánuði var ég orðinn töluvert betri. Ári
seinna var ég hættur að finna fyrir verkjunum í hálsinum.
Fyrir mér er þetta kraftaverk og lyginni líkast. Ég fékk
nýtt líf. Engar verkjatöflur og mér gekk vel að sofna á
kvöldin. Í rauninni er ég laus við verkina,“ segir Már,
sem tekur þrjú hylki á dag og ætlar sannarlega að
taka Active JOINTS frá Eylíf áfram.
Már var svo óheppinn að fótbrjóta sig fyrir sex vikum
og er viss um að Active JOINTS hefur hjálpað
beinunum að gróa. Læknirinn er ánægður með hversu
vel hefur gengið hjá honum. „Ég var svo óheppinn á leið
í Krónuna á Hvolsvelli að detta. Það var rok úti og ég
var með tvo nælonpoka sem fuku frá mér. Í flýtinum
að ná þeim hrasaði ég með þeim afleiðingum að ég
mölbraut á mér fótinn. Ég brotnaði svo illa að læknirinn
sagði að í raun áður en aðgerðin fór fram hefði
fóturinn verið ónýtur. Aðgerðin hefði hins vegar
gengið vel og ég er farinn að stíga í fótinn,“ segir
hann og bætir við: „Enda læknirinn, Benedikt
Árni Jónsson, algjör snillingur, besti skurðlæknir á
landinu að öðrum ólöstuðum,“ segir hann.
Active JOINTS styrkir beinin
Már segir að hann hafi spurst fyrir hjá Eylíf hvort það
hentaði að taka Acive JOINTS á meðan beinin væru
að gróa. „Mér var sagt að það væri mjög gott þar sem
Active JOINTS styrkir beinin. Ég hélt því áfram að
taka hylkin og er viss um að það hefur hjálpað þeim
að gróa,“ segir hann. „Ég er bara virkilega ánægður
með virknina í Active JOINTS og hef mikla trú á
þessu fæðubótarefni enda eru innihaldsefnin kalkrík
sem er nauðsynlegt fyrir viðhald beina. Einnig er C-
og D3-vítamín í Active JOINTS frá Eylíf. Ég get ekki
annað en mælt með vörunni,“ segir Már og bætir við
að eiginkonan taki Smoother SKIN & HAIR og sé
sömuleiðis mjög ánægð með þá vöru.
„Ég hef verið að benda vinum og kunningjum á
Active JOINTS og veit að margir eru farnir að taka
hylkin daglega enda gott fyrir liðina og beinin. Ég er
ekki nægilega duglegur að fara í göngutúra þótt ég sé
alltaf að hreyfa mig í alls konar stússi. Ég hef gaman
af ýmiss konar viðhaldsvinnu og hef ágætis vinnu-
aðstöðu í bílskúrnum.“
Syngja í kórum
Már hefur mörg áhugamál og bæði hjónin syngja
í kórum. Hann syngur með Öðlingum, sem sungu
í vikunni í Áskirkju. „Ég gat ekki verið með félögum
mínum, þar sem ég má ekki standa lengi í fótinn,“
segir hann. „Mest erum við að syngja við jarðarfarir,
þá átta til tíu/tólf manns. Hins vegar erum við átján
á tónleikum. Það er virkilega gefandi og skemmtilegt
að vera í kór,“ segir hann, en eiginkonan syngur með
kirkjukór Fljótshlíðar. Hjónin hafa verið dugleg að
ferðast um Evrópu, gjarnan með Bændaferðum, en
hafa bara einu sinni farið til Kanarí. „Mér finnst mjög
gaman að fara í rútuferðir, sérstaklega um fjöllin á
Ítalíu, aka til Slóveníu og einnig Austurríkis. Við eigum
tvo syni og barnabörn í Svíþjóð og förum líka reglulega
þangað,“ segir Már, en hjónin eiga einnig eina dóttur
sem býr í nágrenni við þau. „Lífið er skemmtilegt og
það er bara yndislegt að vera til,“ segir hann.
Vörulínan frá Eylíf
Vörulínan Eylíf býður upp á fimm vörur, Active
JOINTS, Stronger BONES, Smoother SKIN &
HAIR, Happier GUTS og nýjasta varan er Stronger
LIVER, allt vörur sem hafa reynst fólki vel.
Vörurnar eru unnar úr hreinum, íslenskum hráefnum,
engum aukaefnum er bætt við og framleiðslan er á
Grenivík undir GMP gæðastaðli.
Íslensku hráefnin sem notuð eru í allar Eylíf vörurnar eru:
• Kalkþörungar frá Bíldudal
• Smáþörungar (Astaxanthin) frá Reykjanesbæ
• GeoSilica frá Hellisheiði
• Kollagen frá Sauðárkróki
• Kítósan frá Siglufirði
• Íslenskar jurtir handtíndar frá fjölskyldufyrirtæki
í Hafnarfirði Hrein íslensk óerfðabreytt hráefni
Íslensk framleiðsla
Heilsan er dýrmætust
Fæðubótarefni kemur ekki í staðinn fyrir fjölbreytta fæðu. Ekki
ætlað börnum eða barnshafandi konum. Ekki er ráðlagt að taka
meira en ráðlagður dagskammtur segir til um. Geymist þar sem
börn ná ekki til.