Árbók Reykjavíkurborgar - 01.08.1975, Page 245
235
Hafi gjaldandi tekjur af eignum, án þess að talið verði, að um
atvinnurekstur sé að ræða, þar með talin útleiga íbúðarhúsnæðis, skal
draga frá tekjum af þeim bein útgjöld þeirra vegna, þó ekki vaxtagjöld.
NÚ vinnur einstaklingur eða hjón, annað hvort eða bæði, eða ófjarráða
börn þessara aðila, við eigin atvinnurekstur eða sjálfstæða starfsemi, og
er þá sveitarstjórn heimilt, er sérstaklega stendur á, að ákveða, að tekjur
slíkra aðila til útsvars verði ákveðnar eftir því, sem ætla má, að laun
þessara aðila, miðað við vinnuframlag þeirra, hefðu orðið, ef þeir hefðu
unnið starfið í þágu annars aðila.
Ráðherra getur með reglugerð sett nánari ákvæði um framkvæmd
þessarar greinar.
24. gr.
Skattstjórar annast álagningu útsvara, nema sveitarstjórn hafi
ákveðið að annast sjálf álagninguna eða falið sérstakri nefnd að gera það,
sbr. 4. mgr. 28. gr.
Ákvæði V. - VIII. kafla laga nr. 68/1971 gilda, eftir því sem við
á, um útsvör nema öðruvísi sé ákveðið í lögum þessum.
25. gr.
Útsvar skal vera ákveðinn hundraðshluti af tekjum næstliðins
almanaksárs, sbr. 23. gr. , sem þó má ekki hærri vera en 1 Cffo, og skal sami
hundraðshluti lagður á alla gjaldendur í hverju sveitarfélagi.
í sambandi við samningu fjárhagsáætlunar fyrir næsta almanaksár
ákveður sveitarstjórn, hver hundraðshluti verður lagður á tekjur gjald-
enda á því ári, og tilkynnir skattstjóra um ákvörðun sína.
NÚ hrökkva útsvör samkvæmt 1. mgr. þessarar greinar ekki fyrir
áætluðum útgjöldum, og er þá sveitarstjórn heimilt að hækka þau um lCffo
að fengnu samþykki ráðherra
26. gr.
Útsvar skv. 25. gr. hjá hjónum, sem telja fram sameiginlega, og
einstæðu foreldri, sem hefur fyrir heimili að sjá, svo og fólki í óvígðri
sambúð, sem telur fram saman, sbr. 5. mgr. B-liðs 25. gr. laga nr. 68/1971
með áorðnum breytingum, skal lækka um 10.500 kr. og útsvar einstaklings um
7.500 kr. Telji hjón fram hvort í sínu lagi skal hvort um sig fá sam-
svarandi lækkum og einstaklingur. Fyrir hvert barn innan 16 ára aldurs,
sem gjaldandi hefur á framfæri sínu, sbr. C-lið 25. gr. laga nr. 68/1971
með áorðnum breytingum, skal lækka útsvar hans um 1.500 kr. Hafi gjald-
andi fleiri en þrjú börn innan 16 ára aldurs á framfæri sínu skal enn
fremur lækka útsvar hans um 3.000 kr. fyrir hvert barn umfram þrjú.
Fjárhæðir þessar skulu breytast í samræmi við skattvísitölu eins og hún
er á hverjum tíma sbr. 53. gr. laga nr. 68/1971 með síðari breytingum
Fella skal niður útsvör, sem eru 1.000 kr. og lægri.
Útsvar skal á lagt í heilum hundruðum króna, þannig að lægri fjár-
hæð en 100 krónum skal sleppt.
Þeir sem hafa tekið upp heimilisfesti hér á landi á næstliðnu
almanaksári, skulu njóta lækkunar á útsvari samkvæmt þessari grein í hlut-
falli við dvalartíma sinn hér á landi á því ári.