Bændablaðið - 23.03.2023, Page 46
46 Bændablaðið | Fimmtudagur 23. mars 2023
Í þessarri grein verður fjallað um
plöntunæringarefnið kalí (K),
hegðun þess í jarðvegi, hlutverk
þess hjá plöntum og dýrum.
Sömuleiðis
hvernig við
höldum því í
hringrás innan
búsins og hvernig
kalí hefur þróast
í heyjum og
jarðvegi undan-
farin ár.
Hegðun og hlutverk kalís
Kalí er eitt af sex mikilvægustu
næringarefnum plantna og dýra og
er hlutverk þess margþætt (mynd
1). Kalí losnar úr bergi við veðrun,
en magn þess í íslensku bergi getur
verið frá 0,02% upp í u.þ.b. 5%.
Minnst af kalí er í basalti og mest
í líparíti.
Kalí er í formi kalíjónar (K+)
í jarðvegslausninni og myndar
ekki efnasambönd við leirsteindir
eða sölt í íslenskum jarðvegi. Það
getur hangið á jarðvegsögnum
með svokallaðri rafbindingu en
bindingin er veik og því á kalí
auðvelt með að skolast úr jarðvegi
og í grunnvatn. Kalí er ekki
rokgjarnt og getur því ekki gufað
upp eins og t.d. köfnunarefni eða
brennisteinn. Það myndar ekki
torleyst efnasambönd í jarðvegi
líkt og t.d. fosfór. Kalí er því mjög
hreyfanlegt í bæði jarðvegi og innan
veggja plantna.
Hringrás kalís innan búsins
Kalí er meira og minna í hringrás
innan hvers bús. Mjög.lítill
hluti þess er í kjöti eða mjólk
og því er bara lítill hluti þess
tekinn úr hringrásinni við það.
Þegar tilraunabú var starfandi á
Möðruvöllum þá reiknaðist út úr
næringarefnabókhaldinu þar að um
5% kalís færi út úr búinu í gegnum
sölu á mjólk og kjöti.
Önnur leið fyrir kalí út úr
hringrás búsins er þegar hey er selt,
eða jafnvel þegar heyfyrningar eru
notaðar í uppgræðslu lands. Þá er
ótalið tap á kalí í heyi sem er aldrei
nýtt og er geymt óhreyft í plasti eða
öðrum geymslum.
Mesta hættan á tapi á kalí út
úr hringrás hvers bús er þó þegar
afrennsli verður af túnum eða þegar
útskolun verður úr jarðvegi (mynd
2). Mesta taphættan er á landsvæðum
þar sem haust og/eða vetrarrigningar
eru tíðar, þar sem sýrustig er lágt og/
eða þar sem haust- og vetrardreifing
á búfjáráburði er mikið stunduð.
Hægt er að minnka útskolun kalís
úr jarðvegi með því að gæta þess að
sýrustig jarðvegs sé ekki of lágt og
minnka má afrennsli kalís af túnum
með því að dreifa sem stærstum
hluta búfjáráburðarins sem fellur
til á búinu á vormánuðum, eða áður
en gróandi ársins vetrar sig fyrir
næsta vetur.
Sá búfjáráburður sem fellur til
á búum er yfirleitt mjög ríkur af
kalí og er nauðsynlegt að nýting
hans sé sem best. Hins vegar ef
búfjáráburði er dreift á tún seint á
haustin eða fyrri hluta vetrar er talið
að ekki nema rúmlega helmingur
kalís í búfjáráburðinum nýtist fyrir
gróður á næsta vaxtartímabili.
Restin tapast vegna afrennslis af
yfirborði túna, eða útskolunar úr
jarðvegi.
Veðurfar spilar einnig stóra
rullu í því hversu mikið tapið getur
orðið. Kalí nýtist best þegar það er
borið á við byrjun vaxtartíma eða
á meðan hann stendur yfir, þ.e.a.s.
vorin og sumrin.
Mikið magn af kalí er fjarlægt
með uppskeru. Ef við reiknum
með að innihald kalís í heyjum sé
15-20 g/kg þurrefnis og reiknum
með að meðaluppskera í heyjum
sé 5 þurrefnistonn á hektara, þá er
fjarlægt u.þ.b. 75-100 kg af kalí á
hvern hektara sem er uppskorinn.
Til samanburðar gefa 600 kg/
ha af NPK áburðinum 20-10-10
tæplega 50 kg K/ha og uppfyllir
aðeins 50-75% af því kalí sem
fjarlægt er með uppskeru í þessu
dæmi. Hér er ekki verið að reikna
neinn búfjáráburð inn í dæmið en
nýting hans getur vegið þungt. Það
þarf vissulega að hafa í huga að dýr
gera mismunandi kröfur um kalí
í sínu fóðri. Þar spilar inní hvaða
tegund búfjár eða ástandi dýrsins t.d.
það sé í vexti, hvort það sé að mjólka
og hvers mikið eða hvort það sé í
geldstöðu. Efnamagn kalís í heyjum
ásamt öðrum næringarefnum þarf að
taka mið af því.
Þróun kalís í heyjum
Heyefnagreiningar sem gerðar af
uppskeru bænda á árunum 2020-
2022 sýna að magn kalís fari að
meðaltali lækkandi í heyjum á
landsvísu (mynd 3). Þá hefur hey
með há gildi eða yfirdrifið magn
kalís fækkað. Sú staðreynd í sjálfu
sér er allt í lagi, en verra er að
heyjum sem eru um og í kringum
skortsmörk hefur verið að fjölga.
Af þeim heyefnagreiningum sem
voru framkvæmdar í fyrra þá voru
17% sýna annaðhvort takmarkandi
fyrir hámarksuppskeru eða fyrir neðan
skortsmörk, árið 2020 voru 13% sýna
í þessum tveim flokkum, þetta hlutfall
þyrfti helst að vera sem minnst. Þegar
kalí er minna en 12 g/kg þurrefnis er
talið að kalí sé orðinn takmarkandi
þáttur fyrir hámarksuppskeru og ef
kalí í heysýnum er í kringum eða
fyrir neðan 8 g/kg þurrefnis þá er
kalískortur sjáanlegur á blöðum grasa.
Hafa skal í huga að kalí getur
verið takmarkandi fyrir hámarksvöxt
áður en grös sína skortseinkenni
kalís.Skortseinkennin lýsa sér
þannig að plantan verður ljósgul
og blaðendar á eldri blöðum grasa
byrjar að gulna og sölna (mynd 4).
Það fer svo eftir því hversu mikill
skorturinn er eða hvað hann varir
lengi hversu langt grasið gulnar og
sölnar niður blöðin.
Þróun kalís í uppskeru
Jarðvegssýnaniðurstöður frá
bændum á frá árunum 2019-2022
(mynd 5) sýna að forði kalís í
ræktunarjarðvegi þeirra er mjög
breytilegur. Rúmur helmingur
allra sýna sem tekin voru á þessu
tímabili sýna að forði kalís í
jarðvegi er lágur eða mjög lágur
og hlutdeild jarðvegssýna sem
eru í flokknum „mjög lágt“ fer
hækkandi milli ára. Á meðan
lækkar hlutfall sýna í flokkunum
„Gott“, „Hátt“ og „Yfirdrifið“.
Þetta gefur vísbendingu um að á
minnsta kosti allra síðustu árum
hefur verið gengið á byrgðir kalís
í ræktarlandinu. Jarðvegssýni með
lág kalígildi þola illa að sparað sé
við kalígjöf á þeim án þess að það
komi niður á uppskerunni. Líklegt
er að jarðvegur með lítinn forða
kalís svari aukinni kalígjöf með
meiri uppskeru.
Langtíma áburðartilraunir
voru framkvæmdar hér á landi á
síðustu öld í fjóra áratugi, fram
yfir aldamót. Þær leiddu í ljós að
efnajöfnuður kalís var neikvæður
allan tilraunatímann, s.s. meira
kalí var fjarlægt með uppskeru en
var bætt upp með áburðargjöf. Í
uppgjöri tilraunanna kom fram að
búið var að ganga verulega á forða
kalís í jarðvegi á reitum sem fengu
hefðbundna áburðaskammta. Það gaf
vísbendingar um að kalí í jarðvegi
væri ekki óþrjótandi auðlind sem
hægt væri að ganga á endalaust.
Mikilvægt er að fylgjast með
næringarefnastöðu heyja og
jarðvegs reglulega. Þá er hægt að
bregðast við því ef fóður uppfyllir
ekki nægjanlega þarfir gripa,
eða til þess að sporna við því að
eitthvert plöntunæringarefni verði
takmarkandi fyrir uppskeru. Þróun
kalís í heyjum og í jarðvegi hefur
verið nokkuð neikvæð allra seinustu
ár og þá virðist forði jarðvegs á kalí
vera að lækka nokkuð hratt.
Sigurður Max Jónsson,
ráðunautur hjá RML
RÁÐGJAFARMIÐSTÖÐ LANDBÚNAÐARINS
Plöntunæringarefnið kalí (K), hlutverk, hringrás
og þróun þess í uppskeru og í jarðvegi
Mynd 1: Helstu hlutverk kalís í plöntum og í dýrum.
Sigurður Max
Jónsson.
Mynd 2: Hringrás kalís innan ræktarlands hvers bús: Græna örin sýnir hvernig
við bætum kalí inn í hringrásina. Gulu örvarnar sýna hvernig kalí fer út úr
hringrásinni, en í frekar litlum mæli. Rauða örin táknar mögulegt tap kalís
út úr hringrásinni vegna afrennslis eða útskolunar úr jarðvegi.
Mynd 3: Dreifing kalís í heysýnum á árunum 2020-2022, skipt upp í ýmsa
flokka miðað við magn kalís í þurrefni.
Mynd 4: Kalískortur í grasi, gulir og sölnaðir blaðendar eru merki um kalískort.
Mynd 5: Dreifing kalís í jarðvegssýnum frá árunum 2019-2022, skipt upp í
ýmsa flokka miðað við magn kalís í jarðvegi.