Bændablaðið - 27.04.2023, Page 4
4 Bændablaðið | Fimmtudagur 27. apríl 2023
FRÉTTIR
Kofinn - efnislýsing
Veggir og þak: Djúprásaður
11mm furukrossviður.
Gólf: Djúprásaður 11mm krossviður.
Tenging á hornum og þakskegg:
21mm hefluð fura/greni.
Gluggar: 6mm plast (Plexi).
Límdir í gluggafals.
Afgreiðsla: Allir timburhlutar eru
afhentir ómálaðir en með fúavörn.
Hægt er að fá „kofann“ í litum skv.
samkomulagi. (ATH: Litaval er ekki
að fullu frágengið og háð nánara
samkomulagi við kaupendur).
Kofi.is, s: 6901155 netfang: kofi.is.
Kofinn: "leikhús" í garðinn -
sumarbústaðinn - leikvöllinn
Forsniðnar „bjagaðar“ einingar eru saman á hornum.
„Þvílíkur snilldar-
undirburður“
– Töluverð verðmæti gætu legið í vinnslu og notkun hálms
Kúabændur á tveimur bæjum
í Eyjafirði hafa síðan í haust
eingöngu notað heimagerðan
undirburð úr bygghálmi. Með því
telja þeir sig hafa sparað á fimmtu
milljón króna. Bændurnir eiga sér
draum um framleiðslu.
Bændur urðu varir við
aðfangaverðshækkanir í kjölfar
innrásar Rússa í Úkraínu. Samhliða
hærra heimsmarkaðsverði á timbri
fór hærra verð á undirburði að bíta
marga þá sem þurfa drjúgan skerf
af honum.
Kúabændurnir Hermann Ingi
Gunnarsson og Ingibjörg Leifsdóttir
á Klauf og Jón Elvar Hjörleifsson og
Berglind Kristinsdóttir á Hrafnagili
í Eyjafirði rækta umtalsvert mikið
af korni. Síðastliðið haust brugðu
þau á það ráð að þurrka bygghálm
og vinna úr honum undirburð með
eftirtektarverðum árangri.
Þau hirtu hálminn þurran, rúlluðu
honum með hálmstillingu, því þá er
það lausara í sér, og þurrkuðu svo
rúllurnar í kornþurrkunaraðstöðu
sinni á Hjalteyri. „Þar eru ristar í
gólfinu sem þjóna sem forþurrkun.
Við röðuðum rúllunum á ristarnar og
þær þornuðu á ótrúlega skömmum
tíma. Með því móti er fljótlegt að
mala hálminn,“ segir Jón Elvar.
Á Hjalteyri búa þeir Jón Elvar
og Hermann svo vel að hafa
aðgang að hinni kunnu færanlegu
kögglaverksmiðju Stefáns
Þórðarsonar í Teigi sem Þórður
Stefánsson, sonur hans, hefur nú
tekið við. Með vélinni var hálmurinn
malaður í undirburð. Hermanni telst
til að hafa unnið úr um 40 rúllum
og mun undirburðurinn duga þeim
báðum út árið og rúmlega það.
„Þetta er alveg þvílíkur
snilldarundirburður. Það er miklu
skemmtilegra að eiga við þetta en
sag. Hálmurinn tollir betur í básunum
og fyllir vel í þá og það verður
einhvern veginn meira úr honum,“
segir Jón Elvar. Hann nefnir einnig
að líftölumælingar hafi sýnt lægri
gildi eftir að þau tóku upp notkun á
hálminum, sem þau Berglind nota
án allra sótthreinsiefna.
Gætu sparað hundruð milljóna
króna innflutning
Ekki nóg með það, heimagerði
undirburðurinn reynist sparnaðarráð.
Þannig segist Jón Elvar hafa greitt
um 1.700 þúsund til tvær milljónir
króna í undirburð á ári, fyrir
verðhækkanir. „Kílóið er komið
upp í 100 til 150 krónur. Það er
alveg galið að kaupa þetta. Sagið
er orðið dýrara en kjarnfóðrið. Ef
kornuppskeran klikkar þá er þetta
alltaf að fara að bæta hana upp. Í
raun er hálmurinn orðinn verðmætari
en kornið.“
Sem nokkuð stórtækir korn-
ræktendur búa bændurnir því
að mögulegu hráefni til nokkuð
stórtækrar framleiðslu á undirburði.
„Draumurinn er að gera meira úr
þessu, að geta þurrkað, malað og
pakkað hálmi og selt hann. Við
gætum framleitt miklu meira en við
þurfum. Maður fær um 15 rúllur á
hektara af hálmi, oft meira. Ég einn
fæ svona 400 rúllur á ári,“ segir Jón
Elvar.
Gríðarleg tækifæri
Verðmæti slíkrar undirburðarvinnslu
gætu því orðið töluverð en Hermanni
reiknast til að bændur eyði um 400
milljónum króna á ári í innflutt sag
til undirburðar.
„Um 2.800 tonn af undirburði er
flutt til landsins á hverju ári. Það
má gera ráð fyrir því að notkun á
kúabúum séu um 2.000 tonn en svo
er hann einnig nýttur í alifuglarækt,
svínarækt og í hesthúsum. Það
eru gríðarleg tækifæri í vinnslu
undirburðar hér á landi, ekki bara
með bygghálmi – hér er líka ræktaður
sandreyr sem ég sé fyrir mér að hægt
væri að mala í undirburð. Það hlýtur
að vera kolefnisbetra fyrir okkur að
nýta eitthvað sem fellur til hér á
landi frekar en að fella tré í útlöndum
til að nota sem undirburð hér,“ segir
Hermann. /ghp
Kúabændurnir Berglind Kristinsdóttir og Jón Elvar Hjörleifsson á Hrafnagili og Hermann Ingi Gunnarsson og
Ingibjörg Leifsdóttir á Klauf í Eyjafirði hafa fundið góð not fyrir heilmikinn bygghálm sem fellur til við kornrækt.
Kýr og kálfar kunna vel við undirburðinn. Jón Elvar
segir að líftölumælingar hafi sýnt lægri gildi eftir að þau
Berglind tóku upp notkun á hálminum.
Draumur bændanna er að hefja framleiðslu á
undirburðinum sem gæti að sögn Hermanns sparað
bændum um 400 milljóna króna innflutning.
Mjólkurframleiðsla:
Ríkisstuðningur hefur
lækkað um 51%
Ef sami stuðningur hefði haldist
á hvern framleiddan mjólkurlítra
frá árinu 2004 til 2022, væru
beingreiðslur 106 prósent hærri. Frá
þessu er greint í ársskýrslu Samtaka
afurðastöðva í mjólkuriðnaði.
Árið 2004 voru beingreiðslur 49
prósent af tekjum við framleiðslu á
hvern lítra mjólkur. Árið 2022 hefur
þetta hlutfall lækkað niður í 29 prósent.
Í ársskýrslunni er bent á að þetta
hlutfall sé lægra en í Bandaríkjunum,
en árið 2016 var ríkisstuðningur
45 prósent af tekjum á hvern lítra
mjólkur. Þessi mikla lækkun skýrist
helst af því að bændur hafa svarað
ákalli um aukna framleiðslu mjólkur
undanfarin tuttugu ár á sama tíma
og heildarmagn beingreiðslna hefur
lækkað að raungildi.
Ef ríkisstuðningur hefði fylgt
verðlagsþróun og framleiðslu-
aukningu á þessu tímabili, hefði
stuðningur við mjólkurframleiðslu árið
2022 verið 14,7 milljarðar króna, segir
í ársskýrslu SAM. /ÁL
Mjólkurframleiðsla hefur aukist en beingreiðslur ekki. Mynd / Úr safni
Missirðu alltaf af Bændablaðinu?
Komdu í
áskrift!
Einungis 11.900 krónur á ári,
fyrir eldri borgara og öryrkja.
14.900 krónur fyrir alla aðra.
Frekari upplýsingar á
www.bbl.is eða í síma 563-0300