Bændablaðið - 27.04.2023, Side 54
54 Bændablaðið | Fimmtudagur 27. apríl 2023
Árið 2020 mældist álmur í
Múlakoti í Fljótshlíð 20,54
metrar á hæð. Þar með bættist
hann í flokk þeirra trjátegunda
sem náð hafa tuttugu metra hæð
hérlendis.
Þær eru nú tíu og nefnast í
stafrófsröð alaskaösp, álmur,
blágreni, degli, evrópulerki,
fjallaþinur, rauðgreni, rússalerki,
sitkagreni og stafafura.
Fáeinar tegundir í viðbót
nálgast tuttugu metra markið,
skógarfura, hengibirki, gráelri,
blæelri og askur.
Álmur er samheiti nokkurra
tuga lauftrjátegunda af álmætt-
kvíslinni sem vaxa víða um
norðurhvel jarðar, allt frá
norðurheimskautsbaug og suður
fyrir miðbaug. Þetta eru tré sem
gjarnan geta orðið 30-40 metra há
eða meira. Það sem við köllum í
daglegu tali álm er sú tegund sem
hefur fræðiheitið Ulmus glabra,
er algengasta álmtegundin í
norðvesturhluta Evrópu og sú
eina sem hefur þrifist hérlendis.
Á höfuðborgarsvæðinu eru
myndarleg álmtré sem sennilega
eru af dönskum uppruna. Þau
geta orðið að tignarlegum trjám
en eru kalsækin og henta einkum
sunnanlands. Hingað hefur
einnig borist álmur frá Beiarn
á 67° norðurbreiddar í Noregi.
Hann er fullkomlega harðger
en seinvaxinn og oft kræklóttur.
Slíkt getur sumum jafnvel þótt
kostur frekar en galli svo sem í
garðrækt eða við götur og torg
þar sem er mikilvægast að trén
séu hraust og þrífist en síður að
þau verði mjög stór.
Hér er komin tegund sem
gefa mætti meiri gaum hérlendis,
ekki síst hin norðlægu kvæmi
frá Noregi. Álmtré eru yfirleitt
einstofna tré með breiða,
regnhlífarlaga krónu sem gefur
þeim einkennandi svip, svo þau
þekkjast gjarnan langar leiðir,
hvort sem er í skógi eða görðum.
Haustlitir eru fallega gulir. Álmur
er áhugaverð tegund til að auka
fjölbreytni og prýða umhverfið
því hann brýtur upp einsleit form
innan um aðrar trjátegundir með
sínu hvelfda krónuformi.
Tegundin hefur verið reynd
víða um land og reynst vel á
jafnvel ólíklegum stöðum þar
sem næðir um hana, svo fremi
hún búi við nægan raka og
frjósaman jarðveg. Hérlendis vex
álmur fremur hægt en örugglega
ef hann verður ekki fyrir áföllum,
svo sem kali eða snjóbroti.
Styrkleiki álms er ekki síst
gott vindþol tegundarinnar
sem sannarlega er þakkarvert
hérlendis, ekki síst í
þéttbýlisgörðum. Vert væri að
huga meira að ræktun álms í
þéttbýli, jafnvel sem götutré.
Laufið á álminum er þétt í sér
og þolir þannig vindbarning mun
betur en sumar aðrar tegundir,
svo sem alaskaösp. Þá þolir
álmur allvel saltákomu af sjó og
sömuleiðis loftmengun. Annar
meginstyrkleiki álms er viðurinn
sem hefur verið eftirsóttur til
smíða enda fallegur og oft
með fallega brúnan kjarna, en
líka bæði léttur og sterkur. Á
sjöunda og áttunda áratugnum
voru til dæmis innihurðir,
innréttingar og jafnvel veggja-
og loftaklæðningar í íslenskum
húsum gjarnan spónlagðar
með svokölluðum gullálmi,
ljósgullnum viði úr tilteknu
blendingsyrki álms, Ulmus x
hollandica 'Wredei'.
Alkunn er álmsýkin, svepp-
sjúkdómur sem barkar- bjöllur
bera milli trjánna og þurrkaði
álm að miklu leyti út í Evrópu
á seinni hluta síðustu aldar.
Álmsýki olli líka miklum skaða
vestanhafs og á Nýja-Sjálandi.
Illa hefur gengið að finna kvæmi
eða einstaklinga af evrópskum
álmi með mótstöðuafl gegn
álmsýki. Hins vegar hefur tekist
að rækta fram yrki, bæði í Evrópu
og Norður-Ameríku, sem sögð
eru þola sjúkdóminn, m.a. með
því að sækja erfðaefni í asískar
álmtegundir með náttúrlega vörn
gegn sýki þessari. Nú er komið
nokkurt úrval af slíkum yrkjum
í ræktun bæði austan hafs og
vestan, þar á meðal blendingar
við evrópska álminn. Hægt
gengur þó að auka vinsældir
tegundarinnar á ný, sennilega
vegna þess slæma orðs sem
álmurinn fékk á sig þegar trén
drápust unnvörpum á síðustu
öld, ekki síst glæsileg götutré
sem víða settu mikinn svip á
evrópskar borgir.
Hingað til lands hefur
álmsýki ekki borist og ekki
heldur aðrar helstu óværur sem
herja á tegundina, ef undanskilin
er álmlús. Hún getur farið illa
með lauf trjánna þegar líður á
sumarið og spillt útliti þeirra en
er ekki skaðleg að öðru leyti.
Rifstegundir eru millihýsill
álmlúsar og því er óráðlegt að
rækta rifs í nágrenni við álmtré.
Ef rétt er staðið að ræktun
álms ætti þessi tegund að geta í
auknum mæli prýtt götur og torg
íslenskra þéttbýlisstaða en líka
verið til yndisauka og aukinnar
fjölbreytni í görðum og skógum
landsins.
Pétur Halldórsson.
Álmur (Ulmus glabra)
Stofn og lauf á álmi. Myndir/ Pétur Halldórsson
SKÓGRÆKT Á FAGLEGUM NÓTUM
Hið árlega og einkar áhugaverða
danska fagþing nautgripa-
ræktarinnar, Kvægkongres, var
haldið í lok febrúar sl. og líkt og
undanfarinn áratug voru þar flutt
ótal erindi sem eiga mörg hver
erindi við íslenska bændur.
Fagþingið, sem er í senn bæði
ársfundur félagasamtaka danskra
nautgripabænda og fagfundur
helsta vísindafólks í greininni,
stóð í tvo daga og var skipt upp
í 12 málstofur með 67 erindum. Í
þessari grein verður gripið niður
í nokkur erindi sem voru flutt í
málstofunum um dýraheilbrigði
og -velferð og nýtingu.
7. Dýraheilbrigði og -velferð
Í málstofunni voru flutt fimm
erindi og sneri eitt þeirra m.a.
að því hvers vegna fjölónæmar
bakteríur eru að verða stærra og
umfangsmeira vandamál en verið
hefur. Skýringin á því er nánast
hömlulaus og röng notkun á
sýklalyfjum í fjölmörgum löndum,
bæði í landbúnaði en ekki síður
í almennri heilbrigðisþjónustu.
Þannig er t.d. aðgengi að slíkum
lyfjum víða þannig að fólk getur
einfaldlega keypt þau í næsta
apóteki án lyfseðils.
Þetta leiðir bæði til ofnotkunar
og rangrar notkunar og bakteríurnar
þróast þá samhliða slíkri notkun,
aðlagast og þannig geta þróast
afbrigði sem eru hreinlega ónæm
fyrir lyfjameðferð. Þetta er
auðvitað grafalvarlegt og getur
valdið stórtjóni ef ekki verður
brugðist við og/eða ný lyf koma
fram sem ráða við þessar breyttu
bakteríur.
Um þetta fjallaði erindi
læknisins Ute Wolff Sönksen og
dýralæknisins Øystein Angen.
Þeir sögðu í erindi sínu að þó
svo að mörg lönd, svo sem Ísland
og Noregur, hafi náð verulega
góðri stjórn á notkun sýklalyfja,
þá sé áhyggjuefni hve hömlulaus
notkunin er í mörgum öðrum
löndum. Hinar breyttu bakteríur
spyrja ekki um landamæri og geta
því hæglega dreift sér um allan
heim m.a. með bæði ferðamönnum
og matvælum og komið sér þannig
fyrir á nýjum stað með tilheyrandi
vandamálum.
Fram kom í erindi þeirra að talið
sé að 1,3 milljón manns hafi látist
af völdum fjölónæmra baktería í
heiminum árið 2019 og þessi fjöldi
vaxi ár frá ári.
Þó svo að þeir félagar hafi í
raun hrósað dönskum landbúnaði,
og þá sérstaklega kúabændum, fyrir
ábyrga notkun sýklalyfja, þá lögðu
þeir áherslu á að allir þurfi að vera
á varðbergi og fylgja í einu og öllu
þeim leiðbeiningum sem gefnar
eru varðandi notkun sýklalyfja. Þá
væri mikilvægt að passa vel upp á að
stöðva mögulegar smitleiðir á búum,
svo draga megi úr líkum á því að
óheppilegar bakteríur dreifi sér. Hér
vegur þyngst að huga að hreinlæti
og passa upp á að rjúfa mögulegar
smitleiðir inn á búin, s.s. tryggja að
aðkomandi bílar eða einstaklingar
beri ekki með sér smit.
Frumuhátt mjaltaþjónabú
Annað áhugavert erindi í þessari
málstofu var reynslusaga danska
Snorri Sigurðsson
snorri.sigurdsson@outlook.com
Fagþing dönsku nautgripa-
ræktarinnar 2023
– Þriðji hluti
CFIT kerfið reiknar út þunga kúa og fylgist með áti þeirra.
Fjölónæmar bakteríur eru vaxandi vandamál víða um heim. Myndin sýnir hlutfall sumra tegunda baktería sem eru
ónæmar fyrir sýklalyfjum.
Flemming skipti of sjaldan um bursta
í mjaltaþjónunum.
Álmur er hentugt garðtré.