Bændablaðið - 27.04.2023, Síða 4

Bændablaðið - 27.04.2023, Síða 4
4 Bændablaðið | Fimmtudagur 27. apríl 2023 FRÉTTIR Kofinn - efnislýsing Veggir og þak: Djúprásaður 11mm furukrossviður. Gólf: Djúprásaður 11mm krossviður. Tenging á hornum og þakskegg: 21mm hefluð fura/greni. Gluggar: 6mm plast (Plexi). Límdir í gluggafals. Afgreiðsla: Allir timburhlutar eru afhentir ómálaðir en með fúavörn. Hægt er að fá „kofann“ í litum skv. samkomulagi. (ATH: Litaval er ekki að fullu frágengið og háð nánara samkomulagi við kaupendur). Kofi.is, s: 6901155 netfang: kofi.is. Kofinn: "leikhús" í garðinn - sumarbústaðinn - leikvöllinn Forsniðnar „bjagaðar“ einingar eru saman á hornum. „Þvílíkur snilldar- undirburður“ – Töluverð verðmæti gætu legið í vinnslu og notkun hálms Kúabændur á tveimur bæjum í Eyjafirði hafa síðan í haust eingöngu notað heimagerðan undirburð úr bygghálmi. Með því telja þeir sig hafa sparað á fimmtu milljón króna. Bændurnir eiga sér draum um framleiðslu. Bændur urðu varir við aðfangaverðshækkanir í kjölfar innrásar Rússa í Úkraínu. Samhliða hærra heimsmarkaðsverði á timbri fór hærra verð á undirburði að bíta marga þá sem þurfa drjúgan skerf af honum. Kúabændurnir Hermann Ingi Gunnarsson og Ingibjörg Leifsdóttir á Klauf og Jón Elvar Hjörleifsson og Berglind Kristinsdóttir á Hrafnagili í Eyjafirði rækta umtalsvert mikið af korni. Síðastliðið haust brugðu þau á það ráð að þurrka bygghálm og vinna úr honum undirburð með eftirtektarverðum árangri. Þau hirtu hálminn þurran, rúlluðu honum með hálmstillingu, því þá er það lausara í sér, og þurrkuðu svo rúllurnar í kornþurrkunaraðstöðu sinni á Hjalteyri. „Þar eru ristar í gólfinu sem þjóna sem forþurrkun. Við röðuðum rúllunum á ristarnar og þær þornuðu á ótrúlega skömmum tíma. Með því móti er fljótlegt að mala hálminn,“ segir Jón Elvar. Á Hjalteyri búa þeir Jón Elvar og Hermann svo vel að hafa aðgang að hinni kunnu færanlegu kögglaverksmiðju Stefáns Þórðarsonar í Teigi sem Þórður Stefánsson, sonur hans, hefur nú tekið við. Með vélinni var hálmurinn malaður í undirburð. Hermanni telst til að hafa unnið úr um 40 rúllum og mun undirburðurinn duga þeim báðum út árið og rúmlega það. „Þetta er alveg þvílíkur snilldarundirburður. Það er miklu skemmtilegra að eiga við þetta en sag. Hálmurinn tollir betur í básunum og fyllir vel í þá og það verður einhvern veginn meira úr honum,“ segir Jón Elvar. Hann nefnir einnig að líftölumælingar hafi sýnt lægri gildi eftir að þau tóku upp notkun á hálminum, sem þau Berglind nota án allra sótthreinsiefna. Gætu sparað hundruð milljóna króna innflutning Ekki nóg með það, heimagerði undirburðurinn reynist sparnaðarráð. Þannig segist Jón Elvar hafa greitt um 1.700 þúsund til tvær milljónir króna í undirburð á ári, fyrir verðhækkanir. „Kílóið er komið upp í 100 til 150 krónur. Það er alveg galið að kaupa þetta. Sagið er orðið dýrara en kjarnfóðrið. Ef kornuppskeran klikkar þá er þetta alltaf að fara að bæta hana upp. Í raun er hálmurinn orðinn verðmætari en kornið.“ Sem nokkuð stórtækir korn- ræktendur búa bændurnir því að mögulegu hráefni til nokkuð stórtækrar framleiðslu á undirburði. „Draumurinn er að gera meira úr þessu, að geta þurrkað, malað og pakkað hálmi og selt hann. Við gætum framleitt miklu meira en við þurfum. Maður fær um 15 rúllur á hektara af hálmi, oft meira. Ég einn fæ svona 400 rúllur á ári,“ segir Jón Elvar. Gríðarleg tækifæri Verðmæti slíkrar undirburðarvinnslu gætu því orðið töluverð en Hermanni reiknast til að bændur eyði um 400 milljónum króna á ári í innflutt sag til undirburðar. „Um 2.800 tonn af undirburði er flutt til landsins á hverju ári. Það má gera ráð fyrir því að notkun á kúabúum séu um 2.000 tonn en svo er hann einnig nýttur í alifuglarækt, svínarækt og í hesthúsum. Það eru gríðarleg tækifæri í vinnslu undirburðar hér á landi, ekki bara með bygghálmi – hér er líka ræktaður sandreyr sem ég sé fyrir mér að hægt væri að mala í undirburð. Það hlýtur að vera kolefnisbetra fyrir okkur að nýta eitthvað sem fellur til hér á landi frekar en að fella tré í útlöndum til að nota sem undirburð hér,“ segir Hermann. /ghp Kúabændurnir Berglind Kristinsdóttir og Jón Elvar Hjörleifsson á Hrafnagili og Hermann Ingi Gunnarsson og Ingibjörg Leifsdóttir á Klauf í Eyjafirði hafa fundið góð not fyrir heilmikinn bygghálm sem fellur til við kornrækt. Kýr og kálfar kunna vel við undirburðinn. Jón Elvar segir að líftölumælingar hafi sýnt lægri gildi eftir að þau Berglind tóku upp notkun á hálminum. Draumur bændanna er að hefja framleiðslu á undirburðinum sem gæti að sögn Hermanns sparað bændum um 400 milljóna króna innflutning. Mjólkurframleiðsla: Ríkisstuðningur hefur lækkað um 51% Ef sami stuðningur hefði haldist á hvern framleiddan mjólkurlítra frá árinu 2004 til 2022, væru beingreiðslur 106 prósent hærri. Frá þessu er greint í ársskýrslu Samtaka afurðastöðva í mjólkuriðnaði. Árið 2004 voru beingreiðslur 49 prósent af tekjum við framleiðslu á hvern lítra mjólkur. Árið 2022 hefur þetta hlutfall lækkað niður í 29 prósent. Í ársskýrslunni er bent á að þetta hlutfall sé lægra en í Bandaríkjunum, en árið 2016 var ríkisstuðningur 45 prósent af tekjum á hvern lítra mjólkur. Þessi mikla lækkun skýrist helst af því að bændur hafa svarað ákalli um aukna framleiðslu mjólkur undanfarin tuttugu ár á sama tíma og heildarmagn beingreiðslna hefur lækkað að raungildi. Ef ríkisstuðningur hefði fylgt verðlagsþróun og framleiðslu- aukningu á þessu tímabili, hefði stuðningur við mjólkurframleiðslu árið 2022 verið 14,7 milljarðar króna, segir í ársskýrslu SAM. /ÁL Mjólkurframleiðsla hefur aukist en beingreiðslur ekki. Mynd / Úr safni Missirðu alltaf af Bændablaðinu? Komdu í áskrift! Einungis 11.900 krónur á ári, fyrir eldri borgara og öryrkja. 14.900 krónur fyrir alla aðra. Frekari upplýsingar á www.bbl.is eða í síma 563-0300

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.