Bændablaðið - 27.04.2023, Blaðsíða 7
7Bændablaðið | Fimmtudagur 27. apríl 2023
Í þessum vísnaþætti verður kynntur
til sögu enn einn hagyrðingurinn úr
Hrafnkelsdal. Snorri Aðalsteinsson er
fæddur á Vaðbrekku á árinu 1962. Snorri
telur föðurbróður sinn, Ragnar Inga
Aðalsteinsson, eiga nokkurn þátt í því að
á síðasta ári gaf Snorri út lítið ljóðakver
er hann nefnir Gullvör. Kverið er góður
vitnisburður um landlæga hagmælsku í
Vaðbrekkuættinni, þar sem afburða vald
er yfir stuðlum og rími. Nafn bókarinnar
er dregið af hollvætti þeim er Gullvör
nefnist, og fylgt hefur Vaðbrekkufólki
sem og Jökuldælingum í framættir. Ég
freistast þó til þess að álykta að Gullvör
hafi einnig og ekki síður haldið utan um
þá ríku siðferðiskennd sem héraðið hefur
búið við um aldaraðir. Gullvöru tileinkar
Snorri hið fyrsta hugverk þessa þáttar:
Að ágæti bar af ófreskum konum,
einlæg og sönn.
Draumspeki lagði dalsins sonum,
í dagsins önn.
Hollvættur fylgdi í háskaförum,
um holt og láð.
Til giftu hrutu sem gull af vörum
hin góðu ráð.
Happaskipið Hnefill:
Af göfgu nafni gæfa skín,
ég greypti það við stafn.
Fyrsta æskuástin mín
innblés þetta nafn.
Kveðja
Allar stundir þú varst mér væn,
þín vísdóm í hjartanu geymi.
Er kveð ég þig nú í bljúgri bæn,
blíðasta amma í heimi..
Tár
Er sjávarbrim við sund og tanga
seltukeim af vörum ber.
Tár á þínum vota vanga
víkja ei úr huga mér.
Í orðastað Birgis frá Vaðbrekku-stökur.
Hákon góðan geymir mann,
þó gerðist róður tregur.
Á æskuslóð sem engill hann,
var alltaf bróðurlegur.
Ferðir yfir urð og grjót,
átti margur skrjóðurinn.
Á jeppa sigldum jökulfljót,
ég og Hákon bróðir minn.
Hákoni var lag að ljúga,
lét þá hafa eftir sér:
“þú skalt alveg þessu trúa,
þetta sagði Birgir mér.”
Fyrsta vísa á hagyrðingamóti
Þið hagyrðinga heyrið senn,
henda frá sér drápunum,
og kvíðafulla kvæðamenn,
að koma út úr skápunum.
Framtíð kvæðamennsku
Kvæðið næstu kynslóð berst,
og kannski ekki úr vegi.
Það hugsanlega gæti gerst,
að gömlu skáldin deyi.
Að mæta Hákoni frænda á hagyrðingamóti
Hagyrðings háð og spott,
í hófi er nokkuð gott.
En Hákon kjafthákur
er hortugur strákur
með skelfilegt skítaglott.
Þó Guðsorð fengi blandað móðurmjólk,
margvís lifði Hákon syndakynni.
En það er alveg fyrirmyndarfólk,
frændur hans af yngri kynslóðinni.
Ég líkjast fullum frænda mínum vil,
fara um sveit með hávaða og látum.
Og ljúga eins og langur ég er til,
er loforð gef ég heimasætum kátum.
Umsjón:
Árni Geirhjörtur Jónsson
kotabyggd1@gmail.com
MÆLT AF
MUNNI FRAM
Slóðadráttur í Reykjadal í Ölfusi. Mynd / ghp
Anguskálfar í Skagafirði. Mynd / Bessi Freyr Vésteinsson, Hofsstaðaseli
LÍF&STARF
Akrar plægðir undir Eyjafjöllum. Mynd / Þórarinn Ólafsson, Raufarfelli
Dyttað að girðingum með staurasleggju.
Mynd / Sveinn Rúnar Ragnarsson, Akurnesi
Tvílemd golsótt ær. Mynd / Sveinn Rúnar Ragnarsson / Akurnesi
Víðáttumiklir akrar í Gunnarsholti. Auðunn Magni Björgvinsson, Laxárdal
Fyrstu lömbin komin. Mynd / Kristín Magnúsdóttir, Austurhlíð
Sáð í kornakra í Hornafirði. Mynd / Birgir Þór Ragnarsson, Flatey
Kartöfluútsæði flutt í garðana. Mynd / Sveinn Rúnar Ragnarsson, Akurnesi
Vorverkin hafin
Sumardagurinn fyrsti var fyrir viku síðan. Þótt sumarið sé ekki komið
af fullum krafti eru vorannir hafnar hjá bændum. Lesendur sendu
Bændablaðinu nýjar myndir héðan og þaðan af landinu.