Bændablaðið - 27.04.2023, Qupperneq 24
24 Bændablaðið | Fimmtudagur 27. apríl 2023
MENNING
Leikritið Á svið eftir Rick Abbot, í þýðingu Guðjóns Ólafssonar og
leikstjórn Ingridar Jónsdóttur, fjallar um leikhóp sem stendur að
æfingum og sýningum á leikverki.
Fá sýningargestir að upplifa æfingarferli leikrits í fyrsta og annars hluta
þess og þar er nú ýmislegt sem kemur upp á. Í þriðja hluta er svo komið að
frumsýningu og þá ætti nú allt að vera löngu tilbúið – en auðvitað getur allt
gerst á frumsýningum. Er sýningin kómísk á köflum – enda ekki þrautalaust
að setja á svið heilt leikrit.
Í hlutverkum eru ellefu meðlimir leikfélags Sauðárkróks og verður
frumsýnt þann 30. apríl kl. 20. Áætlaðar eru tíu sýningar í kjölfarið og sýnt
í félagsheimilinu Bifröst á Sauðárkróki – lokasýning er sunnudaginn 14. maí
klukkan 20. Miðapantanir og frekari upplýsingar eru í síma 8499434. /SP
Leikfélag Sauðárkróks:
Allir á svið
Leikfélag Blönduóss:
Dýrið & Blíða
Félagsmenn Bandalags íslenskra leikfélaga athugið!
Aðalfundur Bandalags íslenskra leikfélaga verður
haldinn í Neskaupstað helgina 5.–7. maí nk.
Gestgjafi er Leikfélag Norðfjarðar. Á dagskrá eru
venjuleg aðalfundarstörf. Fulltrúar Þjóðleikhússins
mæta á hátíðarkvöldverð á laugardeginum og
tilkynna val á Athyglisverðustu áhugaleiksýningu ársins en það
hefur farið fram allt frá leikárinu 1993–1994.
Sýningar Leikfélags Vestmannaeyja á hinu klassíska verki
Rocky Horror halda áfram. Sýnt er á Heiðarvegi 19, Vestmannaeyjum,
miðasala fer fram á staðnum og nú er um að gera að hraða sér því
lokasýning er sunnudaginn 30. apríl kl 20 og það er jafnframt
partísýning. Frekari upplýsingar má fá í síma 868 2139. Síðustu sýningar
eru annars dagana 27. og 29. apríl kl. 20.
Leikfélag Hugleiks
sem þekkt er fyrir
frumsamin verk sín
hefur í sýningum
dans- og söngleikinn
Húsfélagið. Enn
má nálgast miða á vef
Hugleiks, www.hugleikur.
is og eru sýningar í
húsakynnum Leikfélags
Kópavogs, Funalind 2,
201 Kópavogi.
Á döfinni ...
Límtréshús, bogahús
og færanlegar byggingar
Hýsi.is
Færanlegar byggingar
Bogahús
Límtréshús
Leikfélag Blönduóss kynnir með stolti fjölskyldu-
sýninguna Dýrið og Blíðu, sem þekkist á enskunni
sem Beauty and the Beast.
Er þetta fyrsta sýning leikfélagsins í níu ár og segir
forynjan Eva Guðbjartsdóttir að mikil eftirvænting sé í
fólki að stíga á sviðið. Sigurður Líndal leikstýrir en honum
er innan handar eiginkonan Greta Clough.
Í leikhópnum eru níu manns og er Eva vongóð um
að takist að rétta úr kútnum eftir langa hríð og hefja
hið blómlega leikstarf sem áður einkenndi Leikfélag
Blönduóss. Lengi vel var frumsýnt annað hvert ár, þá í
kringum páskana eða sumardaginn fyrsta, en síðastliðin
ár hafa Covid og svo áfall í samfélaginu litað starfsemi
leikfélagsins. Gaman væri að fjölga meðlimum
leikfélagsins svo og fólki sem hefur áhuga á að vinna
bakvið tjöldin – sviðsmenn, sminkur, ljósamenn … allir
sem áhuga hafa er því hér með boðnir velkomnir.
Eva segir að nokkuð sé um að vanti fólk á milli tvítugs
og fertugs, en Emilía Íris Benediktsdóttir, aðalleikona
verksins um Dýrið og Blíðu, er rétt þrettán ára gömul
Hvammstangamær sem áður hafði gert góða hluti í
leiklistinni þar í bæ. Tekið skal fram að mótleikari hennar
er tvítugur, og sagan því ekki jafn mikill rómans og oft.
Áhugavert er að segja frá því að árið 1897 var fyrsta
leiksýningin sett upp á Blönduósi, „Kómedía“, og voru
flytjendur liðsmenn „Leikfimifélags Blönduóss“.
Árið 1944 var leikfélagið svo formlega stofnað og
starfaði nánast óslitið fram að aldamótum, sýning sett
upp hvert einasta ár. Langar Evu að endurvekja þennan
kraft samfélagsins sem kemur einnig fram í 1. árgangi
Húnavöku árið 1961, grein eftir Tómas R. Jónsson „Það
er áreiðanlega ósk og von okkar allra að leikstarfsemi
megi eflast og þroskast hér á Blönduósi í framtíðinni til
skemmtunar og menningarauka fyrir héraðsbúa. Til þess
að það megi verða er fyrsta og aðalskilyrðið það, að hér
rísi upp fyrirhugað félagsheimili, með nægilega rúmgóðu
leiksviði, búningsherbergjum og geymslum. Slík breyting
á öllum aðstæðum mundi hvetja uppvaxandi æskufólk og
starfandi leikfélag til stærri átaka. Stærri og fjölbreyttari
verkefni yrðu tekin til meðferðar, og þá mundi auðveldara
að fá hingað hæfa leikstjóra og tjaldamálara en nú er.
Sýningar á Dýrinu og Blíðu verða fjórar talsins – enda
tekið tillit til sauðburðar – en þær verða dagana 29. apríl-
3. maí. Eva er bjartsýn á framhaldið og segir að félagið
hafi nýverið gert 3 ára samning við Húnabyggð þar sem
stefnt er á að sýna annað hvert ár, en að auki verið með
námskeiðshald og annað þess utan. Kostnaður er mikill við
sýningar og því sé gaman að bjóða upp á minni viðburði,
skemmtikvöld og annað þar sem t.d. verði sýnt upptekið
efni síðustu áratuga er viðkoma leikfélaginu.
Er von til þess að það kveiki undir frekari áhuga þeirra
sem hafa einhvern hug á að ganga til liðs við leikfélagið
enda er tilvera leiklistar jafnan sálin og lífið í samfélögum.
/SP
Leikarar, leikstjóri og hluti af starfsfólki sýningarinnar til vinstri en sjá má
að glatt er á hjalla hjá Leikfélagi Sauðárkróks. Myndir / Gunnhildur Gísladóttir
Þau Víkingur Leon Þórðarson og Emelía
Íris Benediktsdóttir í hlutverkum sínum.
Jens: Pálmi Ragnarsson, Jakob: Hafþór
Örn Laursen Ólason.
Frú Klemma kaupakona: Anna Margrét
Jónsdóttir.
Dýrið/Prinsinn: Víkingur Leon Þórðar-
son. Skuggar: Óskar Sólberg Róberts-
son og Baltasar Guðmundsson.
Gala galdraþula / Maríanna Þorgríms-
dóttir.
Doddi dreki: Freydís Ösp Stefánsdóttir.
Blíða: Emelía Íris Benediktsdóttir.