Bændablaðið - 23.03.2023, Side 41
41Bændablaðið | Fimmtudagur 23. mars 2023
Lífræn hreinsistöð
• Fyrirferðalítil fullkomin
sambyggð skolphreinsistöð
• Uppfyllir ýtrustu kröfur um
gæði hreinsunar
• Engin rotþró eða siturlögn
25 ára ábyrgð
• Tæming seyru á þriggja til
fimm ára fresti
• Engir hreyfanlegir hlutir
• Stærðir frá 6 – 55 persónueiningar
Tunguhálsi 10 - 110 Reykjavík
Sími 517 2220 - petur@idnver.is
G
ra
fik
a
19
Ummynduð laufblöð venusargildru, Dionaea muscipula. Mynd / wikimedia.org
Í bók Davids Attenborough,
Einkalíf plantna, segir að lífið hjá
plöntu sem getur látið blöðin fljóta
á yfirborðinu í lygnu vatni geti verið
tiltölulega auðvelt.
„Engin gerir það með stórfeng
legri eða ágengari hætti en risavaxna
amasónliljan. Fyrst sést stór og
gildur brumhnappur á floti, alsettur
þyrnum. Hann opnast á nokkrum
klukkustundum og blaðið breiðir úr
sér. Það er með uppsveigðan jaðar,
um 15 sm háan, og getur fljótlega
ýtt frá sér öðrum flotblöðum, sem
verða á vegi þess. Að neðan er það
styrkt með öflugum rifjum. Þau eru
með lofthólfum og auka þannig
flothæfnina. Blaðið stækkar um
hálfan fermetra á dag og verður
allt að 2 metrar í þvermál. Það
er purpuralitt að neðan og með
mörgum beittum göddum, kannski
til að verjast fiskum. Á sömu plöntu
koma stundum fjörutíu eða fimmtíu
blöð á einu vaxtarskeiði, og þau
leggja undir sig yfirborð vatnsins,
svo fáar aðrar plöntur geta vaxið í
námunda við þau.“
Í grasagarðinum í Kew er
gróðurhús sem var byggt árið1852
eingöngu til að rækta risavatnaliljur.
Kjötætuplöntur
Laufblöð kjötætuplantna eru
líklega allra sérhæfðustu laufin í
plönturíkinu. Lauf venusargildru,
Dionaea muscipula, líkjast helst
munni með röð af göddum á
vörunum. Inni í munninum eða
innan á blöðunum eru svo minni
og dreifðari broddar. Fljúgi fluga
inn í opinn munninn þarf hún að
snerta þrjá af broddunum áður en
blöðin lokast snarlega og fanga
hana. Flugan lokast inni í eins konar
búri og hennar bíður ekkert annað en
að leysast upp í meltingarsafa sem
laufið framleiðir.
Laufblöð flugugleypis af
ættkvíslinni Nepenthes mynda
pokalaga belg með hálum brúnum
sem flugur og jafnvel lítil froskdýr
renna ofan í og meltast þar. Á
sumum tegundunum hefur laufið
einnig ummyndast í lok á belginn
til þess að ekki rigni ofan í hann og
bráðin hugsanlega sloppið á sundi.
Líftími laufa
Eins og nafnið gefur til kynna lifa
sumargræn laufblöð aðeins eitt
sumar en lauf sígrænna tegunda
lengur. Í hitabeltinu geta plöntur
borið laufið í nokkur ár. Lauf
barrtrjáa eru yfirleitt, en ekki alltaf,
sígræn og lifir það mislengi á
trjánum. Barr á furu stendur gjarnan
í þrjú til fimm ár en tólf til þrettán
ár á grenitrjám.
Laufgun að vori og litir haustsins
Plöntur eru skynugar á birtu og
hita og stjórnast laufgun á vorin og
undirbúningur fyrir vetur að þeim
þáttum. Þegar sólin fer að rísa og
hitinn að hækka að loknum vetri fara
plöntur að undirbúa laufgun og vöxt.
Starfsemi sígrænna plantna er fyrr á
ferðinni en sumargrænna sem þurfa að
mynda nýtt lauf á hverju ári.
Á haustin, þegar kólnar og
dimmir, hætta plöntur meðal annars
framleiðslu á blaðgrænu og grænu
kornin brotna niður. Við það verða
annars konar litaefni í blöðunum eins
og karótín sýnileg og það eru þau sem
gefa laufinu gula og rauða haustliti.
Varnir laufa
Plöntur beita ýmsum ráðum til að
verja sig fyrir grasbítum og öðrum
afætum. Til eru loðin lauf eða
laufblöð með litlum göddum eða
þyrnum. Lauf annarra tegunda gefa
frá sér varnarefni sem geta verið
verulega varasöm.
Brenninetla er dæmi um plöntu
með stökk brennihár sem gefa frá sér
vökva sem svíður undan komist hann
undir húðina. Risahvönn er önnur
varasöm planta og myndar safa sem
verður virkur í sólarljósi og getur
valdið þriðja stigs bruna.
Neríur eins og þekktar eru hér
á landi sem pottaplöntur eru taldar
með eitraðri plöntum í heiminum
og verða flest dauðsföll af þeirra
völdum eftir að dýr eða menn hafa
neytt laufblaðanna.
Laufnytjar
Auk þess sem laufblöð framleiða
súrefni og binda koltvísýring dregur
laufskrúð úr hita og eykur skjól,
litur þeirra er líka róandi. Laufblöð
eru undirstaða fæðu allra grasbíta
og um leið langflestra nytjadýra í
landbúnaði og á sama tíma hluti af
fæðu fólks um allan heim á hverjum
einasta degi.
Lauf er notað í líkingamáli
Jobsbókar 13: 2426 sem tilvísun
og vísar til tryggðar en þar segir:
Hvers vegna hylur þú auglit þitt
og lítur á mig sem óvin þinn?
Ætlarðu að skelfa skrælnað
laufblað,
ofsækja visinn reyr
þar sem þú gerir mér bitra kosti.
Nánast allt krydd sem við notum
til að bragðbæta matinn okkar er
upprunalega laufblöð. Mörg lyf eru
unnin úr laufblöðum og ekki má
gleyma að ýmis litarefni leynast
í laufi og að kaffi, te, tóbak og
lyfjahampur eru þurrkuð laufblöð.