Bændablaðið - 23.03.2023, Side 50
50 Bændablaðið | Fimmtudagur 23. mars 2023
LESENDARÝNI
Í þessari grein verða tvö atriði
skoðuð nánar sem tæpt var á í
grein í þarsíðasta blaði (4. tbl.
2023). Annað er markmiðssetning
laga um dýravernd frá því að
fyrstu lögin voru sett allt fram til
núgildandi laga.
Hitt er svo
yfirferð þeirra
krafna sem
núgildandi lög
gera um velferð
hrossa og hvernig
hrossahaldið í
sínum fjöl-
breyttu myndum
fullnægir þeim.
Markmið laga um vernd
og velferð dýra
Hér í byrjun skal minnst á að lögin
nr. 34/1915 um dýravernd voru ekki
fyrstu ákvæðin í íslenskum rétti sem
lutu að vernd dýra. Þannig var sett
áður svohljóðandi ákvæði í almenn
hegningarlög; 299. gr. hgl. 1869:
„Hver sá sem verður brotlegur í
þrælslegri misþyrmingu eða annarri
grimmdarfullri meðferð á skepnum,
einkum húsdýrum, skal sæta sektum
allt að 100 rd. eða einföldu fangelsi
allt að 4 mánuðum.“ Þessu ákvæði
var þó erfitt að fylgja eftir þar eð
svo mikil brögð þurftu að vera að
hinni illu meðferð. Með lögunum
frá 1915 átti að auka skýrleikann. Þó
rataði ákvæði sem lutu að dýravernd
að nýju inn í hegningarlögin við
setningu almennra hegningarlaga
nr. 19/1940 og var um leið
fellt út úr lögum 34/1915. Það
breyttist svo aftur með setningu
dýraverndarlaganna nr. 21/1957.
Fleiri lög snertu dýravernd
en sérlögin, s.s. lög um geldingu
húsdýra (1935) og útflutning hrossa
(1907). Ekki verður nánar um þau
fjallað hér en á síðari hluta 19. aldar
var farið að ræða það áherslumál að
setja þyrfti lög er skylduðu bændur
til að haga ásetningi búpenings
í samræmi við heyforða sinn og
tryggja eftirlit með því að menn
skeyttu slíku boði. Fyrstu lögin um
þetta efni eru frá 1884. Þeim var
ítrekað breytt, s.s. með lögum nr.
44/1913 „um forðagæzlu“, runnu
þau síðar inn í almenn lög um
búfjárhald.
Grunnur vandamálsins sem kallar
á lög sem þessi er hve heyöflun var
lengi harðsótt og óviss á Íslandi sem
gerði að verkum að jafnvel djarfir
og stórhuga bændur gátu lent í
vandræðum í hörðum árum og hvað
þá hinir. Á nítjándu öld var landið
að losna úr klakaböndum stöðnunar.
Árið 1851 var breskum skipum fyrst
leyft að sigla hingað til lands. Hófst
þar með reglulegur útflutningur; s.s.
mikil sauðasala og hrossa.
Á árunum 1851 til 1900 voru
flutt úr landi liðlega 65 þúsund
hross og mest 5700 hross á einu
ári. Sölutekjurnar urðu grunnur
að sjálfseignarábúð margra bænda
og almennra framfara en leiddi
óhjákvæmilega til þess freistnivanda
að setja full djarflega á. Á þessu
vandamáli átti og að taka af krafti
með lögunum frá 1915 með því
að skylda bændur til að eiga hús
fyrir allt búfé sitt og taka þar með
algerlega fyrir útigang og með því
væntanlega að tryggja gjöf. Þessu
var þó breytt í meðförum þingsins.
Menn sem albest til þekktu,
s.s. Theodór Arnbjörnsson
hrossaræktarráðunautur, sem
jafnframt var umsjónarmaður
fóðurbirgðafélaganna, sýndi fram
á í bók sinni Hestar (1931) að
útgjöf eftir þörfum væri stóðinu
hollari en að loka það inni í húsum.
Vissulega gæti verið vandkvæðum
háð að koma gjöfinni í stóðið en
hann fitjaði upp á ýmsum lausnum
í ritinu hvað það varðaði sem svo
voru þróaðar áfram eftir því sem
tækninni vatt fram. Þetta vandamál
er núna algerlega úr sögunni, rétt
eins og skortur á heyi almennt séð,
vegna byltingarkenndra framfara í
heyverkun og véltækni.
Við skoðun og samanburð
laganna frá 1915 og hegningar-
lagaákvæðisins sem gilti fyrir og
svo laganna frá 1957 sést að á
þessu tímabili verður sú þróun,
að sú jákvæða skylda að fara vel
með dýr tekur yfir bannið sem
áður gilti við að fara illa með þau.
Á þessu er svo enn frekar hnykkt í
lögum nr. 15/1994, um dýravernd.
Í núgildandi lögum, nr. 55/2013, er
síðan stigið stórt skref í átt til þess
að auka hlut dýranna með því að
setja ekki einungis á oddinn að þau
séu andlag verndar og vel skuli farið
með þau, heldur með að benda á
sjálfstæðan rétt þeirra, því að þau
séu skyni gæddar verur sem eigi að
fá að sýna sitt eðlilega atferli eins
og frekast sé unnt. Auk þess að tala
um velferð dýra í stað dýraverndar.
Þegar umræðurnar frá 1915 og
eins 1956 til ´57 eru skoðaðar, sést
að þingmenn voru ekki á eitt sáttir
um það hvar málaflokkurinn skyldi
vera. Þannig greindi þingmenn
1915 á um hvort vísa ætti málinu
til landbúnaðarnefndar eða ekki
og svo hvort það ætti heima
undir landbúnaðarráðuneytinu
eða menntamálaráðuneytinu við
afgreiðsluna 1957. Úr varð að málið
fór ekki til landbúnaðarnefndar
1915, það varð áfram undir
menntamálaráðherra 1957 og fór
svo til umhverfisráðuneytisins
við stofnun þess. Hins vegar
er málaflokkurinn nú undir
matvælaráðherra, svo segja má að
tillagan sem var felld 1915, hvað
forræði málaflokksins varðar, er nú
orðin ofan á.
Núgildandi lagakröfur
til hrossahalds
Fyrsta grein núgildandi laga er
svohljóðandi: „Markmið laga
þessara er að stuðla að velferð dýra,
þ.e. að þau séu laus við vanlíðan,
hungur og þorsta, ótta og þjáningu,
sársauka, meiðsli og sjúkdóma,
í ljósi þess að dýr eru skyni
gæddar verur. Enn fremur er það
markmið laganna að þau geti sýnt
sitt eðlilega atferli eins og frekast
er unnt.“ Í undirköflum og hinum
ýmsu reglugerðargreinum eru
lagakröfurnar svo sundurgreindar
nánar. Útfærslur og sérkröfur á
grunni þessara rammalaga eru
svo settar fram í reglugerð, hvað
hrossin varðar í rg. nr. 910/2014, um
velferð hrossa og rg. nr. 900/2022,
um blóðtöku úr fylfullum hryssum.
Hrossahald hefur tekið
stórfelldum framförum á umliðnum
árum og áratugum; tamningu,
reiðmennsku, húsakosti og umhirðu
allri. Allt fagstarf sem lýtur að
tamningu og meðferð fer nú fram
á forsendum hestsins, þannig
lærir hann á þeim forsendum að
tamningamaðurinn eða þjálfarinn
sé leiðtoginn. Jafnframt hafa
þeir sem virkilegum árangri hafa
náð í greininni áttað sig á að
„framfarirnar“ megi aldrei ganga
svo langt að verði andstæðar
eðli hestsins sem dýrategundar;
„hesturinn fái að vera hestur“, eins
og stundum er komist að orði.
Hvað hið síðastnefnda varðar
er fátt hollara né þjónar betur anda
laganna en að hesturinn fái notið
útivistar og frelsis, engin hross
standa betur hvað það varðar en þau
sem eru í blóðnytjum og útiveran
árið um kring er fullkomlega í
anda laga, reglugerða og góðra
búskaparhátta.
Kristinn Hugason,
samskiptastjóri Ísteka.
Kristinn
Hugason,
Velferð hrossa
– Seinni grein
„Theodór Arnbjörnsson hrossaræktarráðunautur sýndi fram á í bók sinni
Hestar (1931) að útgjöf eftir þörfum væri stóðinu hollari en að loka það inni
í húsum,“ segir Kristinn meðal annars í grein sinni. Mynd / ghp
Birt m
eð fyrirvara um
m
ynd- og textabrengl. Bílabúð Benna áskilur sér rétt til að breyta verði og búnaði án fyrirvara. Bíll á m
ynd er m
eð aukabúnaði. Eigum jeppa til afendingar.
Rexton
lúxus ferðafélagi!
Bílabúð Benna
kolefnisjafnar selda bíla
Bílabúð Benna
Reykjavík
Krókháls 9
Sími: 590 2020
Nánari upplýsingar á
benni.is
• Byggður á grind
• Hátt og lágt drif
• Sparneytin dísel vél
• Læstur millikassi
• Sjálfstæð fjöðrun
• 7 manna
• Læst afturdrif*
• 3 t dráttargeta
• 5 ára ábyrgð
Rexton
* Í Adventure og Ultimate.
Það má draga mikinn lærdóm
af reynslu Nýsjálendinga. Þar
er nú andvirði milljarða króna
varið árlega til að verja landslag
og lífríki fyrir innfluttum
trjátegundum sem hafa verið að
dreifast þar með veldisvaxandi
hraða út frá ræktunarsvæðum
sem kostuð voru af ríkinu.
S t a f a f u r a ,
okkar mest
ræktaða trjá-
tegund, ber þar
hæst og er talið
eitt skæðasta
illgresi Nýja-
Sjálands.
Í þessu
ljósi var það
óneitanlega athyglisvert að sjá
nýlega auglýsingu frá Skógræktinni
sem um þessar mundir vekur athygli
á lausu starfi skógræktarráðgjafa.
Auglýsinguna prýðir mynd af lítilli
stafafuru sem er að vaxa upp í
lyngmóa. Ég gat ekki annað en velt
fyrir mér mögulegum tengslum
myndefnisins við hlutverk þessa
nýja starfsmanns.
Þá leitar fyrst á hugann hvort
þessi fura eigi að undirstrika áherslu
á yfirtöku stórvöxnu tegundanna
og stuðla með því að falli hinna
„ómerkilegu“ innlendu vistkerfa
svo sem mólendis. Verkefni
starfsmannsins væri þar með að
vinna að útbreiðslu furu og fleiri
innfluttra tegunda.
Eða á hlutverk starfsmannsins
þvert á móti að vera að koma í
veg fyrir útbreiðslu þessara
tegunda utan skýrt afmarkaðra
ræktunarsvæða? Munum við þá
jafnvel sjá starfsmanninn trítla um
hagann við að uppræta villibarr,
afsprengi þeirrar takmarkalausu
gróðursetningar barrtegunda sem
nú er stunduð? Kannski mun hann
bera sig saman við kollega sína á
Nýja-Sjálandi, líkt og stúlkuna sem
prýðir forsíðu þarlends bæklings
um stríðið gegn illgresi. Hvað lágu
margar furur í valnum í dag?
Ólíkt hafast þjóðir að! Þeir
sem vilja kynna sér baráttuna
við „villibarrið“ sem nú er háð á
Nýja-Sjálandi geta nálgast frekari
upplýsingar á natturuvinir.is.
Andrés Arnalds
náttúrufræðingur.
Ágeng barrtré:
Verðmæti eða vandamál?
Andrés Arnalds.
Þú finnur Bændablaðið
á www.bbl.is,
Facebook & Instagram