Bændablaðið - 27.04.2023, Side 36

Bændablaðið - 27.04.2023, Side 36
36 Bændablaðið | Fimmtudagur 27. apríl 2023 Sauðburður er á næsta leiti og þá er gott fyrir bændur að hafa aðgengi að góðu leiðbeiningarefni um burðarhjálp. Fyrir þremur árum voru fyrstu leiðbeiningarmyndböndin úr smiðju þeirra Karólínu Elísabetardóttur, bónda í Hvammshlíð, og Axels Kárasonar dýralæknis gefin út á YouTube-rásinni „Leiðbeiningarefni um burðarhjálp“ og síðan hafa þau stöðugt verið uppfærð og endurskoðuð. Að sögn Karólínu hafa margir haft not af myndböndunum og fær hún iðulega fyrirspurnir um hvar sé hægt að nálgast þau, þegar líður að sauðburði. Vandamálið greint í skrefum Myndböndin eru alls 23 í dag á íslensku, auk þess sem öll helstu myndböndin eru einnig til á þýsku og ensku. Í tengslum við myndböndin var útbúið „ákvarðanatré“ sem er að sögn Karólínu gagnlegt tól til að greina aðsteðjandi vandamál við sauðburðinn skref fyrir skref. Leiðbeiningarmyndböndin eiga að ná til nærri allra hugsanlegra burðarvandamála og liggja mynd- bönd Karólínu til grundvallar sem hún hefur tekið upp á mörgum og mismunandi sauðfjárbúum á undanförnum árum. Þá veitir Axel innsýn inn í hvað á sér stað inni í ánni, með notkun á lambalíkönum og mjaðmagrind í raunstærð. Öll myndbönd og ákvarðanatréð má nálgast á eftirfarandi vefslóðum: www.tinyurl.com/saudburdar hjalp (á íslensku) www.tinyurl.com/schafgeburt shilfe (á þýsku) www.tinyurl.com/burdarhjalp (öll youtube-rásin - velja spilunarlistann „á ensku/in English“ til að sjá ensku útgáfurnar) /smh Stórt lamb, þar sem leiðbeint er um hvernig hægt er að nota vír með handfangi á til að ná því út. Burðarhjálp – Leiðbeiningarmyndbönd í stöðugri uppfærslu og endurskoðun LEKTOR Í BÚVÍSINDUM STÖRF Í BOÐI Framundan eru mörg spennandi verkefni til að bæta þekkingu á losun gróðurhúsalofttegunda frá búfé og ræktun í þeim tilgangi að undirbyggja losunarbókhald Íslands. Starfsmanninum er ætlað að vera einn af leiðtogum LBHÍ í þeim störfum. NÁNARI UPPLÝSINGAR Þóroddur Sveinsson, deildarforseti - thorodd@lbhi.is - 433 5000 Guðmunda Smáradóttir, mannauðs- og gæðastjóri - gudmunda@lbhi.is - 433 5000 Umsóknir berist í gegnum Starfatorg.is. UMSÓKNARFRESTUR 28.04.2023 SÉRFRÆÐINGUR Á RANNSÓKNA- & ALÞJÓÐASKRIFSTOFU Vegna aukinna umsvifa í alþjóðlegum samstarfsverkefnum m.a. UNIgreen - European University Initiative, auglýsum við eftir sérfræðingi á sviði gæðamála á rannsókna- og alþjóðaskrifstofu háskólans. NÁNARI UPPLÝSINGAR Christian Schultze, rannsókna- og alþjóðafulltrúi - christian@lbhi.is - 433 5000 Guðmunda Smáradóttir, mannauðs- og gæðastjóri - gudmunda@lbhi.is - 433 5000 Umsóknir berist í gegnum Starfatorg.is. UMSÓKNARFRESTUR 17.04.2023 WWW.LBHI.ISHlutverk Landbúnaðarháskóla Íslands er að skapa og miðla þekkingu á sviði sjálfbærrar nýtingar auðlinda, umhverfis, skipulags og matvælaframleiðslu á norðurslóðum Ásta Nikulásdóttir, nýbúin að bera Víði og Engjarós í Hvammshlíð. Lína og Sóley fylgjast spennt með. Er þetta eðlilegur burður? FRÆÐSLA

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.