Bændablaðið - 27.04.2023, Síða 49
49Bændablaðið | Fimmtudagur 27. apríl 2023
Hvernig er stórnotandi skil-greindur
með tiltekinni ársnotkun raforku?
Er flutningstap óhjákvæmileg?
Afl tapast ávallt í raflínum við
flutning raforku frá virkjun til notenda.
Það gerist vegna eðlilegs rafviðnáms
í málmefni leiðara í loftlínu eða
jarðstreng. Því lengri sem loftlína eða
jarðstrengur er, og því meiri raforka
sem flutt er á hárri spennu, þeim mun
meira verður flutningstapið. Reikna má
með að jafnaði um 2% flutningstapi
í raflínukerfinu. Hægt er að minnka
flutningstap í raflínum og benda
hagaðilar á ólíkar leiðir á næstunni, t.d.
byggingu smávirkjana og staðbundins
raflínunets í einn stað en í annan frekari
samtengingu stærri virkjana og öflugra,
samtengds flutningsnets.
Stórnotandi
Stórnotandi er, skv. lögum, aðili sem
nýtir a.m.k. 80 GWst raforku á ári, á
einum og sama stað, til a.m.k. þriggja
ára í senn. Slík notkun getur þurft 12-
14 MW rafafl. Ýmis verkefni eru í
skoðun eða vinnslu þar sem notendur
falla eða munu falla í þennan flokk.
TDK Foil Iceland (fyrrum Becromal)
á Akureyri og fiskimjölsverksmiðjur
eru þar fyrir, rafvæddar hafnir, stór
landeldisfyrirtæki og ylræktarver,
samvinnuhópur ylræktenda, auðlinda-
garðar og framleiðendur matvæla eða
t.d. þörunga geta bæst við. Hugtakið
stóriðja er jafnan notað um allra stærstu
stórnotendur, svo sem álver sem notar
ár hvert t.d. 550 MW rafafl til yfir 4.000
GWst orkunotkunar við framleiðsluna.
Hugtakið orkufrek starfsemi sést
líka og nær yfir nýtingu stórnotenda
jafnt sem stóriðju og enn eitt
hugtakið er orðið stóriðnaður.
Uppsett afl
Orkuver gefa jafnan upp afltölu (í kW
eða MW) sem er fengin með því
að ákvarða hve miklu rafafli
tækjabúnaður orkuvinnslustöðvar
getur skilað við fullt álag miðað við
hönnun hennar.
Allar vatnsaflsvirkjanir með afl
að 10 MW falla undir lög um orku-
nýtingu landsvæða (rammaáætlun)
en jarðvarmavirkjanir hafa hærra
viðmið í þessum efnum: 50 MW.
Fyrir vindaflið, sem líka fellur
undir rammaáætlun, gæti 10 MW
viðmiðið sem best gilt.
Smávirkjanir, undir umræddum
viðmiðunarmörkum, eru margar
fyrir í landinu og þeim fjölgar, allt
vatnsaflsvirkjanir að svo komu máli,
eða stækkanir jarðvarmavirkjana.
Endanleg orkuframleiðsla
virkjana, gefin upp sem MWst eða
GWst, samsvarar oftast heldur
lægri afltölu nýtingar en uppsetta
aflið. Ýmsar orsakir koma til, t.d.
vatns- eða gufuskortur, bilanir og
svokölluð reglun (á fyrst og fremst
við vatnsvirkjanir) þegar breyta þarf
álagi í flutningskerfinu og t.d. flytja
raforku milli landshluta.
Orkugeta
Orugeta er hugtak yfir árlega orkutölu
(í kWst, MWst, GWst eða TWst),
sem reiknuð er út miðað við möguleg
afköst virkjunar, eða niðurstaða
mælinga á ársgrunni.
Kröfluvirkjun (framleiðir
einungis rafmagn) er t.d. 60 MW
en Hrauneyjafossvirkjun 280 MW.
Hellisheiðarvirkjun framleiðir
um 300 MW rafaafls og 120 MW
varmaafls en Svartsengisvirkjun 75
MW rafafls og 150 MW varmaafls
og verður brátt stækkuð.
Tvö vindorkuver Landsvirkjunar
sem eru í rammaáætlun eru samanlagt
um 220 MW að rafafli.
/ATG
Mikilvæg hugtök
– Fróðleikur um orkumál og orkuskipti – 6. hluti
FRÆÐSLA
Til sölu Hestaleiga í fullum rekstri
Um ræðir stórglæsilega hestaleigu, ásamt
tilheyrandi fasteignum og lausafé. Sólhestar er
ferðaþjónustufyriræki sem er með daglegan
rekstur allt árið um kring í Fjárborgum
Reykjavik og Borgargerði í Ölfusi.
Miklir vaxtamöguleikar
Áætlaðir 12.000 viðskiptavinir árið 2023
solhestar@solhestar.is
Tilboð óskast
Hesthús í Reykjavík
Starfsmannaaðstaða
Ökutæki / Hestakerrur
Viðskiptatengsl
Bókunarkerfi / Vefsíða
60 Hross / Reiðtygi
Möguleiki á að leigja aðstöðu í
Ölfusi
Söluyfirlit
oli@olafur.is / 416-2220 - Selfossi
Lækjarvellir land 2, Hörgársveit , breyting á deiliskipulagi, auglýsing deiliskipulagstillögu
Sveitarstjórn Hörgársveitar samþykkti á fundi sínum þann 23. mars 2023 að vísa deiliskipulagstillögu fyrir
breytingu á Lækjarvöllum land 2 í auglýsingu skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Í deiliskipulagsbreytingu athafna-, verslunar- og þjónustusvæðis við Lækjarvelli, felst að gerð er breyting
á norðurhluta svæðisins þar sem legu vegar og göngustíga er breytt.
Þá eru gerðar breytingar á lóða- mörkum og lögun byggingarreita og/eða á lóðanúmerum eftirfarandi
lóða: 9, 10, 11, 12, 13, 14, 15, 16, 17, 19, 21 og 23.
Við skilmála deiliskipulags bætast við eftirfarandi kvaðir: Gerð er krafa um að manir sem skilgreindar eru í
gildandi deiliskipulagi verði kláraðar og gróðursett í þær. Gerð er krafa um að lýsing á lóðum lýsi ekki upp
umhverfið í kring heldur miðist að því að lýsa upp viðkomandi lóð og sé glýjufrí.
Tillagan að deiliskipulagsbreytingunni er aðgengileg á sveitarskrifstofu Hörgársveitar, Þelamerkurskóla
604 Akureyri, milli 12. apríl 2023 og 24. maí 2023 sem og á heimasíðu sveitarfélagsins, horgarsveit.is.
Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugsemdir við
skipulagstillögurnar til miðvikudagsins 24. maí 2023.
Athugasemdir skulu vera skriflegar og skulu berast til Skipulags- og byggingarfulltrúa Eyjafjarðar,
Skólatröð 9, Hrafnagilshverfi, 605 Akureyri, eða í tölvupósti á netfangið sbe@sbe.is.
Skipulagsfulltrúi.
Hörgársveit
ÞÓR HF
thor.is
EK1-261
Virkjuð háhitaborhola. Um 60% svonefndrar frumorku sem notuð er á Íslandi
felst í hitaveitunum en 25% er raforka hennar og 15% á formi innflutts
jarðefnaeldsneytis. Mynd / Orka náttúrunnar