Bændablaðið - 27.04.2023, Blaðsíða 45
45Bændablaðið | Fimmtudagur 27. apríl 2023
AMMANN
JARÐVEGSÞJÖPPUR
Í MIKLU ÚRVALI
GÆÐI SEM ENDAST
Tangarhöfða 1, 110 Reykjavík / 551 5464 / wendel.is
Helluhraun 4, Hafnarfirði
sími 565 2727 & 892 7502
www.rag.is
Verð 5.350.000,-
Við auglýsum svo
sannarlega ekki “verð frá”. VIÐ AUGLÝSUM
ALDREI
„VERÐ FRÁ“
SERES 3
Luxury Rafmagnsbíllinn
býður upp á ríkulegan
staðalbúnað og frágang
í hæsta gæðaflokki!
grátt og þegar veitingastaðir
lokuðu færðist fókusinn af því að
þjónusta veitingastaðinn og yfir í
Vínbúðina. Veltan óx jafnt og þétt og
margfaldaðist framleiðslan þannig
að stækkunin var ákveðin. Ekki
var þó leitað langt yfir skammt,
heldur var útbúið nýtt brugghús
í næsta húsi, í kjallaranum á
gamla Tónabíói, sem hefur raunar
verið kunnara sem bingósalurinn
Vinabær síðustu áratugina. Það er
ef til vill tímanna tákn að bingóspil
Templara hafi að lokum vikið fyrir
handverksbruggurum?
Bjórarnir frá RVK bruggfélagi
hafa spannað litróf bjórstílanna,
frá Imperial Grisette og þungum
Hnallþórustátum yfir í léttari Yzuz
hrísgrjónalagerbjór og allt þar á
milli. Hverfi Reykjavíkur hafa
fengið bjóra nefnda í höfuðið á sér:
Hlíðar, Skuggi og Holt eru allir
bjórar sem komið hafa á markað og
svo má nefna bjórinn Verum bara
vinir, súröl með ástaraldin. Þar er
orðagrín sem lesendum er eftirlátið
að geta sér til um. Þá er varla hægt
að sleppa því að minnast á Ora
jólabjórinn sem sló rækilega í gegn
jólin 2021 en það samstarfsverkefni
var tilnefnt til ýmissa verðlauna utan
bjórheima. Ora-bjórinn rataði alla
leið í Landann, sem er næstum eins
gott og að komast í skaupið!
RVK bruggfélag hefur gert
ýmislegt annað en að framleiða
bjóra, eins og t.d. að skipuleggja í
þrígang alþjóðlegt bjórhlaup, sem
hefðu verið fleiri ef ekki hefði verið
fyrir Covid. Þá var til skamms tíma
starfrækt Bruggstofa og Honkitonk
BBQ-staður á afar viðeigandi stað
á Snorrabrautinni, þar sem áður var
ÁTVR vínbúð til húsa og þar áður
höfuðstöðvar Strætó, en verkstæði
var rekið þar á efri hæð hússins. Það
ævintýri varð einnig veirunni slyngu
að bráð, eins og margar aðrar góðar
hugmyndir.
Fram undan er síðan að opna nýja
bruggstofu í anddyri Tónabíós og
er hún fyrirhuguð í sumarbyrjun.
Þar hefur Siggi nostrað við
hlutina og endurnýjað eins mikið
upprunalegt og hann hefur getað til
að halda í anda hússins. Lesendur
Bændablaðsins ættu líka að finna
þar góða strauma en bæði bar og
kælirinn í kjallaranum eru fengnir
frá Hótel Sögu og endurbyggðir í
Skipholtinu. Ljóst er hverjum sem
þar kemur að einkunnarorð RVK
bruggfélags, „gríðarlega vandað“,
sem fengin voru frá æskuvininum
Steinþóri, eru í hávegum höfð.
Alyson Hartwig, fyrsti bruggmeistari RVK, í fyrsta brugginu þann 7. maí 2018.
Sömmer lövin, sumarbjór RVK bruggfélags.