Bændablaðið - 27.04.2023, Qupperneq 60
60 Bændablaðið | Fimmtudagur 27. apríl 2023
RÁÐGJAFARMIÐSTÖÐ LANDBÚNAÐARINS
Opnað verður á skráningar
á kynbótasýningar 4. maí.
Skráning og greiðsla fer fram
eins og síðustu ár í gegnum
heimasíðu RML www.rml.is en
á forsíðunni er flýtihnappur sem
skráð er í gegnum.
Á forsíðu
WorldFengs er
einnig hægt að
skrá hross til
sýningar. Nánari
l e i ð b e i n i n g a r
varðandi skrán-
ingar er að finna á
heimasíðu RML.
Í meðfylgjandi
töflu má sjá
hvaða sýningarstaðir eru í boði og
lokaskráningardag á hverja sýningu
en skráningu þarf að vera lokið á
miðnætti þess dags. Ef sýning fyllist
lokast sjálfkrafa á sýninguna þó svo
skráningarfrestur sé ekki útrunninn.
Eigandi/umsjónarmaður hrossins
verður þá að velja aðra sýningu. Til
að fá aðstoð er hægt að hringja í síma
516-5000, eða senda tölvupóst á
netföngin halla@rml.is og hross@rml.
is. Við bendum á að utan dagvinnutíma
eru starfsmenn RML ekki til staðar til
að svara síma eða tölvupósti og því
hvetjum við eigendur/umsjónarmenn
hrossa til að skrá tímanlega.
RML áskilur sér rétt til að fækka
dögum á sýningum ef skráningar
eru færri en búist er við og sameina
sýningar ef þess gerist þörf. Sýning
verður ekki haldin nema lágmarksfjöldi
skráninga náist, sem eru 30 hross.
Hér að ofan má sjá sýningar-
áætlun vorsins og hvenær eru síðustu
skráningadagar. Allar upplýsingar
um röðun niður á daga munu birtast á
heimasíðunni www.rml.is, þegar þær
eru tilbúnar, sem verður nokkrum
dögum fyrir sýningu.
Sýningargjöld og fleira
Verð fyrir fullnaðardóm er 39.350 kr.
en fyrir sköpulagsdóm/hæfileikadóm
30.000 kr. Ganga þarf frá greiðslu um
leið og hrossið er skráð. Hægt er að
greiða með debet- eða kreditkortum,
ekki er hægt að greiða með millifærslu.
Um leið og hrossið hefur verið skráð
og greiðsla framkvæmd, birtist hrossið
strax inn á viðkomandi sýningu. Ef
það gerist ekki er rétt að kanna hvort
eitthvað hafi farið úrskeiðis við
skráninguna.
Aðeins þau hross sem hlotið hafa
fullnaðardóm á sama sýningarári er
hægt að skrá eingöngu í reiðdóm.
Endurgreiðslur á sýningar gjöldum
koma því aðeins til greina ef forföll
eru tilkynnt með tölvupósti fyrir kl.
16.00 síðasta virka dag fyrir upphaf
sýningarviku á netfangið hross@
rml.is.Endurgreitt er 22.500 kr.
fyrir hross sem skráð hefur verið í
fullnaðardóm og 17.200 kr. fyrir hross
sem hefur verið skráð í sköpulags-
eða hæfileikadóm. Slasist hross
eftir að sýning hefst er sama hlutfall
endurgreitt gegn læknisvottorði.
Endurgreiðslukrafa vegna slasaðra
hrossa þarf að hafa borist fyrir 1.
júlí. Skipti knapi út hrossi í sýningu
og velji að sýna annað hross en það
sem skráð er, ber sá hinn sami fulla
ábyrgð gagnvart þeim sem greiddi fyrir
plássið. Greiðsla fyrir það hross sem
skipt var út verður notuð til greiðslu á
hrossinu sem kom í staðinn.
Minnum á eftirfarandi:
• Ekki er hægt að skrá hryssur
eða geldinga til sýningar nema búið
sé að taka úr þeim stroksýni til DNA-
greiningar og staðfesting á því liggi
fyrir í WF.
• Allir stóðhestar verða að vera
DNA-greindir svo og foreldrar þeirra.
• Úr öllum stóðhestum fimm
vetra og eldri þarf að liggja fyrir í
WF að búið sé að taka blóðsýni og
röntgenmynda vegna spatts.
• Ekki er hægt að skrá hross á
kynbótasýningu nema þau séu örmerkt.
• Ef örmerki finnst ekki í hrossi
sem mætir til dóms ber að örmerkja
það á staðnum og taka stroksýni úr
nös til DNA-greiningar á ætterni, með
þeim kostnaði sem af því hlýst fyrir
eiganda/forráðamann. Örmerki og
DNA-sýni þurfa ávallt að fylgjast að.
Ekki er hægt að skrá hross til
sýningar nema ofantaldar kröfur séu
uppfylltar og skráning liggi fyrir í
WorldFeng.
Hross sem koma inn á sýningu í stað
annarra skráðra hrossa, og uppfylla
ekki þessi skilyrði, verður vísað frá
sýningu strax hjá mælingamanni án
undantekninga. Sýningargjald er ekki
endurgreitt í slíkum tilfellum.
Ef þess er nokkur kostur þá er
fyrir alla aðila farsælast að skrá rétt
hross á sýningu strax í upphafi því það
einfaldar alla vinnu á sýningarstað.
Munum því eftir að taka sýni og
röntgenmyndir í tíma.
Nánari upplýsingar um reglur
og annað sem viðkemur kynbóta-
sýningum má finna á heimasíðunni
www.rml.is eða hringja í síma
516-5000 hjá Ráðgjafarmiðstöð
landbúnaðarins.
Einnig er hægt að senda tölvupóst
á netfangið hross@rml.is.
Halla Eygló Sveinsdóttir,
ráðunautur í hrossarækt.
Sýningaráætlun vorsins
Dags. Staður Loka skráningadagur
30.5- 02.6 Gaddstaðaflatir, Hella I föstudagur 19. maí
05.6- 09.6 Víðidal, Reykjavík föstudagur 26. maí
05.6- 09.6 Gaddstaðaflatir, Hella II föstudagur 26. maí
12.6- 16.6 Sprettur, Kópavogi föstudagur 26. maí
12.6- 16.6 Gaddstaðaflatir, Hella III föstudagur 26. maí
12.6- 16.6 Hólar, Hjaltadal I föstudagur 26. maí
19.6- 23.6 Brávellir, Selfossi föstudagur 26. maí
19.6- 23.6 Gaddstaðaflatir, Hella IV föstudagur 26. maí
19.6- 23.6 Hólar, Hjaltadal II föstudagur 26. maí
Hrossarækt:
Skráningar á kynbóta-
sýningar vorsins
Halla Eygló
Sveinsdóttir.
Kristján Óttar Eymundsson við mælingar á síðsumarsýningu á Hólum.
Á heimasíðu RML er auðvelt að skrá hross til sýningar.
LÍFRÆNT ÍSLAND
Þórarinn Lárusson, fv. ráðunautur, annaðist sýnatökur og mælingar
á þurrefni og þúsundkornavigt yfir 20 ára tímabil (1994-2014) á
Austurlandi og dæmi um hans útreikninga er að sjá á mynd. Línuritið
er dæmigert fyrir mælingarnar yfir þetta tímabil, óháð árferði, og sýnir
niðurstöðu úr sýnum sem tekin voru í fyrrihluta september 2009 en
sýnin úr lífrænni ræktun í Vallanesi er að sjá efst á myndinni.
Það hafa margir eflaust lesið
skýrslu starfshóps um eflingu
kornræktar hér á landi af
áhuga, enda fróðleg um margt.
En það vakti athygli margra
hve hispurlaust er talað fyrir
aukinni notkun plöntuvarnarefna
(eiturefna) í umræddri skýrslu.
Skýrsluhöfundar telja nær
útilokað annað en að auka notkun
á varnarefnum hér á landi þar sem
mikið er undir í kornrækt. Ég leyfi
mér að hvetja til endurskoðunar
á þeim markmiðum sem fela í
sér þaulrækt og efnanotkun til
að viðhalda henni, í því annars
mikilvæga verkefni að efla
kornrækt á Íslandi, því vel er
hægt að rækta korn án varnarefna.
Áhrif eiturefna s.s.
skordýraeiturs í landbúnaði
á lýðheilsu, jarðveg og
grunnvatn eru þekkt. Notkun
eiturefna í Evrópu lýtur reglum
stjórnvalda sem setja viðmið
um leyfilegt magn þeirra auk
þess sem framleiðendur setja
notkunarreglur til að standast
þau viðmið. Nú er vitað að víða
er þessum reglum og viðmiðum
ekki fylgt í Evrópu, þetta er
vandræðaástand sem ESB
er að reyna að sporna gegn.
Hvort þessi almenna hegðun
af meginlandi Evrópu hafi
tilhneigingu til að endurtaka
sig hér skal ósagt látið. Evrópa
hefur skilgreint „rétt almennings
til að lifa í óeitruðu umhverfi“,
hvorki meira né minna. Aukinn
lífrænn landbúnaður er í stefnu
sambandsins eitt veigamikið
atriði til að ná því markmiði að
draga úr efnanotkun um 50%
fyrir árið 2030.
Á málþingi Fagráðs í
lífrænum landbúnaði nýverið
kom fram hversu mikið er
í húfi fyrir mannkynið að
varðveita heilbrigði jarðvegs
fyrir komandi kynslóðir, s.s.
til að sporna gegn áhrifum
hlýnandi loftslags en heilbrigður
jarðvegur getur bundið mikið
kolefni. Meðal fyrirlesara var
Austurríkismaðurinn Gerald
Dunst, sem er sérfræðingur
í jarðgerð og lífkolum.
Austurríki er það land sem hvað
mestum árangri hefur náð við
útbreiðslu lífræns landbúnaðar
í Evrópu og gegnir greinin
mikilvægu hlutverki þar í landi
umhverfislega en einnig til
verðmætasköpunar. Fram kom
að lífrænir bændur eru að skila
meiri uppskeru þar í landi.
Uppskerumagn hér á landi hefur
auk þess verið sambærilegt eða
meira í lífrænni kornrækt skv.
mælingum og samantektum
sem gerðar hafa verið. Þórarinn
Lárusson, f.v. ráðunautur,
annaðist sýnatökur og mælingar
á þurrefni og þúsundkornavigt
yfir 20 ára tímabil (1994-2014)
á Austurlandi
og dæmi
um hans
útreikninga er
að sjá á mynd.
Línuritið er
dæmigert fyrir
mælingarnar
yfir þetta
tímabil, óháð
árferði, og
sýnir niðurstöðu úr sýnum sem
tekin voru í fyrrihluta september
2009 en sýnin úr lífrænni ræktun
í Vallanesi er að sjá efst á
myndinni.
Hér á landi eru afköst í
lífrænni ræktun oft töluð niður
m.a. vegna þess að þar þarf að
stunda skiptiræktun (sáðskipti)
en gætum sanngirni í þeim
samanburði. Lífrænir bændur
fylgja því fyrirkomulagi að færa
tegundir á milli spildna eftir takti
sem er misjafn eftir tegundum.
Í kartöflum ættu að líða 3 ár á
milli þess sem þær eru ræktaðar
á sama stað. Korn er æskilegt
að færa eftir 3 ár. Tegundir af
krossblómaætt s.s. repju ætti að
færa ár hvert. Þetta þýðir ekki
að landið sé ekki í notkun það ár
sem er skipt heldur ber að víxla
tegundum í ræktun á viðkomandi
spildu. Skiptiræktun þýðir því
ekki að land sé alfarið tekið
„úr framleiðslu“ það ár sem er
skipt. Það fer eftir aðstæðum.
Bændur í fjölbreyttri lífrænni
ræktun hafa því að öllu jöfnu
tækifæri til að halda landi nær
alltaf „í framleiðslu“. Túnrækt
er vissulega hluti af þessu.
Skiptiræktun, sem alltaf hefur
talist til góðra búskaparhátta,
er grundvallaratriði í lífrænni
ræktun sem gerir að verkum að
plöntusjúkdómar þrífast síður í
jarðveginum og dregur úr þörf
á að eitra. Heilbrigði plantna
og geta þeirra til að verjast
skaðvöldum getur einnig oltið á
því að næring í jarðveginum sé
fjölbreytt og góð enda fóðraður
á lífrænum áburðarefnum. Í
hefðbundnum landbúnaði hér
á landi virðast sveppasýkingar
algengar í kornrækt og þá er
gripið til sveppavarnarefna til
að kornið leggist ekki og fari
forgörðum. Þessi vandamál eru
nær óþekkt þeim sem stunda
lífræna kornrækt hér á landi.
Losun kolefnis út í and-
rúmsloftið, hnignandi jarðvegs-
gæði, mengun grunnvatns, minni
líffræðilegur fjölbreytileiki eru
allt raunveruleg vandamál sem
raunverulega þarf að vinna gegn.
Með þaulrækt, tilbúnum áburði
og eiturefnanotkun er ekki verið
að leggjast á árarnar í þeirri
baráttu.
Eygló Björk Ólafsdóttir,
lífrænn ræktandi í Vallanesi.
Ræktunarmenning og akuryrkja
Eygló Björk
Ólafsdóttir.