Bændablaðið - 23.03.2023, Síða 37
37Bændablaðið | Fimmtudagur 23. mars 2023
Í dag eru 25 pláss leigð út og af
þeim eru 15 meðlimir mjög virkir.
„Þetta er afskaplega skemmtilegt
samfélag. Þarna er mikið spjallað
og mikið kaffi drukkið og
þarna hafa myndast vináttu- og
kunningjasambönd í gegnum árin
og þetta hefur gengið algjörlega
árekstralaust. Þetta áhugamál er
útbreitt. Það er ótrúlegur fjöldi sem
á vélar í geymslum og skúrum,
enda er biðlisti eftir plássi hjá
okkur,“ segir Þorfinnur.
Framtíðin óljós
Nokkur óvissa er þó með framtíðina
þar sem bankinn sem á húsnæðið
hefur hugmyndir um að nýta
plássið í eitthvað annað samhliða
mikilli fyrirhugaðri uppbyggingu
í Blikastaðalandinu. „Allavega
verðum við þarna út þetta ár og
ég held að það sé velvilji hjá
bankanum að framlengja áfram,“
segir Þorfinnur, en tekur fram að
allt sé mjög óljóst sem stendur.
Aðspurður um hvers vegna
þessi starfsemi sé mikilvæg segir
Þorfinnur þetta stuðla að því að
vélar séu endurbyggðar í stað
þess að vera hent. „Þetta er partur
af landbúnaðarsögunni okkar
og gaman að varðveita þessa
hluti. Flestir sem þarna eru eiga
einhverjar rætur að rekja til sveita
og þetta rifjar upp gamla og góða
daga þegar menn voru að byrja að
vinna með tækjum.“
Inntur eftir tímanum sem
uppgerð á traktor tekur segir
Þorfinnur eitt til tvö ár mjög
algengt. „Menn eru að vinna
þetta í sínum frítímum.“ Allir
meðlimirnir eru með lykil og geta
komið og farið að vild. Þeir sem
eru komnir á eftirlaun eru gjarnan
alla virka daga, á meðan þeir sem
eru í vinnu mæta um kvöld og
helgar. Aðstaðan er býsna góð, en
allir meðlimir koma með helstu
verkfæri og hafa aðgang að klefa
með tækjum til að sandblása og
sprautulakka.
Þegar vélarnar koma á
Blikastaði eru þær í mjög
mismunandi ástandi. „Sumar eru
ótrúlega góðar og á öðrum þarf
að fara í alla mögulega slitfleti í
vélum og gírkassa. Svo þarf að
smíða blikkhluta eftir leifum af
orginal brettum og húddum.“ Því
eru dráttarvélarnar á Blikastöðum
allt frá því að vera sundurteknir
vélahlutir í kössum yfir í nánast
tilbúin tæki. Enn fremur eru tíu
vélar í betri stofunni. Að aflokinni
uppgerð fara vélarnar ýmist þangað
eða í geymslu hjá eigendunum.
Margir merkisgripir
„Þarna er Centaur vél sem
Þjóðminjasafnið á – módel 1934.
Það er einn merkilegasti gripurinn
þarna. Það komu sex svona vélar
til landsins og ég held að þetta sé
sú sem kom seinast.“ Enn fremur
segir Þorfinnur að á Blikastöðum
sé unnið að uppgerð dráttarvélar af
gerðinni Austin. Hún er frá 1920
eða 1921 og telur hann að þetta
sé elsta dráttarvélin sem varðveist
hefur á landinu, en þær allra fyrstu
komu örfáum árum áður.
Dráttarvélar eru í miklum
meirihluta, en einnig eru nokkrir
jeppar. Þar á meðal einn Land
Rover, Rússajeppi, Bronco og
Toyota jeppi. Meginstarfsemin
fer fram í sjálfu fjósinu, en
einnig eru nokkur pláss á þremur
öðrum stöðum á víð og dreif um
húsaplássið.
Halda samkomur
„Við erum nýbúnir að halda 80
manna þorrablót sem tókst mjög
vel,“ segir Þorfinnur, en það er
það fyrsta sem er haldið eftir
heimsfaraldur. Ferguson-félagið
hefur verið í nokkru samstarfi
við mennina á Blikastöðum og
hafa staðið fyrir opnu húsi á
vorin. Þann 19. maí næstkomandi
verður fyrsta slíka samkoman eftir
heimsfaraldur.
„Þá kemur alveg óhemja af
dráttarvélum og verður farið í
hópakstur. Það hafa komið hundruð
manna þegar þetta var áður.“
REYKJAVÍK AKUREYRI 590 5100 klettur.is
Rafmögnuð
gæði
Blikastaðir eru neðan við Vesturlandsveginn, rétt vestan við byggðina í
Mosfellsbæ. Óljóst er hvort vélakarlarnir fái áfram að nýta aðstöðuna þar.
Hífa, lyfta,
slaka
Vökvadælur, mótorar,
tjakkar, tankar, lokar.
HMF bílkranar.
LANDVÉLAR | SMIÐJUVEGI 66 | 580 5800 | LANDVELAR.IS
LAUSNIR Á LAGER
Power to lift
Okkur datt í hug
að taka þetta á
leigu og sjá hvort væri
hægt að leigja út pláss
til að gera upp gamlar
dráttarvélar ...“
www.bbl.is