Bændablaðið - 27.04.2023, Side 21
21Bændablaðið | Fimmtudagur 27. apríl 2023
það er ekki viðurkennd greiningar-
aðferð,“ segir Sigurborg.
Hún segir að talsverð óvissa
fylgi þessum smitsjúkdómi og því
þurfi að gæta ýtrustu varkárni við
sóttvarnir. „Við erum í raun bara á
fyrstu stigum smitrakningar. Við
vitum í raun heldur ekki neitt fyrir
víst um smitleiðina inn í hólfið,“
bætir hún við.
Helstu smitleiðir þekktar
Sigurborg segir afar mikilvægt að
leggja áherslu á það við bændur að
huga að helstu smitleiðum í sínum
smitvörnum. „Þær eru þekktar og
eru einkum í kringum sauðburð; til
að mynda í fæðingavökvanum og í
hildunum. Yngra fé er smitnæmara
en það eldra. Smitvarnir á sauðburði
eru rosalega mikilvægar, að fólk
sé ekki að fara á milli bæja til að
hjálpa til við sauðburð. Huga þarf að
hreinlæti eins og mögulegt er – og
nota klór við sótthreinsun.
Síðan er þetta beina smit frá dýri
til dýrs, sem þýðir að það á ekki að
vera að flytja kindur á milli bæja eða
taka aðkomufé inn í fjárhús til sín –
sem mér finnst alveg skelfilegt. Þótt
það sé ekki bannað þá er það bara of
mikil áhætta því riðan smitast gjarnan
einmitt í gegnum drykkjaráhöld eða
við fóðurgrindur.
Aðrar beinar
og óbeinar smitleiðir
Þetta séu aðalsmitleiðirnar, en aðrir
möguleikar um beinar smitleiðir séu
til staðar. Til dæmis þegar verið sé að
rýja og kamburinn kemst í snertingu
við blóð – og svo er farið á næsta
bæ þar sem kamburinn kemst líka í
snertingu við blóð. Sigurborg segir
þetta vera dæmi um aðrar smitleiðir
sem vissulega séu fleiri.
„Svo getur riða borist með heyi,
tækjum og tólum, sem eru dæmi
um óbeinar smitleiðir. Það eru
minni líkur á slíkum smitum og enn
minni til dæmis í hagagöngu,“ segir
Sigurborg.
Hún leggur áherslu á að tilgátur
um smit úr jarðvegi séu óraunhæfar,
enda hafi rannsóknir sýnt fram á að
litlar líkur séu á að fé smitist á beit.
Skilvirkari leiðir
í baráttunni gegn riðu
Á undanförnum misserum hafa vonir
vaknað um að hægt verði að beita
skilvirkari aðferðum í baráttunni gegn
riðu en varnarhólfum og niðurskurði.
Ráðist hefur verið í nokkuð
umfangsmiklar arfgerðarannsóknir í
íslensku sauðfé til að finna gripi með
verndandi arfgerðir gegn riðusmiti,
sem hægt verði að nota til kynbóta
– og þar með að lokum að rækta upp
riðuþolinn íslenskan sauðfjárstofn.
Í kjölfar ótíðinda af riðutilfellum
og niðurskurði á Bergsstöðum og
Syðri-Urriðaá hefur verið kallað eftir
heildarendurskoðun og -viðhaldi
á sauðfjárveikvarnarlínum til að
styrkja sóttvarnir varnarhólfanna.
Sigurborg hefur unnið með
ráðuneytum landbúnaðarmála á
undanförnum árum að tillögum til
endurskipulagningar lagaumgjörðar
um riðuvarnir. Þar hefur hún
meðal annars lagt til að farið
verði að fordæmi flestra annarra
Evrópuþjóða; að gripir með
verndandi arfgerðir verði ekki skornir
niður í hjörðum þar sem riða kemur
upp. Aukinheldur hefur Sigurborg
lagt til að varnarhólfafyrirkomulagi
smitvarna verði breytt. „Núverandi
fyrirkomulag var sett upp á sínum
tíma til að hefta útbreiðslu á mæði-
visnuveirunni – sem er allt annað
fyrirbæri en riðusjúkdómur.
Önnur lönd nota ekki svona
varnarhólf til að sporna við
útbreiðslu á riðu. Við áttum þetta
kerfi bara til og auðvitað notuðum
við það með nokkuð góðum árangri
frá 1986 þegar formlega var farið
að berjast gegn henni með þessum
hætti. En þar sem við höfum þetta
kerfi þá þarf auðvitað að halda því
við og það kostar heilmikla fjármuni.
Það hafa hins vegar ekki verið til
þeir peningar hjá Matvælastofnun
sem þarf til að gera allar þessar
varnarlínur fjárheldar.
Núna þegar búið er að finna þessa
verndandi arfgerð [ARR] sem áður
var talið að ekki væri til á Íslandi
– og aðra sem talin er mögulega
verndandi – þá opnast möguleikar á
því að beita öðrum aðferðum en bara
að hólfa landið niður. Það er líka til
dæmis alveg hægt að hefta flutning
gripa á milli bæja án þess að hafa
varnargirðingu,“ segir Sigurborg.
Fjármunum betur varið í annað
en viðhald á varnarlínum
Spurð um hvort skynsamlegt væri
að fara í heildarendurskoðun og
-viðhald á núverandi varnarlínum
fyrir allt landið segir Sigurborg að
hún telji að peningunum yrði betur
varið með öðrum hætti. „Það er
ekkert óeðlilegt að skipta landinu
niður í einhver hólf og reyna að
notast sem mest við náttúrulegar
hindranir til þess eða varnir – en
ekki að verið sé að eyða miklum
peningum í girðingar til smitvarna
í úthögum þar sem litlar líkur eru í
raun á smitum.
Önnur lönd sem berjast gegn
riðu með ræktun á gripum sem eru
með verndandi arfgerðir, skipta
sínum löndum ekki í svona hólf
eins og við erum með. Viðkomandi
bær fer bara í einangrun í sjö ár og
gripir sem ekki eru með verndandi
arfgerð skornir niður. Ég hef lagt til
að það verði þá tekin upp eins konar
riðuhólf, þar sem væru í gildi mjög
strangar smitvarnir og slíkt hólf gæti
verið mjög breytilegt að stærð; frá því
til dæmis að vera heill hreppur eða
jafnvel bara bæjartorfa. En ákvörðun
um breytingu á okkar fyrirkomulag
kallar á lagabreytingar og aðkomu
Alþingis, en hins vegar er hægt að
leggja niður varnarlínur án slíkra
lagabreytinga,“ segir Sigurborg.
Ráðuneyti landbúnaðar hafa
frá desember 2021 haft tillögur
Sigurborgar til umfjöllunar, en
þær höfðu áður farið í lokað
umsagnarferli.
Arfgerðagreiningar á kindunum
á bæjunum tveimur verða gerðar.
Matvælastofnun greinir smituðu
gripina en svo munu aðrir aðilar, sem
starfa í verkefni um ræktun sauðfjár
með verndandi arfgerðum, láta greina
alla gripina sem skornir voru niður á
dögunum. Karólína Elísabetardóttir,
bóndi í Hvammshlíð, tekur þátt í
verkefninu sem er samstarfsverkefni
íslenskra og erlendra vísindamanna,
RML og fleiri aðila, með aðkomu
íslenskra sauðfjárbænda.
Hún telur að það taki nokkrar
vikur að fá úr því skorið hvaða
arfgerðir voru í gripum hjarðanna, en
gert er ráð fyrir að þær upplýsingar
geti orðið mikilvægt innlegg inn í
ræktunarstarfið fram undan.
Framvindan í ræktun
á verndandi arfgerðum
Mikið ræktunarstarf er þegar
hafið sem felur í sér útbreiðslu á
arfgerðunum tveimur sem taldar
eru verndandi gegn riðu. Hrútar
með slíkar arfgerðir voru fengnir
á sæðingastöðvar fyrir síðustu
fengitíð og voru í hópi þeirra
vinsælustu.
Má búast við að þúsundir
lamba muni bera arfgerðirnar eftir
sauðburð nú í vor.
Í Miðfjarðarhólfi eru nokkur
af bestu ræktunarbúum í íslenskri
sauðfjárrækt. Eyþór Einarsson,
sauðfjárræktarráðunautur hjá
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins
(RML), hefur stýrt átaksverkefni í
arfgerðagreiningum og er í teymi
sem leiðir það verkefni að rækta upp
riðuþolinn sauðfjárstofn á Íslandi.
„Það breytir talsvert stöðunni hjá
okkur að vera komin með riðusmit inn
í þetta hólf, ef við horfum á stöðuna
almennt út frá ræktunarstarfinu.
Úr þessu hólfi höfum við sótt
mjög dýrmætan efnivið og hefðum
örugglega horft til þess að nota hrúta
þaðan með verndandi arfgerðir í
uppbyggingarstarfinu,“ segir Eyþór.
„Nokkur sauðfjárbúin í
Miðfjarðarhólfi hafa raðast efst á
listana hjá okkur hvað varðar afurðir
og bestu gerð, eins og til dæmis
Bergsstaðir, Urriðaá, Efri-Fitjar,
Mýrar og svo er Þóroddsstaðir eitt
lykilbú þaðan sem við höfum tekið
marga sæðingahrúta,“ segir Eyþór,
en Þóroddsstaðir hlutu nafnbótina
ræktunarbú ársins 2021 í vali
ráðunauta RML.
Eftirspurnin eftir erfðaefninu
mun aukast
„Svo breytir þessi nýja staða okkar
plönum, sem við höfum unnið
eftir, um hraðann á innleiðingu
á erfðaefninu og þörfina fyrir
sæðingastöðvahrúta með þessar
verndandi arfgerðir. Það má gera
ráð fyrir að eftirspurn eftir slíkum
hrútum muni margfaldast og það
þarf að keyra þessar arfgerðir
kannski hraðar inn en við höfðum
gert ráð fyrir. Þessi riðutilfelli
hreyfa við öllum,“ segir Eyþór um
þessa breyttu stöðu.
Hann segir það í sjálfu sér
ekkert óvænt að ekki hafi verið
búið að arfgerðagreina á þessum
bæjum allar kindur. Staðan sé sú
í dag, að venjulega sé hlutfallið á
bilinu frá þremur og upp í tuttugu
prósent gripa í varnarhólfum sem
hafa verið arfgerðagreindir. Auk
þess hafi bændur í svona hólfum
lifað í öðrum raunveruleika en í
hólfum þar sem riða hefur komið
upp. „Við hins vegar gerðum ráð
fyrir að á bæjum í hólfinu myndu
nú í vor fæðast nokkur lömb með
ARR-arfgerðina úr sæðingum og
átti ég von á að gætu komið rúmlega
20 ARR-hrútar til nytja í haust sem
hefði verið spennandi að skoða fyrir
sæðingastöðvarnar.“
Um tíu prósent af
íslenska stofninum verið
arfgerðagreindur
Eyþór telur að samanlagt sé búið að
arfgerðagreina nálægt tíu prósent
af íslenska sauðfjárstofninum.
„Að stórum hluta hefur þetta
verið gert í gegnum átaksverkefni
með stuðningsgreiðslum. Þessum
greiningum þarf að fylgja eftir með
arfgerðagreiningum á afkvæmum
líka og það er talsvert utanumhald
sem því fylgir og kostnaður. Í því
sambandi má nefna að nú í vor gætu
mögulega fæðst um fjögur þúsund
lömb með ARR – líkindalega séð
– en raunhæft er að búast við að
um helmingur þess fjölda beri
arfgerðina. Eins varðandi hina
arfgerðina T137, sem talin er
verndandi, að þar gætu mögulega
bæst við eitt til tvö þúsund lömb nú
í vor. Við lögðum sérstaka áherslu á
að bændur myndu láta gera þessar
greiningar hjá sér á lömbum sem
væru mögulega með þessar arfgerðir
– fylgdu þessu eftir. Þróunarsjóður
sauðfjárræktarinnar greiðir þessar
sýnatöku sérstaklega niður.
Ef við gefum okkur svo að það
verði hægt að nota alla ARR-hrúta
sem koma til nytja út úr þessum
sæðingum og notkun söluhrúta frá
Þernunesi, þá verða lömbin orðin
um 30 þúsund á næsta ári sem þarf
að halda utan um. Til viðbótar er
svo æskilegt að fjölga einnig öðrum
arfgerðum sem eru lítið næmar
og vonandi einhverjar mögulega
verndandi líkt og T137. Þessu þarf
að fylgja eftir með greiningum.
Frumskilyrði hjá öllum er að vita
hvaða arfgerð hrútarnir þeirra bera,
sama hvar þeir búa á landinu.“
Íþyngjandi kostnaður bænda
Eyþór segir að það verði mjög snúið
miðað við núverandi forsendur að
fá bændur til að fylgja þessu eftir af
samviskusemi.
Framhald á næstu opnu.
Til sölu er Hlöðueldhúsið sem er á lögbýlinu Oddsparti í Þykkvbæ.
Þetta er spennandi tækifæri í ferðaþjónustu og afþreyingu.
Húsakynnin alls 577m2 eru íbúðarhús, veislusalur og stóreldhús,
gróðurbraggi og tvær skemmur en önnur þeirra er upphituð.
Landið er 6,7 ha sem gefur möguleika á frekari uppbyggingu.
Verðtilboð.
HLÖÐUELDHÚSIÐ
TIL
SÖLU
Allar upplýsingar veitir
Kristján Þórir Hauksson
Löggiltur fasteignasali
S: 696 1122
kristjan@fastlind.is
Þykkvibær, 851 Hella
Sigurborg Daðadóttir yfirdýralæknir.
Um riðuveiki
Riðuveiki er langvinnur og
ólæknandi smit sjúkdómur í sauðfé.
Sjúkdómurinn veldur svampkenn-
dum hrörnunarskemmdum í heila
og mænu. Flestar kindur sem sýna
einkenni eru 1½-5 ára. Dæmi eru þó
um riðueinkenni í 7 mánaða gömlu
lambi og 14 vetra á. Smit efnið er
hvorki baktería né veira hel d ur
prótín, nefnt Príon eða PrP sem
hefur breytt lögun og við það orðið
sjúklegt og fádæma lífseigt, þolir
langa suðu og flest sótthreinsiefni
nema helst klór.
Heimild: Matvælastofnun
Hópmynd af gripunum með ARR-arfgerð á Þernunesi í Reyðarfirði, en
þar fundust einu gripirnir úr arfgerðagreiningunum með þessa formlegu
verndandi arfgerð. Hrútarnir Gimsteinn 21-899 og Gullmoli 22-902 voru í
hópi þeirra tíu vinsælustu á sæðingastöð í síðustu vertíð. Mynd / Þernunes