Bændablaðið - 23.03.2023, Qupperneq 40
40 Bændablaðið | Fimmtudagur 23. mars 2023
Einföld skilgreining á laufblaði
er plöntulíffæri sem vinnur
orku úr sólinni með ljóstillífun
og framleiðir súrefni sem er
undirstaða ófrumbjarga lífs á
jörðinni, þar með talin dýr og
menn. Auk þess sem laufblöð eru
undirstöðufæða margra nytjadýra
í landbúnaði.
Í árdaga jarðar var ekkert eða
að minnsta kosti lítið súrefni í
andrúmsloftinu og aðstæður fyrir
líf á jörðinni eins og við þekkjum
það í dag ekki til staðar og ekki fyrr
en örverur fóru að mynda súrefni að
þróun flóknari lífvera hófst.
Mögulegt er að ljóstillífun í
hafi komið fram á sex mismunandi
tímum í þróunarsögunni.
Talið er að fyrir um það bil 470
milljónum ára hafi fyrstu plönturnar
farið að róta sig á landi. Fyrstu
plönturnar voru einfaldar og án
æða og einfrumu og ljóstillífandi
gerlar í hafi. Með tímanum þróuðust
gerlarnir í fjölfrumu brún-, rauð-
eða grænþörunga og er talið að
grænþörungarnir séu forverar
landplantna.
Talið er að mosar sem eru með
elstu landplöntum séu komnir af
grænþörungum og er blaðgerð þeirra
margbreytileg og mismunandi eftir
tegundum
Almennt er litið svo á að laufblöð
hafi þróast út frá greinasprotum
frumstæðra plantna og að flatvöxtur
þeirra tengist því að fanga sem mest
af sólskini til ljóstillífunar.
Líffræði
Eftir landnám frumplantna þróuðust
plöntur án róta og æða eins og
byrkingar og mosar. Margar
frumplöntur eru einungis ein fruma
að þykkt. Með tímanum þróuðust svo
æðplöntur og sérhæfðir plöntuhlutar
eins og rætur, blöð og blóm.
Æðplöntur eru oft kallaðar
háplöntur og skiptast í tvo meginhópa,
fræplöntur og byrkninga.
Gróflega má segja, þótt margar
undantekningar séu þar á, að laufblöð
skiptist í fót, stilk og blöðku. Í
laufblöðum, sem eru samsett úr
lögum sem eru efri og neðri yfirhúð,
staf- og svampvef, eru viðar- og
sáldæðar sem greinast um blaðið og
flytja vatn og næringu til og frá þeim
til annarra plöntuhluta.
Auk þess að flytja næringu um
plöntur heldur vatn uppi þrýstingi í
laufblöðunum. Reyndar er það svo að
þegar æðarnar í laufinu greinast verða
þær sífellt minni og þær smæstu enda
í svokölluðum loftaugunum þar sem
umframvatn getur gufað út um.
Auðvelt er að sjá á blaðplöntum
hvort þau skorti vatn því blöðin
annaðhvort hanga eða leggjast
saman.
Yfirhúð laufblaða er þakin
vaxlagi og innan við það eru
grænukornin sem umbreyta sólar-
ljósi í sykrur með hjálp vetnis í
súrefni og af þeim stafar grænn litur
plantna. Á laufi eru einnig það sem
kallast loftaugu, fleiri á neðralaginu,
sem taka inn koltvísýring og gefa frá
sér súrefni við ljóstillífun.
Í loftaugunum eru varafrumur
sem sjá um að opna og loka þeim.
Margbreytileiki laufa
Margir sjá lauf fyrir sér sem flöt og
þunn en fjölbreytileiki þeirra er samt
mun meiri en það og eru þau ílöng og
mjó eins og strá og barrnálar, örsmá,
risastór, sígræn eða sumargræn og
marglit. Lauf eða blöð blómplantna
geta verið lágblöð, laufblöð, háblöð
eða blómblöð, allt eftir staðsetningu
þeirra og gerð.
Lauf geta geymt vatn eins og
þykkblöðungar gera eða verið
ummynduð í brodda eins og hjá
kaktusum eða skæni laukjurta og
er þá neðanjarðar.
Könglar barrtrjáa
eru ummyndað
lauf. Ástæða
þess að
laufblöð eru
oftast flöt og
fremur breið
er að með því
móti hámarka
þau ljóstillífun sína
en mörg lítil lauf, eins og
barrnálar, komið í sama stað.
Stærð, staða og lögun
Sé horft til laufplantna er stærð og
lögun blaða mismunandi auk þess
sem laufblöð á sömu tegund og sömu
plöntu geta verið mjög ólík.
Þar sem margar tegundir plantna
eða plöntur vaxa saman þurfa þær að
hafa sig allar við að fá sólarljós. Oft
snúa blöðin í austur við sólarupprás
og síðan fylgja þau gangi sólarinnar
til sólarlags og lauf sumra tegunda
leggjast saman eins og til svefns á
nóttinni.
Laufblöð sem eru rauð á neðra-
borði, eins og til dæmis begóníur,
endurkasta birtunni sem fer í gegnum
blaðið og þannig nýtist hún betur til
ljóstillífunar.
Blöð sem vaxa í skugga eru
að öllu jöfnu stærri en lauf sem
vex við mikla sól og plöntur með
stórt lauf eru skuggaþolnari en
smáblaðaplöntur. Vistfræðiþættir
eins og beit, aðgangur að
næringarefnum, vatni og loftraka
hafa einnig áhrif á stærð blaðanna.
Stærsta þekkta samfellda
laufblað í náttúrunni er á kólfplöntu
sem kallast nykurblað, Alocasia
macrorrhizos, og finnst í hitabelti
Suðaustur-Asíu. Blöð plöntunnar
eru hjartalaga og ná allt að tveimur
metrum að hæð og þremur að breidd
og getur gildleiki blaðstilksins verið
tíu sentímetrar að þvermáli.
Pálmi innan ættkvíslarinnar
Raphia ber stærstu samsettu
laufblöð, eins og til dæmis reyniviður
og yllir gera, sem þekkt eru. Blöð R.
regalis geta náð allt að 25 metrum að
lengd og verið þrír metrar að breidd.
Trefjar laufblaðanna eru notaðar í
vefnað og snæri.
Í ræktun hefur blað Gunnera
manicata verið mælt um tveir
metrar að lengd, 3,4 að breidd og
með tveggja metra löngum blaðstilk.
Staða laufblaða getur verið
gagn- eða stakstæð, neðst á stofni
plantna eða í toppi þeirra og kallast
þá stofn- eða toppstæð en stofn- eða
topphvilfing ef þau eru fleiri en eitt.
Þegar kemur að blaðlögun er eitt
og annað í boði. Blöð geta sem dæmi
verið egg-, lensu-, spjót-, nálar,
tígul- eða hjartalaga. Heilrennd,
tennt, sepótt, fjaður- eða fingurskipt
og áferð þeirra leður-, kjöt- eða
kjötkennd.
Byrkingar
Burknar vaxa upp af jarðstöngli
þannig að lauf og laufstilkar
vaxa líkast því að þau rúllist út.
Á neðraborði blaðanna myndast
gróhirslur. Burknar flokkast til
byrkinga ásamt jöfnum og elftingum
sem voru með fyrstu æðplöntum sem
þróuðust á jörðinni.
Vatnaplöntur
Lauf vatnaplantna fljóta eða eru á
kafi og kallast í samræmi við það
kaf- eða flotblöð. Eins og lauf
landplantna er það af mörgum
stærðum. Almennt er vatnaplantan
Wolffia arrhiza talin hafa minnstu
laufblöð allra æðplantna. Þrátt fyrir
að hver planta sé innan við einn
millimetri að stærð þekja þær oft
yfirborð stórra vatnasvæða.
Vilmundur Hansen
vilmundur@bondi.is
Lauf í vindi & vatni
FRÆÐSLA
Fjölbreytni í lögun laufblaða. Myndin er tekin í einu af gróðurhúsunum í grasagarðinum Kew í London. Mynd VH
Almennt er vatnaplantan Wolffia arrhiza talin hafa minnstu laufblöð allra
æðplantna. Mynd / wikimedia.org
Gróhirslur á neðraborði burkna.
Mynd / wikimedia.org
Stærsta samfellda laufblað í ræktun
er á plöntu sem stundum kallast
brasilískur risarabarbari, Gunnera
manicata. Mynd / wikipedia.org
Stærsta samfellda laufblað sem
þekkt er í náttúrunni er á kólfplöntu
sem kallast nykurblað, Alocasia
macrorrhizos. Mynd / wikipedia.org
Siglt á vatnaliljum í Salem í Norður-Karólínu í Bandaríkjum Norður-Ameríku
árið 1892. Mynd / wikimedia.org