Bændablaðið - 23.03.2023, Side 44
44 Bændablaðið | Fimmtudagur 23. mars 2023
RÁÐGJAFARMIÐSTÖÐ LANDBÚNAÐARINS
NorFor er samnorrænt fóður-
matskerfi til að reikna fóðurætlanir
fyrir jórturdýr í mjólkur- eða
kjötframleiðslu. Kerfið byggir
á fóðurrannsóknum á Norður-
löndunum og fóðurtöflu sem
inniheldur helstu hráefni sem eru
notuð á Norðurlöndum.
Nýtt líkan
fyrir orku
(NEL20) í
kjarnfóðri sem
byggir á efna-
innihaldi kjarn-
fóðursins og
meltanleika var
þróað árið 2019.
Fyrir þann
tíma var nauðsynlegt að vita
nákvæmlega hráefnasamsetningu
til að áætla orkuinnihald. Vegna
uppfærslu á meltanleikalíkaninu í
NorFor árið 2021 þurfti að uppfæra
líkanið fyrir orkuinnihald í kjarnfóðri
í kjölfarið.
Orkugildið gerir notendum
kleift að bera saman mismunandi
kjarnfóður og velja það sem er
hagkvæmast fyrir viðkomandi bú.
Því er mikilvægt að fóðursalar
uppfæri gildin í fóðurtöflunni
reglulega og gefi upp nákvæm
orkugildi. Í tengslum við
uppfærsluna var ákveðið að taka
samtals 146 kjarnfóðursýni sem
skiptust í 84 frá Danmörku, 15 frá
Íslandi, 24 frá Noregi og 23 frá
Svíþjóð til að bera spáð orkugildi út
frá efnagreiningu saman við það sem
er gefið upp í NorFor-fóðurtöflunni.
Íslensku sýnin voru flest fengin
beint frá fóðurframleiðendum en
3 sýni voru tekin úr sílóum hjá
bændum. Sýnin voru votmæld og
efnagreind með NIR-tækni hjá
Eurofins í Hollandi og niðurstöður
bornar saman við skráð gildi í
NorFor. Samhliða var líkanið fyrir
orku prófað aftur til að tryggja
öryggi þess við útreikningana.
Íslensk skráning í lagi
Ákveðið var að bæta öskuinnihaldi
inn í líkanið eftir prófun, þannig
að í dag byggir það á innihaldi
trénis, fitu, hrápróteins, ösku
og meltanleika lífræns efnis. Í
framhaldinu var líkanið notað til að
reikna út orkugildið í áðurnefndum
kjarnfóðursýnum.
Mörkin fyrir útlaga voru
samkvæmt ESB-stöðlum ± 5% frávik
frá uppgefnu gildi. Útlagar voru
samtals 35 (24%) í gagnasafninu,
aðeins 2 gildi voru hærri en uppgefið
orkugildi en 33 mældust með minni
orku en uppgefið var í fóðurtöflunni.
Sænsku sýnin voru með flesta útlaga
(46%) og þar á eftir norsku sýnin
með 33%. Sýnin frá Danmörku og
Íslandi komu nokkuð vel út þar
sem útlagar voru 14% og 13%, sem
þýðir að aðeins féllu tvö af íslensku
sýnunum utan marka (mynd 1).
Með því að skoða samband allra
þátta í líkaninu og útlagana kom í
ljós að trénisgildið vó mest, þ.e.a.s.
því meiri breytileiki í efnagreindu
og uppgefnu trénisinnihaldi í
fóðurtöflunni, þess meiri breytileiki
var á raunverulegu og uppgefnu
orkugildi. Niðurstöðurnar voru
kynntar fyrir þeim íslensku
fóðurframleiðendum sem tóku
þátt í skimuninni. Góð umræða
skapaðist um mikilvægi þess að
uppfæra blöndurnar inni í NorFor-
Uppfærsla á orkugildi í NorFor og
skimun kjarnfóðurs
Ditte Clausen.
Talsverðar endurbætur hafa
verið gerðar á kynbóta mats-
útreikningum fyrir sauðfjár-
ræktina. Nýjum eiginleikum hefur
verið bætt við, vægi eiginleika í
heildareinkunn hefur verið breytt
og þá hefur opnast sá möguleiki
að bændur geta skilgreint eigin
heildareinkunn út frá sínum
forsendum í Fjárvís.
Nýir eiginleikar og
helstu breytingar
Ásamt hinum hefðbundnu
eiginleikum – gerð, fitu, frjósemi
og mjólkurlagni – er nú reiknað
kynbótamat fyrir sex nýja eiginleika:
Ómvöðva, ómfitu, fallþunga bein
áhrif, fallþunga mæðraáhrif, lífþunga
bein áhrif og lífþunga mæðraáhrif.
Ómvöðva- og ómfitumælingar
úr lambaskoðunum, sem byggja
á bakvöðvamælingu og fitu
yfir bakvöðva, eru keyrðir sem
tengdir eiginleikar saman í mati
með gerð og fitu. Með því eykst
öryggi kynbótamatsins fyrir
slátureiginleikana og það lagar
bjögun á gerðarmati hrúta sem mikið
er sett á undan. Í líkönum fyrir gerð,
fitu, ómvöðva og ómfitu er leiðrétt
fyrir þungaflokki, kyni, búi og ári.
Þá er einnig komið í gagnið
kynbótamat fyrir þunga lamba,
annars vegar fallþunga og hins
vegar lífþunga.
Þessir eiginleikar skiptast svo
aftur niður í einkunn fyrir bein áhrif
og því næst mæðraáhrif. Einkunnir
fyrir bein áhrif eiga að vera mat
á vaxtargetu lambanna sjálfra.
Einkunnir fyrir mæðraáhrif eiga að
vera mat á afurðasemi áa/dætra og á
að koma í staðinn fyrir kynbótamat
fyrir mjólkurlagni.
Lífþunga- og fallþungamælingar
eru keyrðar saman í kynbótamatinu
sem tengdir eiginleikar. Í líkönum
fyrir þunga er leiðrétt fyrir kyni,
burði lamba, fjölda lamba sem gengu
með móður, aldri móður, búi, ári og
aldri lamba við vigtun/slátrun.
Stuðst er við fyrstu lífþunga-
mælingu sem skráð er í Fjárvís
þannig að hjá þeim bændum sem
skrá lífþunga reglulega yfir haustið
þá er kynbótamat fyrir lífþunga að
segja talsvert um mæður lambsins
og hvernig lömbin eru að koma
úr sumarhögum.
Við viljum því eindregið hvetja
bændur til að vigta sem flest lömb
beint af sumarbeitinni og skrá
vigtina inn í Fjárvís. Það stendur
til að keyra kynbótamat fyrir þunga
reglulega yfir sláturtíðina næsta
haust og því gætu bændur sem skrá
líf- og fallþunga í Fjárvís fengið
uppfærslu á kynbótamati gripanna
eftir hverja keyrslu. Mælingar
fyrir lífþunga lamba sem og
fallþungamælingar sem tínast inn
nýtast til að reikna mat á eftirlifandi
gripi og ætti að auðvelda endanlegt
val á ásetningslömbum.
Vægi eiginleika í nýrri
heildareinkunn kynbótamats
Ástæður fyrir því að vægi
heildareinkunnar hefur verið breytt
eru aðallega tvær. Í fyrsta lagi var þörf
á að draga úr vægi fitunnar. Áherslan
í ræktunarstarfinu á fitu hefur í raun
verið á síðustu árum að halda henni
í horfinu frekar en að leggja áherslu
á að minnka hana. Jafnvel hefur það
hentað sumum að auka hana en í
heildina þarf að halda henni hæfilegri.
Þetta hefur endurspeglast í vali á
hrútum inn á stöðvarnar en reynt hefur
verið að hafa í boði hrútakost sem er
breytilegur m.t.t. fitusöfnunar þannig
að bændur geti valið gripi eftir því
hvað hentar á hverju búi.
Samkvæmt ræktunarmark-
miðunum skal stefnt að því að um
90% framleiðslunnar fari í fituflokka
2 og 3 en síðasta haust fór einmitt
90 % dilka í þessa tvo flokka. Vægi
fitu í heildareinkunn kynbótamats
var 16,5 % en í nýrri heildareinkunn
verður það sáralítið, eða 5%.
Hugmyndir eru á lofti um að þróa
kynbótamatið í framtíðinni á þann
hátt að fitueinkunnin hafi ákveðið
kjörgildi og öfgarnar virki neikvætt
í báðar áttir.
Hin ástæðan er að nauðsynlegt
var að endurskoða vægið þegar
nýir eiginleikar bættust við
kynbótamatsútreikninga. Að
sinni mun kynbótamat fyrir
ómmælingar ekki vega inn í
heildareinkunn, enda er nú tekið
tillit til þeirra í kynbótamati
fyrir gerð og fitu sem eru
ræktunarmarkmiðseiginleikarnir.
Þá munu eiginleikarnir „lífþungi
bein áhrif“ og „lífþungi mæðraáhrif“,
a.m.k. fyrst um sinn, ekki
hafa vægi í heildareinkunn.
Ræktunarmarkmiðs eiginleikinn
er fallþungi en horft til lífþunga
sem viðbótarupplýsinga.
Ákveðið var að setja 20% vægi
á „fallþungi bein áhrif“ og 20% á
„fallþungi mæðraáhrif“ og vega
því fallþungaeiginleikarnir 40%
í nýrri heildareinkunn. Áður var
mjókurlagni með 33,3% vægi en
mun hér eftir ekki hafa sérstakt
vægi. Sú einkunn verður þó
reiknuð og birt fyrst um sinn.
Ný vægi hafa verið samþykkt af
fagráði í sauðfjárrækt og verður
heildareinkunn gripa uppfærð í
Fjárvís á næstunni.
Einkunn bónda
Í kynbótamatsyfirlitinu í Fjárvís
hefur ásamt nýju eiginleikunum sex
einnig bæst við dálkur sem heitir
„Einkunn bónda“. Með því að fara
inn í - Notandi – og svo – Stillingar
– geta bændur skilgreint sína eigin
heildareinkunn sem birtist í þessum
nýja dálki. Bændur geta því sett sín
eigin ræktunarmarkmið og raðað
upp gripum búsins út frá þeim
forsendum.
Eyþór Einarsson og
Þórdís Þórarinsdóttir,
ráðunautar hjá RML.
Eyþór Einarsson og Þórdís
Þórarinsdóttir.
Vægisbreytingar og fjölgun eiginleika
– Kynbótamat í sauðfjárrækt
Myndin sýnir vægi eiginleikanna í nýrri
heildareinkunn kynbótamats. Fyrir breytingu
var vægið: Gerð 16,5%, Fita 16,5%, Frjósemi
33% og Mjólkurlagni 33%..
Af lifandi sæðingastöðvarhrútum stendur Angi 18-882 frá Borgarfelli
efstur samkvæmt nýrri heildareinkunn.
Mynd 1. Spáð orkuinnihald samkvæmt líkaninu (x-ás) borið saman við skráð orkuinnihald í NorFor-fóðurtöflu (y-ás).
Útlínur samkvæmt ESB viðmiði (±5%) eru sýndar með punktalínum. Íslensku sýnin eru merkt með gult x. Útlagar
eru rauðlitaðir (Alvarez, et al. 2022).