Bændablaðið - 27.04.2023, Side 2
2 Bændablaðið | Fimmtudagur 27. apríl 2023
FRÉTTIR
Gæði fyrir dýrin og þig!
FB Reykjavík
Korngarðar 12
570 9800
FB Selfoss
Austurvegur 64 a
570 9840
FB Hvolsvöllur
Duftþaksbraut 1
570 9850
www.fodur.is
fodur@fodur.is
Viðurkenningar á fagfundi sauðfjárræktarinnar 2023:
Brúnastaðir ræktunarbú ársins
– Galli var valinn besti lambafaðirinn og Viddi besti alhliðahrútur sæðingastöðvanna
Á fagfundi sauðfjárræktarinnar
13. apríl voru veittar viður
kenningar fyrir góðan árangur í
sauðfjárrækt.
Sauðfjárræktarráðunautar Ráð-
gjafarmiðstöðvar landbúnaðarins
(RML) útnefndu Brúnastaði í
Flóahreppi ræktunarbú ársins 2022,
besti lambafaðir sæðingastöðvanna
á síðasta ári var Galli frá Hesti í
Borgarfirði og þá var Viddi frá
Fremri-Gufudal í Gufudalssveit
valinn besti alhliða kynbótahrútur
sæðingastöðvanna.
Það var Eyþór Einarsson,
ráðunautur hjá RML, sem kynnti
niðurstöður fagráðsins. Í máli
hans kom fram að ræktunarbú
ársins væri nú útnefnt í annað
skiptið. Forsendurnar fyrir valinu
væru heildareinkunn kynbótamats
fyrir ærnar á viðkomandi búi,
en reiknuð er heildareinkunn á
allar kindur fæddar 2012 til 2021.
Meðalkynbótaeinkunn búsins er
108,1 BLUP-stig og sagði Eyþór
að það stæði afgerandi hæst allra
búa í landinu
Brúnastaðir hljóta
Halldórsskjöldinn
Brúnastaðir hljóta því Halldórs-
skjöldinn 2022. Í rökstuðningi
Eyþórs kom fram að til að bú
komi til álita þurfi það að uppfylla
ýmsar kröfur um afurðir í takti við
núgildandi ræktunarmarkmið og
komast inn á lista yfir úrvalsbú sem
birtur er á vef RML.
Eyþór sagði að á Brúnastöðum
hafi ræktun á þeim sauðfjárstofni
sem þar er í dag hafist árið 1952
þegar tekið var nýtt fé eftir
mæðuveikifjárskiptin.
Stofnkindurnar komu úr
Suður-Þingeyjarsýslu
Að sögn Eyþórs komu stofnkindurnar
í ræktun Brúnastaða úr Suður-
Þingeyjarsýslu, úr Aðaldalnum, frá
Húsavík og af Tjörnesinu. „Árið
eftir var fenginn hrútur frá Hóli í
Kelduhverfi sem Hrappur hét og
reyndist happafengur. Ákveðin
straumhvörf urðu síðan í fjárræktinni
á búinu þegar byggð voru ný fjárhús
1983 sem skilaði því að afurðirnar
jukust og ræktunaráhuginn
magnaðist.
„Sauðfjársæðingar hafa
lengi verið stundaðar af kappi á
Brúnastöðum, eða allt frá árinu
1968. Þannig hefur lengi verið sótt
í það besta erfðaefni sem í boði er á
hverjum tíma. Hrútar frá Hesti hafa
mikið verið notaðir þar og reynst
farsællega.
Eyþór nefndi nokkra hrúta sem
markað hafa spor í ræktuninni
á Brúnastöðum; Jarl 90-311
frá Oddgeirshólum og síðan
heimahrútana, Blæ 91-312, sem
var sonur Fóla 88-911 frá Hesti og
dótturson Arons 83-825 frá Hesti;
Kristal 02-079, son Lóða 00-871
frá Hesti og dótturson Garps 92-808
frá Lækjarhúsum og Sorti 16-079,
son Jónasar 12-949 frá Miðgarði
og dótturson Guma 09-880 frá
Borgarfelli. „Þá var til á búinu hrútur
sem þótti algjört metfé sem Sómi hét
96-500, sonur Búts 93-982 frá Hesti
og var hann falaður af stöðvunum
en varð síðan of skammlífur til
að það gengi eftir. Í meira en
áratug hefur búið síðan ekki verið
aðgengilegt sæðingastöðvunum þar
sem sauðfjárveikivarnarhólfið hefur
verið lokað,“ sagði Eyþór.
Fjárfjöldi á bilinu 140–150
Eyþór sagði að á Brúnastöðum
væri stundaður blandaður búskapur
og hefur fjárfjöldi þar yfirleitt verið
140 til 150. Brúnastaðabændur væru
landsþekktir ræktunarmenn, hvort
sem um nautgripi, hross eða sauðfé
væri að ræða. Þar fari greinilega
saman góð fjármennska, áhugi og
þekking á búfjárkynbótum. Sagði
hann að líkt og birtist í niðurstöðum
skýrsluhaldsins í sauðfjárrækt hefur
búið lengi verið í fremstu röð fyrir
afurðir og frábæra gerð sláturlamba
og stundum staðið efst allra búa í þeim
eiginleika.
Galli í hópi mest notaðra hrúta
Eyþór sagði Galla 20-875 frá
Hesti vera kominn af þekktum
kynbótahrútum Hestbúsins, en reki
einnig ættir í Vestur-Húnavatnssýslu
og Norður-Þingeyjarsýslu; sonur
Mínusar 16-827 frá Mýrum 2 í
Hrútafirði og föðurfaðir hans er því
Hvati 13-926 frá Hesti. Móðurfaðir
Galla er Durtur 16-994 frá Hesti.
„Galli var valinn á sæðingastöð á
grunni afkvæmarannsóknar á Hesti
haustið 2021. Galli var í hópi mest
notuðu stöðvahrúta bæði árin sem
hann hefur verið á stöð. Haustið 2022
voru stigaðir rúmlega 200 synir hans
vítt og breitt um landið. Þeir voru
yfir meðaltali fyrir flesta eiginleika.
Synir hans voru með næstþykkasta
bakvöðvann, aðeins undir í lífþunga
og á meðaltali fyrir ull og samræmi.
Hann átti mikið úrval glæsilegra
ásetningshrúta og átti Galli meðal
annars fjóra lambhrúta með 90,0-90,5
í heildarstig. Dæmdar voru rúmlega
300 gimbrar undan Galla og voru 2/3
af hópnum með 18,0 stig eða meira í
lærastig og nokkuð yfir 100 gimbrar
voru með 33 millimetra bakvöðva eða
meira og alveg upp í 42 millimetra,“
sagði Eyþór.
Afgerandi efstir í
afkvæmarannsókn
Það var Árni Bragason sem afhenti
viðurkenninguna fyrir Vidda 16-
820. Hann sagði að Viddi væri einn
þeirra kollóttu stöðvahrúta sem eru
afkomandi Hnokka 12-047 frá Árbæ
í Reykhólasveit. „Hnokki hefur haft
mikil áhrif á ræktun kollótta fjárins
í landinu þó að hann yrði aldrei
stöðvahrútur sjálfur. Faðir Vidda,
Deddi, 15-410 var fæddur í Árbæ
og sonur Hnokka 12-047. Móðir
Vidda var einnig undan hrúti sem
fenginn var í Árbæ og var hann
sonur Dags 11-034 frá Árbæ. Dagur
þessi stendur einnig að baki nokkurra
kollóttra stöðvahrúta sem eiga ættir
að rekja að Árbæ. Viddi rekur því
ættir sínar að stórum hluta til öflugra
kynbótahrúta í Árbæ. Móðir Vidda,
Katnis 15-568, var svartbotnótt
og frábær afurðaær. Hún bar 14
lömbum á sex árum, tvílembd sem
gemlingur, síðan tvisvar fjórlembd
og tvisvar tvílembd en geld síðasta
árið. Hún var með 9,5 afurðastig
fyrir æviferilinn.
Viddi var valinn til notkunar á
sæðingastöðvunum sumarið 2019.
Hann, tveir synir hans og hálfbróðir
höfðu þá staðið afgerandi efstir í
afkvæmarannsókn heima í Fremri-
Gufudal haustið 2018. Viddi byrjaði
ferilinn í Þorleifskoti og voru sæddar
með honum 572 ær. Veturinn eftir
var hann í Borgarnesi og sæddar með
honum 480 ær. Honum entist síðan
ekki aldur fram til næsta fengitíma
og nýttist því aðeins tvö ár í þjónustu
stöðvanna.“ /smh
Einar Hafliðason, Fremri-Gufudal, Elín Magnúsdóttir og Ágúst Ingi Ketilsson, Brúnastöðum, Eyjólfur Kristinn
Örnólfsson frá Landbúnaðarháskóla Íslands fyrir Hestbúið og Logi Sigurðsson, bústjóri á Hesti.
Mynd / Rósa Björk Jónsdóttir
Galli frá Hesti í Borgarfirði. Viddi frá Fremri-Gufudal í Gufudalssveit.
Afurðaverð nautgripa að hækka
Töluverðar verðhækkanir hafa átt sér stað undanfarna
mánuði á afurðaverði til nautgripabænda. Hækkanir
hafa numið allt að rúmum tuttugu prósentum.
Aukin eftirspurn eftir nautakjöti hefur birst í
hækkunum afurðastöðva á afurðaverði á undanförnum
mánuðum. Nú þegar hafa allar afurðastöðvarnar hækkað
verð sitt það sem af er ári og sumar þeirra hafa hækkað
verðskrár sínar þrisvar.
Rafn Bergsson, formaður búgreinadeildar
nautgripabænda, segir að hækkanirnar séu vissulega
kærkomnar enda hafi staða nautakjötsframleiðslu verið
afar erfið að undanförnu. „Við höfum séð fækkun á
ásettum gripum en vonandi er þróunin að snúast við. Það
er auðvitað þriggja ára ferli að framleiða gripi þannig
að áhrifin koma kannski ekki fram strax.“
Ef skoðuð er hækkun UN gripa frá janúar til og
með hækkununum sem tóku gildi 17. apríl sl. nemur
hún allt að rúmum 20% í flokkum yfir 200 kg. Undir
200 kg flokkur UN gripa hækkar mun minna og flestar
afurðastöðvar hafa ekki hreyft þá verðskrá það sem af
er ári, að SS undanskildu.
VATN vísitalan, sem búgreinadeild nautgripabænda
hefur haldið utan um, hefur hækkað um 6% frá janúar til
mars. Stærstu verðhækkanirnar áttu sér þó stað í mars og
apríl en tölur til að uppfæra vísitöluna fyrir apríl liggja
ekki enn fyrir. Búast má við því að hækkanirnar komi
sterkar fram við næstu uppfærslu VATN vísitölunnar.
/HS-ghp
VATN vísitalan hefur hækkað um 6% frá janúar til mars.
Appelsínugula línan táknar VATN vísitöluna en sú gráa
vísitölu neysluverðs.