Bændablaðið - 27.04.2023, Síða 21

Bændablaðið - 27.04.2023, Síða 21
21Bændablaðið | Fimmtudagur 27. apríl 2023 það er ekki viðurkennd greiningar- aðferð,“ segir Sigurborg. Hún segir að talsverð óvissa fylgi þessum smitsjúkdómi og því þurfi að gæta ýtrustu varkárni við sóttvarnir. „Við erum í raun bara á fyrstu stigum smitrakningar. Við vitum í raun heldur ekki neitt fyrir víst um smitleiðina inn í hólfið,“ bætir hún við. Helstu smitleiðir þekktar Sigurborg segir afar mikilvægt að leggja áherslu á það við bændur að huga að helstu smitleiðum í sínum smitvörnum. „Þær eru þekktar og eru einkum í kringum sauðburð; til að mynda í fæðingavökvanum og í hildunum. Yngra fé er smitnæmara en það eldra. Smitvarnir á sauðburði eru rosalega mikilvægar, að fólk sé ekki að fara á milli bæja til að hjálpa til við sauðburð. Huga þarf að hreinlæti eins og mögulegt er – og nota klór við sótthreinsun. Síðan er þetta beina smit frá dýri til dýrs, sem þýðir að það á ekki að vera að flytja kindur á milli bæja eða taka aðkomufé inn í fjárhús til sín – sem mér finnst alveg skelfilegt. Þótt það sé ekki bannað þá er það bara of mikil áhætta því riðan smitast gjarnan einmitt í gegnum drykkjaráhöld eða við fóðurgrindur. Aðrar beinar og óbeinar smitleiðir Þetta séu aðalsmitleiðirnar, en aðrir möguleikar um beinar smitleiðir séu til staðar. Til dæmis þegar verið sé að rýja og kamburinn kemst í snertingu við blóð – og svo er farið á næsta bæ þar sem kamburinn kemst líka í snertingu við blóð. Sigurborg segir þetta vera dæmi um aðrar smitleiðir sem vissulega séu fleiri. „Svo getur riða borist með heyi, tækjum og tólum, sem eru dæmi um óbeinar smitleiðir. Það eru minni líkur á slíkum smitum og enn minni til dæmis í hagagöngu,“ segir Sigurborg. Hún leggur áherslu á að tilgátur um smit úr jarðvegi séu óraunhæfar, enda hafi rannsóknir sýnt fram á að litlar líkur séu á að fé smitist á beit. Skilvirkari leiðir í baráttunni gegn riðu Á undanförnum misserum hafa vonir vaknað um að hægt verði að beita skilvirkari aðferðum í baráttunni gegn riðu en varnarhólfum og niðurskurði. Ráðist hefur verið í nokkuð umfangsmiklar arfgerðarannsóknir í íslensku sauðfé til að finna gripi með verndandi arfgerðir gegn riðusmiti, sem hægt verði að nota til kynbóta – og þar með að lokum að rækta upp riðuþolinn íslenskan sauðfjárstofn. Í kjölfar ótíðinda af riðutilfellum og niðurskurði á Bergsstöðum og Syðri-Urriðaá hefur verið kallað eftir heildarendurskoðun og -viðhaldi á sauðfjárveikvarnarlínum til að styrkja sóttvarnir varnarhólfanna. Sigurborg hefur unnið með ráðuneytum landbúnaðarmála á undanförnum árum að tillögum til endurskipulagningar lagaumgjörðar um riðuvarnir. Þar hefur hún meðal annars lagt til að farið verði að fordæmi flestra annarra Evrópuþjóða; að gripir með verndandi arfgerðir verði ekki skornir niður í hjörðum þar sem riða kemur upp. Aukinheldur hefur Sigurborg lagt til að varnarhólfafyrirkomulagi smitvarna verði breytt. „Núverandi fyrirkomulag var sett upp á sínum tíma til að hefta útbreiðslu á mæði- visnuveirunni – sem er allt annað fyrirbæri en riðusjúkdómur. Önnur lönd nota ekki svona varnarhólf til að sporna við útbreiðslu á riðu. Við áttum þetta kerfi bara til og auðvitað notuðum við það með nokkuð góðum árangri frá 1986 þegar formlega var farið að berjast gegn henni með þessum hætti. En þar sem við höfum þetta kerfi þá þarf auðvitað að halda því við og það kostar heilmikla fjármuni. Það hafa hins vegar ekki verið til þeir peningar hjá Matvælastofnun sem þarf til að gera allar þessar varnarlínur fjárheldar. Núna þegar búið er að finna þessa verndandi arfgerð [ARR] sem áður var talið að ekki væri til á Íslandi – og aðra sem talin er mögulega verndandi – þá opnast möguleikar á því að beita öðrum aðferðum en bara að hólfa landið niður. Það er líka til dæmis alveg hægt að hefta flutning gripa á milli bæja án þess að hafa varnargirðingu,“ segir Sigurborg. Fjármunum betur varið í annað en viðhald á varnarlínum Spurð um hvort skynsamlegt væri að fara í heildarendurskoðun og -viðhald á núverandi varnarlínum fyrir allt landið segir Sigurborg að hún telji að peningunum yrði betur varið með öðrum hætti. „Það er ekkert óeðlilegt að skipta landinu niður í einhver hólf og reyna að notast sem mest við náttúrulegar hindranir til þess eða varnir – en ekki að verið sé að eyða miklum peningum í girðingar til smitvarna í úthögum þar sem litlar líkur eru í raun á smitum. Önnur lönd sem berjast gegn riðu með ræktun á gripum sem eru með verndandi arfgerðir, skipta sínum löndum ekki í svona hólf eins og við erum með. Viðkomandi bær fer bara í einangrun í sjö ár og gripir sem ekki eru með verndandi arfgerð skornir niður. Ég hef lagt til að það verði þá tekin upp eins konar riðuhólf, þar sem væru í gildi mjög strangar smitvarnir og slíkt hólf gæti verið mjög breytilegt að stærð; frá því til dæmis að vera heill hreppur eða jafnvel bara bæjartorfa. En ákvörðun um breytingu á okkar fyrirkomulag kallar á lagabreytingar og aðkomu Alþingis, en hins vegar er hægt að leggja niður varnarlínur án slíkra lagabreytinga,“ segir Sigurborg. Ráðuneyti landbúnaðar hafa frá desember 2021 haft tillögur Sigurborgar til umfjöllunar, en þær höfðu áður farið í lokað umsagnarferli. Arfgerðagreiningar á kindunum á bæjunum tveimur verða gerðar. Matvælastofnun greinir smituðu gripina en svo munu aðrir aðilar, sem starfa í verkefni um ræktun sauðfjár með verndandi arfgerðum, láta greina alla gripina sem skornir voru niður á dögunum. Karólína Elísabetardóttir, bóndi í Hvammshlíð, tekur þátt í verkefninu sem er samstarfsverkefni íslenskra og erlendra vísindamanna, RML og fleiri aðila, með aðkomu íslenskra sauðfjárbænda. Hún telur að það taki nokkrar vikur að fá úr því skorið hvaða arfgerðir voru í gripum hjarðanna, en gert er ráð fyrir að þær upplýsingar geti orðið mikilvægt innlegg inn í ræktunarstarfið fram undan. Framvindan í ræktun á verndandi arfgerðum Mikið ræktunarstarf er þegar hafið sem felur í sér útbreiðslu á arfgerðunum tveimur sem taldar eru verndandi gegn riðu. Hrútar með slíkar arfgerðir voru fengnir á sæðingastöðvar fyrir síðustu fengitíð og voru í hópi þeirra vinsælustu. Má búast við að þúsundir lamba muni bera arfgerðirnar eftir sauðburð nú í vor. Í Miðfjarðarhólfi eru nokkur af bestu ræktunarbúum í íslenskri sauðfjárrækt. Eyþór Einarsson, sauðfjárræktarráðunautur hjá Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins (RML), hefur stýrt átaksverkefni í arfgerðagreiningum og er í teymi sem leiðir það verkefni að rækta upp riðuþolinn sauðfjárstofn á Íslandi. „Það breytir talsvert stöðunni hjá okkur að vera komin með riðusmit inn í þetta hólf, ef við horfum á stöðuna almennt út frá ræktunarstarfinu. Úr þessu hólfi höfum við sótt mjög dýrmætan efnivið og hefðum örugglega horft til þess að nota hrúta þaðan með verndandi arfgerðir í uppbyggingarstarfinu,“ segir Eyþór. „Nokkur sauðfjárbúin í Miðfjarðarhólfi hafa raðast efst á listana hjá okkur hvað varðar afurðir og bestu gerð, eins og til dæmis Bergsstaðir, Urriðaá, Efri-Fitjar, Mýrar og svo er Þóroddsstaðir eitt lykilbú þaðan sem við höfum tekið marga sæðingahrúta,“ segir Eyþór, en Þóroddsstaðir hlutu nafnbótina ræktunarbú ársins 2021 í vali ráðunauta RML. Eftirspurnin eftir erfðaefninu mun aukast „Svo breytir þessi nýja staða okkar plönum, sem við höfum unnið eftir, um hraðann á innleiðingu á erfðaefninu og þörfina fyrir sæðingastöðvahrúta með þessar verndandi arfgerðir. Það má gera ráð fyrir að eftirspurn eftir slíkum hrútum muni margfaldast og það þarf að keyra þessar arfgerðir kannski hraðar inn en við höfðum gert ráð fyrir. Þessi riðutilfelli hreyfa við öllum,“ segir Eyþór um þessa breyttu stöðu. Hann segir það í sjálfu sér ekkert óvænt að ekki hafi verið búið að arfgerðagreina á þessum bæjum allar kindur. Staðan sé sú í dag, að venjulega sé hlutfallið á bilinu frá þremur og upp í tuttugu prósent gripa í varnarhólfum sem hafa verið arfgerðagreindir. Auk þess hafi bændur í svona hólfum lifað í öðrum raunveruleika en í hólfum þar sem riða hefur komið upp. „Við hins vegar gerðum ráð fyrir að á bæjum í hólfinu myndu nú í vor fæðast nokkur lömb með ARR-arfgerðina úr sæðingum og átti ég von á að gætu komið rúmlega 20 ARR-hrútar til nytja í haust sem hefði verið spennandi að skoða fyrir sæðingastöðvarnar.“ Um tíu prósent af íslenska stofninum verið arfgerðagreindur Eyþór telur að samanlagt sé búið að arfgerðagreina nálægt tíu prósent af íslenska sauðfjárstofninum. „Að stórum hluta hefur þetta verið gert í gegnum átaksverkefni með stuðningsgreiðslum. Þessum greiningum þarf að fylgja eftir með arfgerðagreiningum á afkvæmum líka og það er talsvert utanumhald sem því fylgir og kostnaður. Í því sambandi má nefna að nú í vor gætu mögulega fæðst um fjögur þúsund lömb með ARR – líkindalega séð – en raunhæft er að búast við að um helmingur þess fjölda beri arfgerðina. Eins varðandi hina arfgerðina T137, sem talin er verndandi, að þar gætu mögulega bæst við eitt til tvö þúsund lömb nú í vor. Við lögðum sérstaka áherslu á að bændur myndu láta gera þessar greiningar hjá sér á lömbum sem væru mögulega með þessar arfgerðir – fylgdu þessu eftir. Þróunarsjóður sauðfjárræktarinnar greiðir þessar sýnatöku sérstaklega niður. Ef við gefum okkur svo að það verði hægt að nota alla ARR-hrúta sem koma til nytja út úr þessum sæðingum og notkun söluhrúta frá Þernunesi, þá verða lömbin orðin um 30 þúsund á næsta ári sem þarf að halda utan um. Til viðbótar er svo æskilegt að fjölga einnig öðrum arfgerðum sem eru lítið næmar og vonandi einhverjar mögulega verndandi líkt og T137. Þessu þarf að fylgja eftir með greiningum. Frumskilyrði hjá öllum er að vita hvaða arfgerð hrútarnir þeirra bera, sama hvar þeir búa á landinu.“ Íþyngjandi kostnaður bænda Eyþór segir að það verði mjög snúið miðað við núverandi forsendur að fá bændur til að fylgja þessu eftir af samviskusemi. Framhald á næstu opnu. Til sölu er Hlöðueldhúsið sem er á lögbýlinu Oddsparti í Þykkvbæ. Þetta er spennandi tækifæri í ferðaþjónustu og afþreyingu. Húsakynnin alls 577m2 eru íbúðarhús, veislusalur og stóreldhús, gróðurbraggi og tvær skemmur en önnur þeirra er upphituð. Landið er 6,7 ha sem gefur möguleika á frekari uppbyggingu. Verðtilboð. HLÖÐUELDHÚSIÐ TIL SÖLU Allar upplýsingar veitir Kristján Þórir Hauksson Löggiltur fasteignasali S: 696 1122 kristjan@fastlind.is Þykkvibær, 851 Hella Sigurborg Daðadóttir yfirdýralæknir. Um riðuveiki Riðuveiki er langvinnur og ólæknandi smit sjúkdómur í sauðfé. Sjúkdómurinn veldur svampkenn- dum hrörnunarskemmdum í heila og mænu. Flestar kindur sem sýna einkenni eru 1½-5 ára. Dæmi eru þó um riðueinkenni í 7 mánaða gömlu lambi og 14 vetra á. Smit efnið er hvorki baktería né veira hel d ur prótín, nefnt Príon eða PrP sem hefur breytt lögun og við það orðið sjúklegt og fádæma lífseigt, þolir langa suðu og flest sótthreinsiefni nema helst klór. Heimild: Matvælastofnun Hópmynd af gripunum með ARR-arfgerð á Þernunesi í Reyðarfirði, en þar fundust einu gripirnir úr arfgerðagreiningunum með þessa formlegu verndandi arfgerð. Hrútarnir Gimsteinn 21-899 og Gullmoli 22-902 voru í hópi þeirra tíu vinsælustu á sæðingastöð í síðustu vertíð. Mynd / Þernunes

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.