Bændablaðið - 27.04.2023, Qupperneq 44
44 Bændablaðið | Fimmtudagur 27. apríl 2023
Í undanförnum tölublöðum
Bændablaðsins hafa Höskuldur
og Stefán fjallað um sögu
handverksbrugghúsanna á Íslandi
og að þessu sinni er komið að RVK
bruggfélagi.
RVK bruggfélag er með eitt
af þessum lógóum sem allir yfir
fertugu staldra við, halla höfði
og hugsa: „Hvar hef ég aftur séð
þetta merki?“ Svarið er auðvitað
í gamla Reykjavíkurarmi Strætó,
Strætisvögnum Reykjavíkur eða
SVR. Tildrög þessa brugghúss, sem
í fyrstu bar hið eilítið óþjóðlega nafn
RVK Brewing en breyttist svo í RVK
Bruggfélag, íslenskri málnefnd til
ómældrar ánægju, má þó rekja til
veiðiferðar í Laxá í Mývatnssveit.
Þar fékk Sigurður Snorrason, lengi
þekktur sem Siggi saison vegna
dálætis síns á þeim ágæta bjórstíl,
en í seinni tíð einfaldlega Siggi í
RVK, að dreypa á heimabrugguðum
Wit-bjór. Heimabruggarinn sagði
undan og ofan af tilurð bjórsins,
en sem meira máli skipti þá benti
hann Sigurði á spjallsíðu Fágunar,
Félags áhugafólks um gerjun.
Þar með fóru hjólin að snúast svo
um munaði.
Siggi hafði starfað á verð-
bréfamörkuðum Wall Street í tæpa
tvo áratugi þegar hann flutti heim
2004. Ekki grunaði hann að bruggið
ætti endilega eftir að verða næsta
stóra verkefni en aðdragandinn var
í sjálfu sér kunnuglegur glöggum
lesendum þessa greinaflokks: fólk á
tímamótum í lífi sínu kemst í kynni
við undraveröld heimabruggsins
sem leiðir af sér ástríðu og loks
opnunar á brugghúsi.
Sprengju varpað
Eftir þennan örlagaríka bjór í
Mývatnssveitinni fór okkar maður
að skoða og stúdera Fágunarspjallið
þar sem hið litla en nána íslenska
heimabruggarasamfélag skiptist á
hugmyndum, skoðunum, tækjum
og hráefnum. Eitthvað var hann
þó tvístígandi en lét slag standa
2012 þegar sprengju var varpað
á spjallborðinu! Ungur maður að
nafni Hrafnkell Freyr Magnússon
tilkynnti um að hann hefði flutt inn
nokkra sekki af korni og væri að
selja það í lausu út úr bílskúrnum
hjá sér. Þessi póstur var
upphafið af því sem í dag
er Brew.is. Þetta varð
til að ýta mörgum af
stað, þar á meðal
Sigga, sem keypti
af Hrafnkatli
grunnbúnað og
hráefni og hóf að
brugga.
Fljótlega vatt
tóm stunda gamanið
upp á sig, tækin urðu
stærri og betri, bjórarnir
flóknari og stílarnir meira framandi.
Beðinn og óumbeðinn lét Siggi
vini og vandamenn smakka
veigarnar og ýmist reyndi að
lagfæra bjórana eða bæta smekk
viðkomandi, eins og hann orðaði
það í viðtali við Bruggvarpið,
hlaðvarpi um bjór, sumarið 2021,
allt eftir því hvernig viðbrögðin
voru. Það var síðan æskuvinur
hans, gamall lúðrasveitarfélagi,
bekkjarbróðir úr menntó og kollegi
í fjármálaheiminum, maður að nafni
Steinþór Baldursson, sem hvatti
hann til að taka skrefið til fulls og
stofna brugghús. Saman fóru þeir
og skoðuðu það af fullri alvöru
en Steinþór lést í kjölfar erfiðra
veikinda síðsumars 2016 og náði því
ekki að klára þessa vegferð með vini
sínum sjálfur. Þann 1. mars 2017, á
sjálfan bjórdaginn, var fyrirtækið
stofnað og nefndist það SB brugghús
ehf. til að heiðra Steinþór og eftir
það var ekki aftur snúið.
Sögulegur dagur
Sem fyrr segir voru bjórar
brugghússins í fyrstu seldir
undir engilsaxneska heitinu
RVK Brewing company, enda sá
Siggi fyrir sér erlenda gesti sem
uppistöðukúnnahópinn,
s é r s t a k l e g a á
Bruggstofunni, en
síðar þegar ljóst
varð að Íslendingar
höfðu mun meiri
áhuga en reiknað
hafði verið með
var nafninu breytt
í RVK Bruggfélag.
Fyrirmyndin voru
míkróbrugghúsin í
Bandaríkjunum sem
Siggi hafði verið duglegur að
heimsækja, sem kannski útskýrði
hugmyndirnar um samsetningu
kúnnanna upphaflega.
Í maí 2018 hófst bruggun í
brugghúsinu sem komið hafði
verið fyrir á neðstu hæð í
atvinnuhúsnæði í Skipholti. Þann
16. júní fór svo fyrsti bjórinn í
sölu á Skúla Craftbar, en varla
mætti hræða á opnunina. Ástæðan
var reyndar ekki áhugaleysið á
bjórnum heldur var Ísland að
keppa við Argentínu á HM þar
sem frægasta víti Íslandssögunnar
var vandlega varið og jafntefli
gegn framtíðarheimsmeisturunum
tryggt. Óhætt er að segja að RVK
hafi kunnað að velja daginn, en
bjórinn var tilbúinn og engin bulla
í hópnum, þannig að svo fór sem fór.
Brugg í stað bingós
En fall er fararheill er stundum
sagt. Litla brugghúsið í Skipholti
óx og dafnaði en fyrst um sinn
var einungis einblínt á veitinga-
og kútamarkað og gekk það
ágætlega. Fyrsti bruggmeistari
RVK var Alyson Hartwig frá
Bandaríkjunum, sem hafði
numið bruggfræðin í Siebel
Institude í Chicago en fljótlega
fór hún í Ölgerðina og Valgeir
Valgeirsson, sem áður hefur
komið við sögu í þessum
pistlum, hafði vistaskipti frá Borg
til RVK. Valgeir hefur nú horfið
á braut en Hjalti Einarsson hefur
borið þungann af bruggun og þróun
bjóra undanfarið ár.
Rúmum tveimur árum eftir
að fyrsti bjórinn kom á markað
var farið að huga að stækkun
brugghússins. Covid-bylgjan
var farin að leika landsmenn
LÍF&STARF
Handverksbrugghúsin á Íslandi:
Allir með strætó
Sigurður Snorrason á bjórhátíðinni á Hólum 2018. Siggi hafði starfað á verð-
bréfamörkuðum Wall Street í tæpa tvo áratugi þegar hann flutti heim 2004.
Þann 16. júní 2018 fór svo fyrsti bjór RVK bruggfélags í sölu.
Sigurvegarar í Bjórhlaupinu 2019. Siggi,
eigandi RVK Bruggfélags, Einar Njálsson
og Helga Jóna Jónasdóttir.
Höskuldur
og Stefán
hoskuldur@bondi.is
Litla brugghúsið í Skipholti hefur vaxið og dafnað en fram undan er opnun
á nýrri bruggstofu í anddyri Tónabíós í sumarbyrjun.