Bændablaðið - 27.04.2023, Side 50

Bændablaðið - 27.04.2023, Side 50
50 Bændablaðið | Fimmtudagur 27. apríl 2023 AF VETTVANGI BÆNDASAMTAKANNA Í dag eru rúmlega 2.500 færri lifandi naut í landinu en þau voru fyrir tveimur árum. Fækkunin á sér stað í öllum aldursflokkum nauta, að aldrinum 18-20 mánaða undanskildum, en sveiflur geta verið á milli aldursflokka á milli ára. Mest er fækkunin í nautum yngri en 12 mánaða, eða í ásetningsnautum en þau eru í dag tæplega 1.200 færri en þau voru fyrir tveimur árum. Nú er endurskoðun búvörusamninga hafin. Það er nauðsynlegt að stjórnvöld setji aukið fjármagn í búvörusamninga til að tryggja framleiðslu og til að bæta afkomu bænda. Eflum fæðuöryggi: Er stjórnvöldum alvara? Undanfarið hefur mikið verið rætt og skrifað um fæðuöryggi þjóðarinnar. Ráðamönnum verður tíðrætt um það og mikilvægi þess að auka f æ ð u ö r y g g i . Það er eðlilegt þ a r s e m heimsfaraldur Covid-19 og síðar innrás Rússa í Úkraínu hefur sýnt okkur að kerfið okkar er viðkvæmara en við töldum. Það hefur sýnt sig að það er hverri þjóð nauðsynlegt að vera sjálfri sér næg á sem flestum sviðum. Í ljósi þessa er nauðsynlegt að við framleiðum eins mikið og mögulegt er af þeim matvælum sem við þurfum hér innanlands. Aðfangakeðjurnar hafa hökt og verð á aðföngum rokið upp. Há verðbólga og miklar vaxtahækkanir í kjölfarið hafa svo gert ástandið enn verra. Minni ásetningur nauta Nautgripabændur hafa ekki farið varhluta af þessu, reksturinn hefur þyngst og afkoman versnað mikið, hvort sem litið er til mjólkur- eða nautakjötsframleiðslu. Þó er staðan hjá nautakjötsframleiðendum sýnu verri, en þar erum við farin að sjá umtalsverða fækkun á gripum og því ljóst að framleiðluvilji bænda er að bresta! Í dag eru rúmlega 2.500 færri lifandi naut í landinu en þau voru fyrir tveimur árum. Fækkunin á sér stað í öllum aldursflokkum nauta, að aldrinum 18-20 mánaða undanskildum, en sveiflur geta verið á milli aldursflokka á milli ára. Mest er fækkunin í nautum yngri en 12 mánaða, eða í ásetningsnautum en þau eru í dag tæplega 1.200 færri en þau voru fyrir tveimur árum. Neikvæð afkoma nautakjöts- framleiðenda, ár eftir ár Ástæður samdráttar í nauta- kjöts framleiðslu eru ein faldar. Rekstarskilyrði í nautakjöts- framleiðslu hafa verið gífurlega erfið undanfarin ár. Skýrsla RML um rekstur og afkomu nautakjötsframleiðenda 2017-2021 sýnir þetta glöggt. • Árið 2019 borguðu nautakjöts- framleiðendur 603 krónur með hverju framleiddu kílói. • Árið 2020 borguðu nautakjöts- framleiðendur 568 krónur með hverju framleiddu kílói. • Árið 2021 borguðu nautakjöts- framleiðendur 412 krónur með hverju framleiddu kílói. Varlega áætlað er að á árinu 2022 hafi nautakjötsframleiðendur greitt a.m.k. 500 krónur með hverju kílói af framleiddu nautakjöti, þrátt fyrir að afurðaverð hafi hækkað og viðbótarfjármagn hafi komið í formi áburðarstuðnings og í gegnum spretthóp matvælaráðherra. Þar sem að rúmlega 3.000 tonn af nautakjöti voru framleidd á árinu 2022, þýðir það að nautakjötsframleiðendur greiddu rúmlega 1,5 milljarða með framleiðslu sinni það árið. Þessari stöðu þarf að bregðast við strax. Við höfum góðar aðstæður hér á landi til að framleiða það nautakjöt sem við þurfum hér innanlands. Það verður því að skapa nautakjötsframleiðslunni ásætt- anlegt starfsumhverfi og tryggja að þeir sem hana stunda hafi viðunandi afkomu. Rafn Bergsson. Þá er vorið komið og sumarið á næsta leiti, hefðbundnar sviptingar í veðurfari og flest eins og við eigum að venjast sem stundum sauðfjárrækt. Fram undan er skemmtilegasti tími ársins, sauðburðurinn. Annasamur tími þar sem oft geta skipst á skin og skúrir. Við sem stönd- um í stafni fyrir sauðfjárbændur gerum það af óbilandi trú á íslenskri sauð- fjárrækt og þeirri gæðaframleiðslu sem hún gefur af sér. Íslenskt lamba- kjöt stendur undir öllum þeim kröfum sem neytendur nútímans gera til matvæla, lítil notkun sýklalyfja, hreint vatn, heilnæmt fóður og svo væri lengi hægt að telja. Á síðastliðnum 6 árum höfum við verið að undirbúa okkur undir nákvæmlega það sem er að gerast á markaði hérlendis. Innflutningur á lambakjöti er orðinn að veruleika og í verslunum má finna kjötkæla fulla af innfluttu spænsku lambakjöti. Það eru kaldar kveðjur til sauðfjárbænda nú í upphafi sauðburðar. Reyndar þurfa sauðfjárbændur ekki að óttast neina samkeppni. Svo framarlega sem afurðastöðvar og smásöluaðilar nýti sér kosti og gæði íslenska lambakjötsins í markaðs- og sölustarfi. Þar skiptir miklu máli að upplýsa neytendur um gæði vörunnar, sérstöðu og ekki síður að upprunaland vörunnar komi skýrt fram á neytendapakkningum. Nýlega fékk íslenskt lambakjöt verndaða upprunatilvísun frá Evrópusambandinu, svokallaða PDO-merkingu (e. Protected designation of origin). Þessi vottun er árangur af starfi Icelandic Lamb. Með þessari vottun er lambakjötið sett á sama stall og margar þekktar evrópskar landbúnaðarafurðir svo sem parmaskinka, fetaostur og kampavín. Um þessar mundir er meðal- afurðaverð til sauðfjárbænda 1.120 kr/kg. Síðasta haust var reiknað meðalafurðaverð á Íslandi 755 kr/ kg. Aðeins afurðaverð í Rúmeníu er lægra. Ef það er raunverulegur grundvöllur að flytja inn lambakjöt frá Spáni, hvar bændur fá 43% hærra afurðaverð, þá hlýtur að vera hægt að tryggja íslenskum bændum sambærileg kjör. Við óttumst ekki samkeppni við innflutt lambakjöt. Við sauðfjárbændur gerum bara þá einföldu kröfu að okkur séu gefin tækifæri til að lifa af okkar búskap. Markaðurinn sér svo um sína. Komi þeir sem koma vilja, fari þeir sem fara vilja, mér og mínum að meinalausu. Trausti Hjálmarsson, formaður deildar sauðfjárbænda. Trausti Hjálmarsson. Komi þeir sem koma vilja! Heimild: Weekly price report on Heavy Lamb and Light Lamb prices in the EU. https://europa.eu. Afurðaverð á lambakjöti í Evrópusambandinu - 10. apríl 2023 Miðað við gengi Evru = 150 Nýlega fékk íslenskt lambakjöt verndaða upprunatilvísun frá Evrópu- sambandinu, svokallaða PDO-merkingu (e. Protected designation of origin). Þessi vottun er árangur af starfi Icelandic Lamb. Í verslunum má finna kjötkæla fulla af innfluttu spænsku lambakjöti.

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.